10.12.1974
Sameinað þing: 20. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 616 í B-deild Alþingistíðinda. (503)
18. mál, lagning byggðalínu milli Norður- og Suðurlands
Magnús Kjartansson:
Herra forseti. Aðeins nokkur orð í viðbót einmitt í tilefni af því, sem hæstv. samgrh. sagði áðan. — Hæstv. iðnrh. hélt því fram að fyrrv. ríkisstj, hefði ákveðið að verja aðeins 26 millj. af þeim 300 millj. sem heimilaðar voru á fjárlögum þessa árs. Þetta er ekki rétt. Fyrrv. ríkisstj, tók enga slíka ákvörðun. Hitt er alveg rétt, að hæstv. fjmrh. gerði okkur . grein fyrir því sem hann taldi vera vandamál í því sambandi, en það var engin ákvörðun um það tekin að skera þetta verk niður, og af minni hálfu var það undirbúið á þann hátt, sem Alþ. hafði gefið heimild til, og raunar ráðstafað þar einum 70 millj. kr.
Í sambandi við byggðalínu og hugsanlega járnblendiverksmiðju í Hvalfirði var sá háttur á hafður í sambandi við hönnun þessarar línu að gera þar tvo valkosti: ,annars vegar að reikna með því að þarna yrði verksmiðja, hins vegar að reikna með að verksmiðjan yrði ekki, en í báðum tilvikum er þessi byggðalína bæði sjálfsögð og hagkvæm lausn á þessu vandamáli og raunar forsenda þess að hér verði einhver skynsamleg þróun í raforkumálum á næstunni.