05.11.1974
Sameinað þing: 5. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í B-deild Alþingistíðinda. (54)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Þór Vigfússon:

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Þessum fáu mínútum ætla ég að verja til að ræða þann þátt í stefnuræðu hæstv. forsrh., sem fjallar um samkomulag það, er hæstv. utanrrh. náði í Washington í sept. s.l. um sameiginleg hermál Íslands og Bandaríkjanna.

Þetta samkomulag felur í sér áframhaldandi dvöl hins bandaríska hers hér á landi og það án nokkurra tímatakmarka og stóraukin fjármálaleg umsvif hans. Það felur í sér fullkomið afturhvarf frá þeirri stefnu, sem fyrrv. ríkisstj. markaði, að herinn hverfi héðan á næstu árum. Alþb. er því algerlega andvigt þessu samkomulagi og þeirri stefnu ríkisstj. í utanríkismálum, sem þar kemur fram.

Það undrar engan, að Sjálfstfl. skuli beita sér fyrir þessari stefnu í hermálum nú. Það hefur hann gert í hartnær 3 áratugi, svo að þar hefur ekkert farið milli mála. Það skrýtna er, að hann skuli fá tækifæri til að koma þessari stefnu fram, þótt hann hafi hvorki til þess meiri hl. meðal þjóðarinnar né á Alþ., ef nokkuð mætti marka stefnuyfirlýsingar þeirra stjórnmálaflokka, sem hér eiga fulltrúa.

Framsfl. hefur á hverju einasta flokksþingi sinu, frá því að herinn kom hingað, samþykkt ályktanir um það, að herinn skuli fara. Í vinstri stjórninni stóð Framsfl. að yfirlýsingu um það í mars s.l., að herinn skyldi fara á næstu árum, og undir þeirri stefnu gekk hann til kosninga. Nú hefur hann snarsnúið við blaðinu.

Í sambandi við meðferð þessa máls af hálfu ríkisstj. er það athyglisvert, að á vinstristjórnarárunum taldi hæstv. utanrrh. alltaf sjálfsagt að leggja niðurstöður samningaviðræðnanna við Bandaríkjastjórn fyrir Alþ., hverjar svo sem þessar niðurstöður yrðu og hvort sem þær fælu í sér uppsögn herverndarsamningsins eða breytingar innan ramma hans. Þetta er líka sjálfsögð málsmeðferð, hvað sem öllum fordæmum líður. En nú þegar niðurstöður eru fengnar telur hann þetta algeran óþarfa. Þetta er þeim mun einkennilegri afstaða þegar þess er gætt, að fyrir liggur af hans hálfu, að ýmislegt er óljóst eða ófrágengið í samkomulaginu við Bandaríkjastjórn eða aðeins framkvæmdaatriði, eins og hæstv. utanrrh. lýsti yfir hér áðan. Þeim mun ríkari ástæða mætti ætla að væri til þess, að Alþ. ræddi málið vandlega, áður en ákvörðun væri tekin. Það skyldi þó ekki vera, að hæstv. utanrrh. finnist, að nú séum við íslendingar hættir við að vilja ráða þessum málum sjálfir, þar eð til þess skorti meiri hl. á Alþ. Nú er það samráðið við NATO og Bandaríkjastjórn, rækilega undirstrikað í stjórnarsáttmálanum og stefnuræðu hæstv. forsrh., sem skal gilda, ekki samráðið við Alþingi íslendinga.

Talsmenn Framsfl. hafa mjög haldið því á lofti sér til varnar, að með þessu Washingtonsamkomulagi sé vissulega styttra stigíð skrefið en fyrirhugað var í fyrrv. ríkisstj., samt þokist til réttrar áttar, nefnilega þeirrar, að herinn fari. Við skulum athuga lítillega tvö efnisatriði samkomulagsins með þetta í huga. Í stefnuræðu forsrh. segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Ákveðið hefur verið, að varnarliðsmönnum skuli fækkað um 420 menn, en þeir hafa einkum verið bundnir við störf, sem ekki eru hernaðarlegs eðlis. Varnarliðið mun aðstoða við að þjálfa íslendinga til að taka við þessum störfum.“

Ég fæ ekki séð, hvernig túlka megi þetta sem fækkun í varnarliðinu. En þetta felur í sér annað miklu alvarlegra. Hér segir, að einkum sé um störf að ræða, sem ekki séu hernaðarlegs eðlis. Í þessu orðalagi felst, að hér sé einnig um störf að ræða hernaðarlegs eðlis. Ég tel það ekki þokast til réttrar áttar, að íslendingar gerist sjálfir hermenn á launaskrá hjá NATO eða Bandaríkjaher með einhverjum hætti, eins og hæstv. utanrrh. hefur upplýst í fjölmiðlum, heldur þvert á móti.

