10.12.1974
Sameinað þing: 21. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 646 í B-deild Alþingistíðinda. (548)
71. mál, ellilífeyrisgreiðslur til lífeyrissjóðsfélaga
Flm. (Guðmundur H. Garðarsson):
Herra forseti. Með þáltill. þessari leggja flm. til að Alþ. feli ríkisstj. að láta kanna hvort grundvöllur sé fyrir því að breyta lífeyrisgreiðslukerfi óverðtryggðra lífeyrissjóða þannig, að eftirlaunagreiðslur þessara sjóða fullnægi eðlilegri framfærsluþörf sjóðfélaga. Jafnframt verði kannað með hvaða hætti unnt verði að tryggja að allir lífeyrisþegar sitji við sama borð gagnvart eftirlaunum með tilliti til ævitekna og framfærslukostnaðar á hverjum tíma.
Eitt af meginmarkmiðum þróaðra þjóðfélaga ætti að vera að tryggja eldra fólki góðan aðbúnað að lokinni langri starfsævi. Eftir því sem velmegun þjóðar er meiri ætli að vera auðveldara að ná þessu markmiði ef einlægur vilji er fyrir hendi. Hérlendis hefur margt verið gert í þessum efnum á liðnum áratugum af hálfu hins opinbera, félagasamtaka og einstaklinga. En dregið skal í efa að nægilega hafi verið að gert, bæði með tilliti til framlags þess fólks, sem hér um ræðir, til þjóðarbúsins á liðinni starfsævi og einnig samanborið við þær stórfúlgur sem varið er til annarra þarfa. Sem dæmi mætti nefna þær hundruð millj. sem árlega renna í fræðslukerfið vegna menntunar stúdenta og verðandi stúdenta. Þar virðast árlega fara í súginn hundruð millj. kr. af fjármunum þjóðarinnar, auk þess sem það virðist vera mörgum stúdentum mikil raun að þurfa að þiggja þetta fé og þar með möguleika til menntunar úr hendi íslenskra skattborgara, úr hendi sjómanna, verkamanna, iðnaðarmanna og útgerðarmanna, bænda og verslunarmanna o.s.frv., þ.e.a.s. fólks sem með vinnu sinni og arðsköpun hefur lagt grunninn að íslensku fyrirmyndarþjóðfélagi, því að þrátt fyrir allt er íslenskt þjóðskipulag að mörgu leyti til fyrirmyndar.
Íslendingar eru gott fólk, þjóð sem hefur lifað og þroskast í stéttlausu þjóðfélagi friðar og umburðarlyndis. Stórir árgangar eldra fólks, sem átt hafa hvað mestan þátt í sköpun Íslands nútímans, eru nú að hverfa af vinnumarkaðnum. Margt af þessu fólki hefur jöfnum höndum byggt upp umhverfi sitt og þar með auðvitað framtíð þeirra kynslóða er við taka, og einnig hefur það leitast við að leggja til hliðar, sparað nokkurt fjármagn til elliáranna í þeim tilgangi að verða öðrum ekki til byrði. Sparnaðurinn er fólginn í ýmsu, m.a. í formi húseigna, íbúða, innistæðu í bönkum og svo í lífeyrissjóðum. Illu heilli hafa ytri og innri aðstæður á Íslandi síðustu árin verið á góðri leið með að gera vonir þessa fólks um gott ævikvöld að engu. Sem dæmi má nefna að ákveðinn hópur stjórnmálamanna virðist ætíð vera reiðubúinn til að hækka skatta á fasteignum og íbúðum og gera eldra fólki þannig erfitt með að búa í og halda eignum sínum. Sem betur fer hefur yfirleitt tekist að koma í veg fyrir slík áform. Hins vegar hefur ekki tekist að koma í veg fyrir rýrnun sparifjár og fjármuna lífeyrissjóða í verðbólguþróun síðustu ára og verja stóran hluta aldraðs fólks fyrir áföllum af þeim sökum. Og við þessar breyttu aðstæður hefur ekki tekist sem skyldi í gegnum almannavaldið að tryggja eldra fólki meiri og réttmætari hlutdeild í sameiginlegum fjármunum þjóðarinnar sem eru til skiptanna á hverjum tíma.
