10.12.1974
Sameinað þing: 20. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í B-deild Alþingistíðinda. (525)

308. mál, atvinnulýðræði

Fyrirspyrjandi (Sighvatur Björgvinsson):

Herra forseti. Hv. þm. Ragnar Arnalds kvartar yfir því að ég hafi ekki viljað faðma hann. Það er nú svo. Hins vegar er best að taka það fram, að þegar Alþfl.- menn eða réttara sagt Alþfl.menn, sem hér sátu fyrir mína tíð, byrjuðu að berjast fyrir þessum málum hér á Alþ., þá var hv. þm. Ragnar Arnalds hvergi nærstaddur til þess þeir gætu tekið hann í fangið. En það er sjálfsagt að taka hann í fangið nú, fyrst hann er kominn með okkur í þessu máli.

Það er rangt að aðrir aðilar en Alþfl. hafi haft forustu og frumkvæði um að taka upp atvinnulýðræði sem baráttumál í íslenskri pólitík. Ég átti sjálfur sem kornungur maður sæti í stefnuskrárnefnd Sambands ungra jafnaðarmanna árið 1959, 1960 og 1961. Þá var samin ný stefnuskrá fyrir Samband ungra jafnaðarmanna upp á um 70 síður, og það var í fyrsta sinn sem stjórnmálafl. eða stjórnmálahreyfing kom opinberlega fram með baráttu fyrir atvinnulýðræði á Íslandi. Ég skora á form. Alþb. að koma með eitthvað slíkt frá sínum flokki sem fyrr hefur verið komið í gang en þetta.

Hv. þm. Benedikt Gröndal minnti á nokkur þau mál, sem við komum með fyrst hér. Ég get endurtekið þau og minnt á það, sem . er þáttur í þessu máli líka, hverjir það voru sem áttu upptökin að bæjarútgerðunum og þeirra rekstri. Var það ekki atvinnulýðræði í vissri mynd? Hins vegar er sjálfsagt að fallast í faðma við Ragnar Arnalds og aðra hv. Alþb.- menn um þetta mál nú þegar þeir eru tiltækir.