10.12.1974
Sameinað þing: 20. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 623 í B-deild Alþingistíðinda. (515)
304. mál, rafvæðing dreifbýlisins
Fyrirspyrjandi (Steingrímur Hermannsson):
Ég vil þakka hæstv. ráðh. svör hans. Mikilvægast í þessum svörum var að sjálfsögðu það sem ég skil þannig að staðið verði við þessa áætlun, og ég tók svar hans svo að það yrði gert á þessu ári, 1975, þ.e.a.s. þetta yrði 4 ára áætlun í stað þriggja og það gerir ekki gæfumuninn. Aðalatriðið er að þeir, sem eiga von á raforku frá samveitu, fái hana. Hins vegar þykir mér rétt að koma því á framfæri hér, sem hæstv. ráðh. er auðvitað vel kunnugt um, að á frv. til fjárlaga er aðeins gert ráð fyrir 50 millj. kr. framlagi, ef ég man rétt, og 60 millj. kr. lánsheimild, eða 110 millj. kr. alls. Hygg ég að við getum verið sammála um að það er hvergi nærri fullnægjandi til að ljúka rafvæðingu þeirra 100 býla sem ólokið er nú. Mér sýnist, miðað við þær upplýsingar, sem hann gaf um kostnað á þessu ári, að örugglega sé nauðsynlegt að tvöfalda þá upphæð ef ekki meira. Vil ég eindregið beina þeim tilmælum til hæstv. ráðh. að hann beiti áhrifum sínum til þess að slíkt fjármagn fáist. Það held ég sé höfuðnauðsyn ef standa á við þessa áætlun eins og fullyrt er.
Mig langar jafnframt að koma því hér á framfæri að ég hef haft mörg tækifæri til þess að fylgjast með þessari framkvæmd, og því miður verð ég að segja, að ég hygg að skipulag rafvæðingarinnar sé ákaflega lélegt og þar þarf að gera stórátak mjög nauðsynlega. Ég hygg, að það sé miklum fjármunum sóað með þeim framkvæmdamáta sem nú er. Ég meina þetta ekki sem gagnrýni á það fólk sem að þessu starfar. Það getur vel verið að mikið hafi verið lagt undir og ekki unnist tími til að skipuleggja það sem skyldi. En ég er sannfærður um að svona er málum háttað og þarf að lagfæra það. — Svo þakka ég aftur hæstv. ráðh. svörin.