Í því sambandi vaknar sú spurning, hvort Alþ. eigi ekki að taka til rækilegrar endurskoðunar núv. skiptingu fjárframlaga á fjárl. og úr lána- og styrkjakerfum vegna ýmissa lítt þurfandi framfærsluaðila. Minna fjármagnsstreymi til þessara aðila og frekari beining þess til þeirra sem hafa meiri þörf fyrir það, þ.e.a.s. í þessu tilfelli að fullnægja þörfum aldraðs fólks, kæmi að betri notum og það er einmitt tilgangur okkar að undirstrika það, því að það er þetta fólk, sem hefur með ævistarfi sínu lagt grundvöllinn að því borgaralega þjóðfélagskerfi sem við íslendingar nú búum við.
Það er verðugt umhugsunarefni fyrir hv. alþm., sem ég sé að eru nú ekki margir hér inni, enda flestir víst komnir á verðtryggt eftirlaunakerfi, — það er samt verðugt umhugsunarefni fyrir hv. alþm. að hugleiða nokkuð ellilífeyriskjör þess fólks, sem býr ekki við verðtryggðan ellilífeyri, og ræða yfirleitt meir um stöðu og afkomu aldraðs fólks, því að sem fyrr segir stafar afkomu eldra fólks sérstök hætta af mikilli verðbólgu og sérstaklega óðaverðbólgu og eru ástæðurnar augljósar. Ef undan eru skildir opinberir starfsmenn er búa við verðtryggðan ellilífeyri, er gamalt fólk, sem komið er á eftirlaun, gersamlega berskjaldað fyrir hinum miklu verðhækkunum, sem verðbólgu eru samfara. Staðreynd er að þótt einhverjar leiðréttingar eigi sér stað í gegnum almannatryggingakerfið eru þær hlutfallslega litlar miðað við það umfang verðhækkana í óðaverðbólgu sem nú eiga sér stað og hafa átt sér stað, auk þess sem slíkar leiðréttingar eða bætur koma seint og þá löngu eftir á.
Meðal þýðingarmestu þátta í félagsmálaþróun síðustu áratuga er stofnun lífeyrissjóða er hafa fyrst og fremst það markmið að tryggja sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum fullnægjandi lífeyri til þess að lifa sómasamlegu lífi. Í lýðfrjálsum þjóðfélögum hefur ýmist verið stofnað til þessara mikilvægu réttinda í gegnum frjálsa samninga aðila vinnumarkaðarins eða með löggjöf í samráði við þessa aðila. Hérlendis hafa flestir öðlast aðild að lífeyrissjóðum í gegnum frjálsa samninga. Er nú svo komið að meginþorri vinnandi fólks hefur hlotið þessi réttindi. Af skiljanlegum ástæðum hinda lífeyrissjóðsfélagar og þau fyrirtæki, er greiða í formi iðgjalda samanlagt 10% af launum starfsmanna í lífeyrissjóðakerfið, miklar vonir við að viðkomandi starfsmaður geti notið góðrar elli að lokinni starfsævi fyrir tilstilli lífeyrisgreiðslna úr sjóðnum. Verðbólga síðustu ára er að gera þessar vonir að engu. Er nú svo komið að sjóðfélagar óverðtryggðra lífeyrissjóða hljóta óverulegar lífeyrisbætur sem hvergi nærri nægja til lágmarksframfæris.
Í uppbyggingu þess lífeyrissjóðakerfis, sem hérlendis þekkist, er í grundvallaratriðum miðað við verðbólgulaust þjóðfélag þar sem rauntekjur á mann vaxa árlega um 2–3% á því 30 ára tímabili sem lífeyrisréttindi eru að myndast. Við slíkar aðstæður þyrftu sjóðirnir að vera á 7–8% ársvöxtum til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar samkv. gildandi reglugerðum. Á grundvelli framangreindra forsendna, aldursskipting eftir dánarlíkum sjóðfélaga o.s.frv. eru lífeyrisgreiðslur síðan ákveðnar í lok iðgjaldagreiðslutímabils sjóðanna. Yfirleitt er um að ræða ákveðna hundraðshlutagreiðslu, 60–70% af meðallaunum síðustu 5 starfsára eða síðasta starfsárs. Er þá miðað við mánaðarlaun. Eftir að þessi upphæð hefur einu sinni verið reiknuð út og úrskurðuð, tekur hún ekki breytingum í krónutölu meðan ellilífeyrisgreiðslur eru inntar af hendi til viðkomandi sjóðfélaga. Þetta á við um lífeyríssjóði, sem taka á sig takmarkaða áhættu vegna kaupgjaldsþróunar, þ.e.a.s. þeir taka á sig ákveðna áhættu vegna kauphækkana sem eiga sér stað á starfsævinni, en á hinn bóginn breytist lífeyrir ekki eftir að einu sinni er búið að úrskurða hann. Er þetta algengasta tegund óverðtryggðra lífeyrissjóða sem stofnaðir voru fyrir árið 1970.
