10.12.1974
Sameinað þing: 21. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 641 í B-deild Alþingistíðinda. (544)

50. mál, virkjun Suður-Fossár á Rauðasandi í Vestur-Barðastrandasýslu

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar flm. þakka hæstv. iðnrh. góðar undirtektir hans við þessa þáltill. og vænti þess að aðrir alþm. sýni þessu máli sama velvilja og hann virðist ætla að gera.

Það er nú einu sinni svo að vestfirðingar eru e.t.v. ekki kvartsárir menn. Því fer það fram hjá mörgum hvernig ástandið er í þeirra raforkumálum, því að aðrir menn úr öðrum landshlutum hafa e.t.v. hærra um ástandið hjá sér. Staðreyndin er sú að með þessari till. er verið að leitast við að leysa úr algeru neyðarástandi, sem ríkir í raforkumálum fjórðungsins, og sú virkjun, sem hér er lagt til að ráðist verði í, er lítil eins og fram hefur verið tekið. Henni er aðeins ætlað að vera í mesta lagi 2.4 mw. virkjun. Það fullnægir auðvitað hvergi nærri þörfinni, en hins vegar til þess gert að draga úr mjög sárum raforkuskorti sem ríkir t.d. á Patreksfirði og suðurfjörðunum.

Ástandið í raforkumálum vestfirðinga er þannig að það hefur mjög alvarleg áhrif á atvinnulífið í fjórðungnum. Það hefur oft gerst og iðulega að t.d. fiskvinnslufyrirtæki verði að hætta að keyra sínar vélar, heimilistæki liggi undir skemmdum vegna spennufalls og lítils straumstyrkleika, og það hefur líka komið fyrir, eins og hv. þm. er í fersku minni, að bilað hafa línur fyrir vestan sem hefur tekið marga daga og jafnvel margar vikur að lagfæra. Á meðan hafa vestfirðingar setið í orkuskorti.

Það hafa mjög nýlega verið gerðar athuganir á virkjunarþörf á Vestfjörðum og framkvæmdahraða í þeim efnum. Og ég held að það sé rétt til þess að fylgja þessari till. enn eftir, til þess að hv. þm. geti gert sér grein fyrir hve þörfin er mikil, að rekja það í örfáum orðum.

Uppsett vatnsafl á orkuveitusvæði Vestfjarðaveitu er í dag 3.96 mw. Á næsta ári, þegar Mjólkárvirkjun II verður tilbúin til orkuframleiðslu, vex afl vatnsorkuveranna um 5.7 mw. eða í um 9.7 mw. Ársorkuvinnslugeta ofangreindra vatnsaflsvirkjana er um 58 gwst. miðað við húshitun á markaðssvæðinu.

Nú er það svo, eins og menn kannske vita, að það hafa verið gerðar sérstakar athuganir á því á Vestfjörðum hve mikið kostar að kynda hús þar með olíu. Ástæðan fyrir þessari athugun, sem framkvæmd var m.a. á vegum Fjórðungssambands Vestfjarða, var sú að það er stefna sveitarfélaganna á Vestfjörðum að breyta húshitun með olíu yfir í húshitun með rafmagni. Í ljós kom við þessa athugun að það er um 18% dýrara að kynda hús á Vestfjörðum með olíu heldur en kynda hús hér á Suðvesturlandi með olíu. Ástæðurnar fyrir því eru tvær: í fyrsta lagi kaldara veðurfar og í öðru lagi eldri hús, en það er einkennandi fyrir Vestfirði að flestöll íbúðarhús þar eru ákaflega gömul og úr sér gengin og dýr í kyndingu. Einmitt þess vegna er það mikið nauðsynjamál og stefnumál vestfirðinga að sem allra fyrst verði unnt að hefja hitun húsa með raforku, og geta menn farið nærri um hversu langt það virðist eiga í land þegar ástandið er þannig nú að iðnaðurinn á Vestfjörðum og þá einkum og sér í lagi fiskiðnaðurinn er í orkusvelti vegna ástandsins.

Samkv. nýjustu athugunum er talið að heildarorkuþörf til húshitunar á veitusvæðinu sé áætluð 85 gwst. á ári miðað við 12 þús. kwst. orkuþörf á íbúa og íbúafjölda 7100. Það er ekki gert ráð fyrir íbúaaukningu fram til 1975 á Vestfjörðum, en síðan er ráð fyrir því gert að hún vaxi í 1% fram til ársins 1980 og sá vaxtarhraði haldist óbreyttur úr því. Sé gert ráð fyrir fullri rafhitun frá og með árinu 1975, eins og vonir stóðu til á sínum tíma, þá verður heildarorkuþörf Vestfjarðaveitu á því ári 114 gwst. Til samanburðar er orkuvinnsla Vestfjarðaveitu nú eftir að Mjólká kemur í gagnið eða verður 1975 58 gwst. en þörfin 114. Á árinu 1980 verður þörfin orðin 127 gwst., á árinu 1985 148 gwst. Aflþörfin á orkuveitusvæðinu 1980 er 28 mw., 1985 33.