Forstöðumaður Menningarstofnunar Bandaríkjanna á Íslandi hefur upplýst, að bandarísk stjórnvöld muni verja 4.5 milljörðum íslenskra króna til að bæta aðstöðu bandaríska hersins hér og útvega íslendingum tveggja milljarða kr. lán til nýrrar flugstöðvarbyggingar á Keflavíkurflugvelli. Það er eitt út af fyrir sig, að það skuli vera þessi bandaríski embættismaður, sem fræðir almenning á Íslandi um þetta, á meðan hæstv. utanrrh. tjáir sig mjög óljóst um þessi efni. En hitt ætti að vera hverjum manni augljóst, að sá her, sem lætur til viðbótar því, sem fyrir er, reisa yfir sig 468 íbúðir úr varanlegu efni og það er sérstaklega tekið fram, að efnið skuli vera þessi bandaríski embættismaður, sem morgun eða í næstu viku.

Það er ekki nema von, að hinir bandarísku hermenn vilji búa vel eftir föngum, úr því að þeir eru neyddir til að dveljast langdvölum fjarri heimkynnum sinum. Það kom t.d. í ljós í fyrra, þegar vestmanneyingar lentu í smávegis húsnæðisvandræðum, að þessum hermönnum leist ekkert á að yfirgefa íslenskar íbúðir og fara að búa í einhverjum skúrum eða bröggum. Kemur þar vafalaust til hið íslenska loftslag, sem er líklega heldur hryssingslegt fólki af þessum breiddargráðum. Við þessu er ekkert að segja, enda kemur full greiðsla fyrir þessar íbúðir, með tilheyrandi skattatekjum opinberra aðila væntanlega. Líklega er það bara meinbægni að amast við þessum íbúðabyggingum nú, þegar við íslendingar höfum yfirfljótalegt húsnæði handa okkur sjálfum, bæði til sjávar og sveita. Um það ber raun vitni. Þegar úthlutað var nú á dögunum 160 íbúðum á vegum Framkvæmdanefndar byggingaáætlunar, bárust aðeins 5 umsóknir um hverja íbúð. Það er sannarlega yfirfljótalegt húsnæði í landinu fyrir íslendinga sjálfa.

Það vaknar reyndar ein spurning í sambandi við þessar íbúðabyggingar. Varnarmáladeild utanrrn. og upplýsingastjóra hersins ber saman um það, að bandaríkjamenn noti um 270 íslenskar íbúðir utan flugvallarsvæðisins. Samkvæmt því virðist hægurinn hjá að losa allar íslensku íbúðirnar og auk þess 150 íbúðir á Keflavíkurflugvelli, þegar bandaríkjamönnum fækkar um 420. Hver á þá að búa í nýju íbúðunum 468?

Hérna höfum við byggðastefnu Framsfl., 6.5 milljarðar á Keflavíkurflugvöll. Um leið telur þessi flokkur sig hafa komið miklu máli fram með því að fá tekið inn í fjárlagafrv., að tekjur Byggðasjóðs, sem ætlað er að efla framkvæmdir utan Reykjavíkursvæðisins og Suðurnesja, eiga á næsta ári að hækka um rúmlega 0.7 milljarða. Síst vil ég lasta þessa hækkun. Hér er um upphæð að ræða, sem nemur alltjent 10% af Keflavíkurfénu.

Fleira hefur Framsfl. dottið í hug til að hrinda byggðastefnu sinni í framkvæmd. Einn fulltrúa hans, hv. 4. þm. Reykn., sem nú er Gunnar Sveinsson í forföllum Jóns Skaftasonar, hefur flutt hér í þinginu frv. um framkvæmdasjóð Suðurnesja, sem á að hafa að tekjulind auk annars 2% af veltu Aðalverktaka og annarra verktakafyrirtækja á Keflavíkurflugvelli. Féð skal svo veitt til innlendrar atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum.