19. maí 1969 undirrituðu aðilar vinnumarkaðarins samning um að stofnaðir skyldu almennir lífeyrissjóðir fyrir þann hluta verkalýðshreyfingarinnar, er naut ekki þá þegar þessara réttinda. Unnið var að samningu almennra leiðbeininga og reglugerða fyrir þessa sjóði síðari hluta sama árs og komu sjóðirnir til framkvæmda 1. jan. 1970. Útreikningar eftirlauna hjá almennu sjóðunum eru nokkuð frábrugðnir útreikningum eldri sjóða. Iðgjöld hvers almanaksárs eru umreiknuð í stig. Áunnin réttindi fara síðan eftir verðgildi iðgjaldanna eins og þau voru þegar þau voru innt af hendi. Nefnist þetta stigakerfi. Í reglugerðum þessara sjóða er gert ráð fyrir möguleikum til endurskoðunar á lífeyrisgreiðslum á 5 ára fresti þannig að hægt sé að endurskoða hina ákveðnu og föstu krónutölu.
Með samningunum frá 1969 má segja að öllum launþegum í landinu hafi verið tryggð lífeyrissjóðsréttindi. En gildi þessara réttinda var og er æði mismunandi eftir því hvort um er að ræða aðild að verðtryggðum eða óverðtryggðum lífeyrissjóði. Meðan verðbólgunni var haldið innan ákveðinna takmarka var þessi munur ekki eins augljós og síðar kom í ljós með vaxandi verðbólgu. Er nú svo komið að regindjúp er á milli lífeyrisgreiðslna til ellilífeyrisþega verðtryggðu hins vegar. Verður nánar vikið að því tryggðu hins vegar. Verður nánar vikið að því hér á eftir.
Alvarlegast við verðbólguþróunina og lífeyríssjóðina hina óverðtryggðu er eftirfarandi:
1. Lífeyrisgreiðslur óverðtryggðu lífeyrissjóðanna eru nú þegar algerlega ófullnægjandi og rýrna stöðugt með vaxandi verðbólgu þar sem greiðslurnar eru krónutölubundnar. Litlar líkur eru fyrir því að unnt verði að sveigja árlega verðbólguþróun niður fyrir ávöxtunarmöguleika sjóðanna og styrkja með þeim hætti greiðslugrundvöll þeirra.
2. Svo til allir starfandi aðilar atvinnulífsins utan opinberra fyrirtækja, þ.e.a.s. utan þess fólks í verkalýðshreyfingunni sem starfar hjá opinberum fyrirtækjum og nýtur þá réttinda samkv. því hjá hinu opinbera, — svo til allir starfandi aðilar atvinnulífsins eru í óverðtryggðum lífeyrissjóðum eða sjóðum sem hafa litla möguleika til að veita slíka tryggingu. Opinberir starfsmenn búa hins vegar við verðtryggðan ellilífeyri eins og ég drap á áðan. Þetta ólíka fyrirkomulag skapar mikið misrétti, þjóðfélagslegt ranglæti, sem verður að leiðrétta. Eftir því sem lengur dregst að finna æskilega og framkvæmanlega lausn þessara mála verður staða lífeyrissjóðsfélaga óverðtryggðu sjóðanna verri. Í því sambandi er rétt að menn geri sér í upphafi ljóst að í þessu efni dugir ekki að benda á einhverjar einfaldar skipulagsbreytingar á rekstri og stjórn sjóðanna með því að þjóðnýta þá. Það er einföld og ódýr leið fyrir stjórnmálamenn að segja: Við steypum öllum lífeyrissjóðunum í eitt kerfi og verðtryggjum allan ellilífeyri um leið. Málið er ekki svona einfalt og það er m.a. af eftirgreindum ástæðum:
1. Lífeyrissjóðir atvinnulífsins eru stofnaðir í frjálsum samningum aðila vinnumarkaðarins. Við þá verður að semja um allar skipulagsbreytingar.
2. Til sjóðmyndunar er stofnað á grundvelli lögverndaðs eignarréttar aðila.
3. Með tilliti til þessa vilja aðilar fá svigrúm til að mæta breyttum kringumstæðum með aðgerðum er gera þeim sjálfum kleift að halda sjálfstæðri starfsemi sjóðanna áfram í samræmi við upprunalegan tilgang þeirra.