Með hliðsjón af framansögðu vantar á núverandi vatnsafl á Vestfjörðum, þ.e. þegar Mjólká II er tilbúin til orkuframleiðslu, þá vantar árið 1975 um 56 gwst. á ári, 1980 69 gwst. á ári og þá er viðbótaraflþörf 19 mw., 1985 19 gwst. og viðbótarþörf 23 mw. Það gefur því auga leið að það er brýn nauðsyn til þess að nú þegar verði hafinn undirbúningur að stórvirkjunum fyrir vestfirðinga.

Það er nú uppi áætlun um, mér er ekki kunnugt um hvort hún hefur verið samþ. eða í framkvæmdina hefur verið ráðist, en áætlað var jafnhliða áætlunum um Mjólká II að veita Hófsá yfir í inntakslón Mjólkár II, þ.e. í Borgarhvilft. Með þeirri framkvæmd, sem væntanlega yrði þá gerð í beinu framhaldi af Mjólká II, gæti orkuvinnslugeta Mjólkár í vaxið um 7 gwst. sem er ekki nema brot af því sem til þarf.

Þær leiðir, sem einkum hafa verið til umr. til viðbótarorkuöflunar fyrir Vestfjarðaveitu, eru þrjár:

1. Virkjun Dynjandisár með um 8.3 mw. orkuveri í Dynjandisvogi og um 48 gwst. orkuvinnslu lauslega áætlað. Afbrigði er að veita Dynjandisá yfir á vatnasvæði Mjólkár og fá viðbótarvirkjun í Borgarvogi. Þetta var fyrsta leiðin sem hugsað er um.

2. Rætt er um háspennulínu frá byggðalinunni í Hrútafirði að Mjólká, sem er ca. 150 km vegalengd.

3. Þá væri svo virkjun Þverár á Langadalsströnd í 7–12 mw. orkuveri með 40–70 gwst. ársorkuvinnslugetu. Þetta er breytilegt með tilliti til þess hvaða ám yrði veitt inn á vatnasvið Þverár.

Ýmsar aðrar hugmyndir koma til greina, t.d. virkjanir við norðanvert Ísafjarðardjúp og enn fremur stórvirkjun á Ströndum í Hvalá og Rjúkanda, en það er mjög lítið kannað mál. Lauslegar athuganir benda hins vegar til þess að hagkvæmast sé annaðhvort að virkja Dynjandisá eða Þverá auk byggðalínunnar, þannig að það eru þessir þrír möguleikar, sem ég nefndi áðan, sem virðast vera raunhæfastir.

Ég segi það eins og er að ég er sammála þeirri stefnu hæstv. fyrrv. iðnrh. að það sé rétt og það sé skylt að tengja orkuveitusvæði landsins saman til þess að koma á eins miklu öryggi og mögulegt er að hafa í okkar raforkumálum. Hins vegar tel ég ekki síður ástæðu til þess að virkja í heimahéruðum, vegna þess að eins og við vitum þá getur það gerst og hefur iðulega gerst að raflínur hafa farið í sundur, kannske á stöðum sem erfitt er að komast að í vetrarveðrum til viðgerða, og því er nauðsynlegt að í heimahéruðum séu virkjanir sem sé hægt að treysta á. Þess vegna mundi ég telja, að auk þess að leggja áherslu á að leggja háspennulinu frá byggðalínunni í Hrútafirði að Mjólká þyrfti hið bráðasta að taka ákvörðun um stórvirkjun á Vestfjörðunum sjálfum.

Það er rétt að taka fram að það hefur verið farið fram á bæði af vestfirðingum og öðrum þeim, sem að þessum málum hafa unnið, að nokkru fjármagni yrði varið til undirbúningsvirkjana. M.a. var farið fram á það við Rarik að í sumar yrði unnið að gerð loftmyndakorts af Þverársvæðinu. Var lagt til að settir yrðu upp rennslismælar og síritarar á nokkrum stöðum, m.a. við Hvalá og viðar. Einnig var lagt til að jarðfræðiathuganir yrðu gerðar í sumar, a.m.k. við Þverá. Þá var einnig lagt til að endanlegar mælingar við Dynjanda yrðu gerðar á þessu sumri. Svo hefur hins vegar farið að ekkert af þessu hefur verið gert og borið við fjárskorti. Þeir sérfræðingar, sem að þessum málum hafa unnið, höfðu áætlað að ef þessar framkvæmdir hefðu verið unnar í sumar, þessar nauðsynlegu undirbúningsframkvæmdir, þá hefði verið hægt að koma á næstu virkjun á Vestfjörðum þannig að hún gæti tekið til starfa 1978–1979. Vegna þess að ekki hefur verið staðið við þau fjárframlög og þau fyrirheit sem gefin hafa verið í sambandi við rannsóknir fyrir vestan, þá telja þessir sömu sérfræðingar að þessari virkjun seinki a.m.k. um eitt ár og við vestfirðingar getum ekki átt von á því að fá nýja stórvirkjun, að fá öryggi í orkumálum fyrr en í fyrsta lagi á árunum 1980–1981. Ég legg mjög mikla áherslu á að samhliða því að Alþ. afgreiði þessa till. til þál. um virkjun Suður-Fossár á Rauðasandi, sem við þm. Vestf. flytjum og fengið hefur góðar undirtektir hjá hæstv. ráðh., þá verði þegar í stað hafinn undirbúningur að nýrri stórvirkjun á Vestfjörðum þannig að vestfirðingar geti þó átt von á því að fá að búa við sæmilegt öryggi í raforkumálum eftir 1980.