Það er mjög að vonum, að framsóknarmenn á Suðurnesjum hafa áhyggjur af innlendum atvinnuvegum þar. Það hafa fleiri. Greinilega hefur komið fram undanfarið, að útvegsmenn á þessu svæði eru mjög uggandi um sinn hag og kvarta undan gömlum skipum og erfiðleikum við að fá mannskap, enda eru störf hjá þeim engan veginn samkeppnisfær við flugvallarstörfin, sem eru, að því er þeir segja, bæði léttari og betur borguð.

Auðvitað þarf Alþ. að aðstoða það fólk, sem fæst við innlenda atvinnuvegi á Suðurnesjum. Það er greinilegt, að frjáls samkeppni af þess hálfu má sín einskis gegn flugvallarfénu. En þá er spurningin, hvort þessi 2% duga. Samt er kannske hægt fyrir þeirra tilstilli að næla í til innlendra atvinnuvega eitthvert brot af því vinnuafli, sem búast má við að streymi til Suðurnesja á næstunni. Hins vegar finnst mér, að framsóknarþm. annarra kjördæma ættu að velta því fyrir sér, hvort suðurnesjamenn ættu að sitja einir að prósentunum af flugvallarfénu. Þeir ættu kannske að beita sér fyrir álíka framkvæmdasjóðum fyrir sín kjördæmi. Þá fengju hin kjördæmin 6, — ég sleppi Reykjavík, sem fær víst eitthvað í sinn hlut hvort sem er, — þá fengju hin kjördæmin 6 samtals 12% veltunnar í sinn hlut. Þetta væri um það bil 0.7 milljarðar eða álíka mikið og nemur þeirri tekjuaukningu til Byggðasjóðs, sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. Að vísu kynni þetta að skiptast milli tveggja ára, ef það er rétt, sem hæstv. utanrrh. hefur látið í veðri vaka um gildistíma samkomulagsins, að það gildi í hæsta lagi í tvö ár. Samt væri þetta ekki amaleg viðbót og mundi auk þess efla mjög áhuga almennings úti um hinar dreifðu byggðir landsins á umsvifum Íslenskra aðalverktaka. Jafnvel mætti láta sér detta í hug, að með þessari skipan mála yrði Byggðasjóður alveg óþarfur, ef nóg er framkvæmt á Keflavíkurflugvelli.

Herra forseti. Ég veit ekki, hvernig framsóknarmenn fara að því að lesa sina eigin stefnu út úr samkomulagi utanrrh., a.m.k. ef þeir ætla að lesa þar sina yfirlýstu stefnu. Ég veit ekki hvenær hæstv. utanrrh. verður búinn að þoka málinu í þá höfn, sem hann segist stefna að, nefnilega að hafa hér herlaust land, ef eftirleikur hans verður sem þessi. Hann segir reyndar sjálfur, að skrefin séu stutt. Satt er það, stutt eru skrefin. Mér finnst þau satt að segja vera jafnstutt og hjá bónda einum í fæðingarsýslu utanrrh. Hann var að koma heim úr kaupstað með nokkra hestvagna í lest og hafði eins og oft vildi verða í kaupstaðarferðum fengið sér ofurlítið neðan í því. Sem hann er nú kominn í sina heimasveit verður á vegi hans sandbleyta allmikil, sem hann ríður ofan í með alla sína vagna á eftir sér. Náttúrlega fór allt á kaf og reiðskjóti bónda sökk upp í kvið. En bónda var þá svo komið, að hann tók ekki eftir þessu og þóttist riða áfram. Þar kom að nágranni bónda sér, hvernig leikurinn stendur, og ávarpar granna sinn: „Ósköp gengur nú hægt hjá þér núna, Jón minn.“ „Já,“ svarar bóndi og lemur fótastokkinn, svo að yfir hann þyrlast blautur sandurinn, „en það mjakast.“

Ég held, að full ástæða væri fyrir pólitíska granna hæstv. utanrrh., framsóknarmenn um allt land, að íhuga það vandlega, hvernig koma megi lestinni upp úr sandbleytunni. Ég þakka áheyrnina.