4. Lífeyrissjóðirnir eru misjafnlega sterkir til að mæta verðbólguþróuninni með viðeigandi aðgerðum.
5. Uppbygging sjóðanna og tryggingarskuldbindingar eru ólíkar.
6. Erfitt er að benda á tekjustofna sem eru handhægir til að mæta þeim vanda sem við blasir.
Við lausn á vandamálum óverðtryggðu lífeyrissjóðanna virðist því þurfa að leita fleiri leiða en einnar. Ávöxtunarleiðinni eru ákveðin takmörk sett við ríkjandi verðbólguaðstæður, svo sem nú skal nokkuð rakið:
Miðað við verðvísitölu þjóðarframleiðslunnar var árleg verðbólga hér á landi tímabilið 1970 –1973 um 16.7% eftir því sem næst verður komist. Við þær aðstæður hefði árleg ávöxtun sjóðanna þurft að vera 24–25% ef vel hefði átt að vera. Árleg verðbólga áratuginn 1960–1970 mun hafa verið tæplega 13%. Þá hefði ávöxtunin þurft að vera 18–19% á ári. Raunveruleg ávöxtun sjóðanna umræddan áratug mun hafa verið á bilinu 6–8%. Óðaverðbólga 1973–1974 mun að öllum líkindum verða á bilinu 30–40%. Er einsýnt að við slíka verðbólgu er það verðtryggingakerfi ekki til sem íslenskir atvinnuvegir eða skattborgarar geta staðið undir, miðað við lífeyriskerfið í heild, að tryggja ávöxtun sjóðanna þannig að þeir gætu staðið við skuldbindingar sínar og veitt þann viðbótarlífeyri sem nægir til eðlilegs framfæris. Virðist sem endurskoða verði lífeyrissjóðakerfið í heild, verðtryggt sem óverðtryggt, og finna þann ramma sem er þjóðfélagslega hagkvæmur og jafnframt réttlátur gagnvart öllum lífeyrisþegum.
Eigi er unnt að fjalla svo um þetta mál að ekki sé reynt að skýra fyrir hv. alþm. með einföldum og skýrum dæmum, hversu mikill tekjumismunur er fólginn í eftirlaunagreiðslum úr verðtryggðum eða óverðtryggðum lífeyrissjóði. Skýrist þá einnig enn betur hversu lök staða lífeyrisþega óverðtryggðu sjóðanna er miðað við greiðslur úr þeim. Er þá ekki tekið tillit til greiðslna úr almannatryggingakerfinu.
Samkv. l. um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 29 frá 29. apríl 1963, 12. gr., er upphæð ellilífeyris opinberra starfsmanna hundraðshluti af launum þeim er á hverjum tíma fylgja starfi því sem sjóðfélaginn gegndi síðast. Opinberir starfsmenn og ríkið greiða í umræddan lífeyrissjóð með svipuðum hætti og gerist hjá öðrum lífeyrissjóðum, en ríkissjóður ábyrgist viðbótargreiðslur til að fullnægja greiðsluskuldbindingum samkv. fyrrnefndri lagagr.
Alþingi Íslendinga hefur til þessa leitt hjá sér að fjalla um vandamál þeirra þúsunda lífeyrissjóðsfélaga sem eru í óverðtryggðu lífeyrissjóðunum, á sama tíma sem það hefur í gegnum fjárlög aukið á misréttið gagnvart þegnunum. Hefur þetta viðgengist í fjölda ára. Sem dæmi má nefna að árið 1972 fékk lífeyrissjóður ríkisstarfsmanna 118 millj. kr. í aukaframlag frá ríkissjóði til þess að standa við skuldbindingar sínar. Árið 1873 var þetta framlag 205 millj. kr. Samkv. fjárl. 1974 var þetta framlag áætlað 246 millj. kr. Í fjárl. fyrir árið 1975 er áætlað að þessi greiðsla nemi 395 millj. kr., en vitað er að greiðslurnar fara yfirleitt langt umfram það sem gert er ráð fyrir í fjárlögum.
