06.12.1974
Sameinað þing: 18. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í B-deild Alþingistíðinda. (446)

57. mál, Áburðarverksmiðja ríkisins

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Ég sé ástæðu til að lýsa stuðningi mínum við till. sem hér er til umr. Í sjálfu sér er ekki ástæða til að bæta miklu við þá ræðu sem frsm. hefur hér flutt þar sem hún var mjög svo ítarleg.

Eins og hann gat um hefur nú um mánaðarskeið eða svo starfað n, til að fjalla um hin margvíslegu vandamál sem spretta af fyrirsjáanlegri hækkun áburðar í landinu. Meðal þess, sem rætt hefur verið í þessari n., er hugsanleg stækkun Áburðarverksmiðju ríkisins í Gufunesi. Hefur komið fram í þeim upplýsingum sem nefndin hefur getað aflað sér um það mál að verðmunur á innfluttu amoníaki og því, sem framleitt er í verksmiðjunni, er gífurlega mikill, svo að hið innflutta ammoníak er þrisvar til fjórum sinnum hærra — í hærra verði en innlend framleiðsla. Slíkur verðmunur á þessu þýðingarmikla áburðarefni gefur vissulega þegar til kynna að nauðsynlegt er að athuga ítarlega og hið allra fyrsta hver hagkvæmni stækkunar áburðarverksmiðjunnar muni vera. Það er að vísu rétt, eins og fram kom í máli frsm. till., að áburðarverksmiðjan í Gufunesi býr að vísu við sérstök kjör að því leyti, að þar er um afskrifaða verksmiðju að ræða auk þess sem raforkuverðið er lágt. Ég veit að það hefur þegar verið ákveðið af þessari nefnd að þegar hún skilar áliti, sem væntanlega verður nú fyrir hátíðar, þá verður þetta einn af þeim meginþáttum sem hún leggur áherslu á, að kannað sé ítarlega hver hagkvæmni sé í því fólgin að stækka Áburðarverksmiðju ríkisins. Mér er enn fremur kunnugt um að stjórn Áburðarverksmiðjunnar hefur ritað ríkisstj. bréf um þetta efni og eru þannig fleiri aðilar sem styðja að þessu máli og því sannarlega tímabært að því sé hreyft hér á hv. Alþingi.

Sú athugun, sem þarna verður væntanlega sett í gang, þarf að vinnast af þar til bærum sérfræðingum, — sérfræðingum sem ekki hafa beinna hagsmuna að gæta, hvorki viðskiptalega séð né á annan hátt. T.d. væri það ekki fullnægjandi að mínum dómi að velja til þessa verkefnis sérfræðinga sem starfa á vegum áburðarverksmiðja erlendis sem við erum í viðskiptum við, vegna þess að það gæti gefið undir fótinn tortryggni að þar kæmu einhver annarleg sjónarmið til greina. Þess vegna þarf að vanda vel val þeirra sérfræðinga, sem um þetta fjalla, og tryggja að niðurstöður verði sem allra hlutlægastar.

Það er augljóst mál, að áburðarnotkun verður naumast takmörkuð svo að nokkru nemi hér á landi. Áburðarnotkun landsmanna er undirstaða fóðuröflunar og undirstaða landbúnaðar í landinu og þess vegna er naumast um það að ræða, þó að það geti verið einhverjar árferðissveiflur í því, að áburðarnotkuninni sé haldið niðri eða úr henni dregið. Það er því tvímælalaust, að það þarf að gefa þessu máli fyllsta gaum og ráðast þegar í það verkefni, sem till. greinir, til þess að fáist úr því skorið hver hagkvæmni sé í því fólgin að stækka þessa verksmiðju. Enginn getur leitt að því getum hver þróun verður í áburðarverði í heiminum á komandi árum. Það er þó vitað að möguleikar okkar á því sviði að kaupa til landsins þessa vöru þrengjast m.a. vegna þess að sum áburðarefni í heiminum eru að ganga til þurrðar, að talið er, og ýmsar alþjóðastofnanir leggja áherslu á að áburði verði í meira mæli miðlað til svokallaðra þróunarríkja, sem eiga við hungur að búa, og er það sannarlega eðlilegt. Þetta m.a. veldur því, að þeir möguleikar þrengjast, sem við höfum til þess að kaupa þessa vöru, og þetta hefur áhrif á áburðarverðið erlendis.

Allt styður þetta það mál sem hér er flutt, og ég vildi með þessum fáu orðum lýsa yfir stuðningi mínum við þessa tillögu.