09.12.1974
Neðri deild: 16. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í B-deild Alþingistíðinda. (474)

83. mál, lántökuheimildir erlendis

Frsm. (Ólafur G. Einarsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. d. hefur haft þetta frv. til athugunar og fjallaði um það á fundi sínum í síðustu viku. Efni frv. er að heimila ríkisstj. að taka erlent lán að fjárhæð allt að 2120 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendum gjaldeyri, eins og segir í 1. gr. frv. Í 2. gr. er síðan talið hvernig láninu verði varið, þ.e. til Framkvæmdasjóðs Íslands 800 millj., til Landsvirkjunar vegna virkjunarframkvæmda við Sigöldu 474 millj., til vegagerðar 496 millj. og til framkvæmda í orkumálum 360 millj.

Heimildir til þessarar lántöku er að finna reyndar í ýmsum lögum, en með þessu frv. eru þær heimildir færðar á einn stað þar sem óhentugt þykir að þurfa að vísa til margra lagaheimilda í skuldabréfum sem út verða gefin. Það er um að ræða hina almennu heimild í 22. gr. l. um Framkvæmdastofnun ríkisins þar sem Framkvæmdasjóði er heimilað með samþykki ríkisstj. að taka lán til starfsemi sinnar bæði innanlands og erlendis. Þá er heimild í l. um lántökuheimildir erlendis, lögum sem samþ. voru á Alþ. 29. apríl s.l., vegna ýmissa framkvæmda í orkumálum og svo l. nr. 37 frá 8. maí s.l. Heimild hefur hins vegar ekki verið fengin vegna vegaframkvæmda en eins og vitað er varð ekki af endurskoðun vegáætlunar á s.l. vori eins og til stóð.

Ég vil geta þess að til fundar við n. kom Jóhannes Nordal seðlabankastjóri og veitti hann ýmsar upplýsingar. Þá vil ég einnig geta þess að það kom fram á fundi n. að til athugunar hefur verið hjá Framkvæmdasjóði að fá 200 millj. kr. lán hjá Viðreisnarsjóði Evrópu og kann að reynast nauðsynlegt að fá heimild ríkisstj. til að taka það lán ef Framkvæmdasjóður fær ekki það fé, sem gert er ráð fyrir í áætlun frá lífeyrissjóðunum, en eins og er mun skorta nokkuð á að það fé fáist.

Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að fara um þetta mál fleiri orðum. Eins og fram kemur í áliti n, á þskj. 104 er n. sammála um að mæla með því að frv. verði samþ. óbreytt.