Eigi skal dregin í efa þörf gamalla opinberra starfsmanna fyrir þær lífeyrisgreiðslur sem þeir taka nú samkv. þessu kerfi. En til þess að sýna hvílíkt regindjúp er nú orðið á milli lífeyrisgreiðslna til lífeyrisþega í verðtryggðum lífeyrissjóði annars vegar og óverðtryggðum hins vegar, skal eftirfarandi dæmi tekið. Er þá miðað við að lífeyrir sé greiddur samkv. 9. launaflokki, taxta Verslunarmannafélags Reykjavíkur og sambærilegur launaflokkur tekinn hjá ríkisstarfsmanni:
Í fyrsta dæmi, sem ég hef tekið, er gert ráð fyrir að maður hafi byrjað að taka lífeyri hjá lífeyrissjóði sem greiðir samkv. 5 ára meðaltalsreglunni óverðtryggt þótt greiðslan hafi byrjað í upphafi árs 1969, og er þá gert ráð fyrir því að viðkomandi sjóðfélagi hafi verið 30 ár í þeim lífeyrissjóði sem um er að ræða. Þessi aðili hefði fengið í ársbyrjun 1969 9250 kr. á mánuði. Og sú upphæð tekur ekki breytingum þegar hún hefur einu sinni verið úrskurðuð. Á sama eða svipuðum launagrundvelli í opinbera kerfinu næmi lífeyrisgreiðsla úr lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins nú 38000 kr. á mánuði. — Svo að dæmið sé tekið enn frekar: Ef taka lífeyris hefði hafist í byrjun þessa árs, þ.e.a.s. í jan. 1974, og gert væri ráð fyrir 30 ára tímabili, þá næmi greiðsla úr óverðtryggðum sjóði nú 24 þús. kr. á mánuði og væri föst upphæð, en lífeyrir ríkisstarfsmanns væri nú 38 þús. kr. á mánuði og tæki áframhaldandi breytingum til hækkunar miðað við viðkomandi launaflokk. Ef launahækkanir yrðu t.d. 20% á næsta ári mundi staðan verða þannig: Lífeyrissjóðsfélagi óverðtryggða sjóðsins fengi áfram óbreytta krónutölu, 24000, en sjóðfélagi verðtryggða sjóðsins fengi 43200 kr., þ.e.a.s. 80% meira. Ef verðbólgan héldi áfram og yrði 20% þar næsta ár, yrði dæmið þannig að sá, sem tæki ellilífeyri úr óverðtryggðum sjóði, fengi helmingi minna en hinn sem tæki úr verðtryggða sjóðnum. Eftir því sem sagt sem verðbólgan eykst og laun starfsmanna hins opinbera hækka mun þetta bil breikka.
Í þessu felst ekki eingöngu að lífeyrisgreiðslur óverðtryggðu sjóðanna séu ófullnægjandi heldur er hér einnig á ferðinni þvílíkt ranglæti og misrétti að furðu gegnir að þessi mál skuli ekki hafa verið hér til umr. í hv. Alþ. Það er þess vegna nauðsynjamál og réttlætismál að komið verði í veg fyrir að hérlendis verði um að ræða tvær stéttir í ellinni, annars vegar eftirlaunastétt hinna ríku, lífeyrisþega opinbera kerfisins, og hins vegar ellilífeyrisþegar, þ.e.a.s. hinir fátæku lífeyrissjóðsfélaga óverðtryggðra lífeyrissjóða atvinnulífsins.
Fyrir tillögumönnum vakir að rækileg könnun verði gerð á því hvernig unnt er að bæta hag þessa fólks, þ.e.a.s. fólksins í óverðtryggðu sjóðunum, og það sem fyrst. Þær athuganir, sem gerðar hafa verið hingað til, bæði af vinstri stjórninni og síðustu viðreisnarstjórn, hafa ekki skilað tilætluðum árangri, og það er tími til kominn að Alþ. sjálft ásamt ríkisstj. og aðilum vinnumarkaðarins taki þessi mál fastari tökum og leysi þau á ábyrgan hátt og það sem fyrst því að við ríkjandi verðbólgu stórversnar staða þessa fólks með hverjum mánuði sem líður svo að ekki sé sagt með hverju ári sem líður.
Það virðist því miður ekki vera um margar leiðir að ræða til þess að leiðrétta það sem hér um ræðir. Verðtrygging á útlánum sjóðanna er ein leið til þess að ná þessu marki. En verðtryggingu eru takmörk sett ef ekki á að ofbjóða greiðslugetu lántakenda, hvort sem um er að ræða fyrirtæki eða einstaklinga. Verðtryggingaleiðina verður því að fara með gát, enda skilar hún sér hægar og seinna en sú leið sem ég leyfi mér að benda á hér á eftir.
Víða erlendis í því ríkjandi verðbólguástandi sem nú er, bæði í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum, þar sem lífeyrissjóðir eru mjög þekkt fyrirbrigði, hefur verið gripið til þess ráðs vegna mikillar verðbólgu að nota hluta iðgjalda og vaxtatekna umfram skuldbindingar til þess að hækka eftirlaunagreiðslur. Er nauðsynlegt að kannað verði til hlítar, hvort óverðtryggðir lífeyrissjóðir hérlendis verði ekki að fara þessa leið að einhverju marki ásamt verðtryggingu útlána. En til þess að það sé hægt, þarf að breyta reglugerðunum eða veita fjmrh. heimild til þess að reglugerðum verði breytt þannig að þessi leið verði fær. Flm. er ljóst að til langframa verður ekki úr neinum sjóði tekið meira en inn hefur komið í iðgjöldum og vöxtum. En eins og nú háttar mun íslenska lífeyrissjóðakerfið geta staðíð undir eftirlaunagreiðslum á grundvelli framangreindra leiða á meðan unnið er að því að kanna betur með hvaða hætti þessi mál verða tryggð og einnig meðan unnið er að því að koma þeirri skipan á í atvinnu- og efnahagslífi þjóðarinnar að verðbólguþróunin stöðvist og henni verði snúið til baka.
Á næstu áratugum mun árlega koma mun meira fé inn í lífeyrissjóðina í heild en rekstrarkostnaði og tryggingalegum skuldbindingum nemur. Geta kerfisins ásamt auknum tekjum vegna takmarkaðra verðtrygginga í útlánum sjóðanna til að greiða meira í ellilífeyri er fyrir hendi að ákveðnu marki. Sem dæmi mætti nefna að í sumum sjóðum er það þannig að litið meira en 10–15% af því, sem kemur inn í þá, fer til þess að borga tryggingalegar skuldbindingar eða standa undir rekstri sjóðanna, sem sagt 80–90% fara út í útlánakerfið, ýmist í sambandi við húseignir eða fasteignalán eða til atvinnuveganna, eftir því sem sjóðirnir kunna að ákveða.
Augljóst er að við vaxandi verðbólgu umfram ávöxtunarmöguleika hefur grundvellinum gersamlega verið kippt undan núverandi uppbyggingu lífeyrissjóða landsmanna. Þá er einnig augljóst mál að atvinnulífið er raunverulega að leggja fé inn á 30 ára bók sem skilar ekki þeim verðmætum aftur sem greiðendur og væntanlegir lífeyrissjóðsþegar gera kröfu til að fá. Að vísu njóta sumir kerfisins að hluta vegna lána sem sjóðfélagi getur fengið hjá sjóðnum út á fasteignir, en svo eru aðrir sem aldrei neyta þess réttar. Auk þess voru lífeyrissjóðir aldrei stofnaðir í þeim tilgangi að vera fyrst og fremst lánastofnanir, heldur voru þeir fyrst og fremst stofnaðir til þess að vera tryggingasjóðir fyrir fólkið í ellinni. Þeim mun fyrr sem ráðstafanir verða gerðar til að rétta hlut aldraðs fólks, útrýma misrétti og ranglæti í greiðslu ellilífeyris og koma þessum málum í viðunandi horf, þeim mun betra er það fyrir alla aðila. Virðing Alþ. og stjórnvalda mundi vaxa ef málefni aldraðs fólks á þessum sviðum sem öðrum nyti þess forgangs sem þessu heiðursfólki ber.
Í samningum verkalýðshreyfingarinnar s.l. vetur var lögð mikil áhersla á að málefni lífeyrissjóðanna yrðu tekin til meðferðar með þeim hætti sem ég hef nú á drepið. Þá er það einnig í stefnuskrá núv. ríkisstj. að stefnt skuli að því að leiðrétta það misræmi er ríkir í greiðslu ellilífeyrís, eins og það er orðað í stjórnarsáttmála. Með þessari þáltill. viljum við árétta þetta atriði sem fram hefur komið í viðræðum og samningum aðila vinnumarkaðarins vegna þess fólks sem býr í elli við svo lakan kost sem ég greindi frá áðan. Við leyfum okkur jafnframt að benda á nýja leið eða leiðir sem gætu hraðað framgangi þessa réttlætismáls, og við væntum þess að þessi mál fái meiri tíma og umhugsun á hv. Alþ. í framtíðinni.
Ég leyfi mér, herra forseti, að vona að þessi till. fái góðar móttökur og verði vísað til hv. fjvn.