06.11.1974
Neðri deild: 6. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í B-deild Alþingistíðinda. (58)

3. mál, Lánasjóður sveitarfélaga

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Eftir því sem lífskjör þjóðarinnar hafa farið batnandi á undanförnum árum, hafa þær óskir, sem landsmenn færa fram við yfirvöld, í áberandi mæli færst frá ríkinu og til sveitarfélaganna. Fólk var fyrir nokkrum áratugum upptekið við að eignast einhvers konar íbúðarhúsnæði og koma upp eins konar lágmarksumgjörð fyrir lífskjör sín, en hefur nú, eftir því sem efni hafa aukist, fengið áhuga á ýmsum lífsgæðum, sem falla undir sveitarfélögin. Í þessu sambandi get ég nefnt varanlega gatnagerð, sem mun vera hátt á blaði hjá svo að segja hverju einasta þéttbýlissveitarfélagi á landinu og fólk leggur nú mjög mikla áherslu á. Ég get nefnt stórvaxandi kröfur til skóla og fjölbreytni í skólahaldi, sem sveitarfélögin bera höfuðábyrgð á, þótt ríkið sé þar þátttakandi í kostnaði. Það mætti nefna margar mismunandi gerðir af félagslegum stofnunum, sem þörf er á, ekki síst vegna breyttra lifnaðarhátta,

þar sem konur vinna nú miklu meira utan heimilis en var fyrir skömmu. Það má nefna elliheimilin, sem gerðar eru vaxandi kröfur til, bæði þau heimili, sem hafa einhvers konar hjúkrunaraðstöðu, og hin, sem á ýmsan hátt eru nær eingöngu íbúðir. Þá má nefna bókasöfn og ýmsar aðrar menningarstofnanir, fleiri tegundir safna, listasöfn, sem rísa á mörgum stöðum um landið. Það má nefna íþróttaaðstöðu, og gæti ég þannig lengi haldið áfram. Áherslan er meiri og meiri á þær framkvæmdir, sem sveitarfélögin eiga fyrst og fremst að sjá um, frekar en ríkið sjálft.

Af þessu leiðir, að það er óhjákvæmilegt að bæta aðstöðu sveitarfélaganna til þessa að sinna þessum kröfum. Það er að vísu hægt að auka framlag ríkisins í hinar ýmsu framkvæmdir, en ég hygg, að flestir séu sammála um, að það sé farsælli og betri leið í langflestum tilvikum að rétta sveitarfélögunum hjálparhönd með því að útvega þeim tekjur og láta þau síðan sjálf annast þessar framkvæmdir að mestu eða öllu leyti, þannig að framkvæmdirnar geti verið í sem nánustu sambandi við vilja manna á hverjum stað og í þeirri röð, sem sveitarfélögin sjálf telja rétt.

Ég tel því, að mjög nauðsynlegt sé bæði að auka tekjur sveitarfélaganna og auka möguleika þeirra til að fá lán til allra þessara framkvæmda. Raddir um þetta hafa komið frá fundum samtaka sveitarfélaganna um allt land og mega beita einróma.

Í því sambandi sakar ekki að nefna það hér, af því að flestir þm, munu hafa haft kynni á haustdögum af aðalfundum sambanda sveitarfélaganna, að það hlýtur að vera orðið ákaflega aðkallandi að finna þeim lagalegan grundvöll og styrkja samböndin, veita þeim aukna viðurkenningu vegna þess að það er þegar farið að leggja á þau ýmiss konar verkefni, t.d. með grunnskólalögunum, sem getur reynst erfitt fyrir þau að sinna, ef þau fá ekki fastari lagalega stöðu.

Þörf sveitarfélaganna fyrir lán í ýmiss konar framkvæmdir kemur víða fram. Má t.d. nefna, að í Byggðasjóði hefur með hverju ári verið stórvaxandi fjöldi umsókna frá sveitarfélögum um lánveitingar í hinar og þessar framkvæmdir, og hefur verið misjafnt, hversu mögulegt hefur verið að sinna því, vegna þess að sjóðurinn hefur oftast nær einbeitt sér að því að hjálpa sveitarfélögunum til að halda atvinnulífi gangandi, þegar það hefur reynst erfitt.

Með þessum hugleiðingum vil ég aðeins lýsa því, að Alþfl. styður þetta frv. í meginatriðum sem að sjálfsögðu áskiljum við okkur rétt um einstök atriði, sem fram kunna að koma við meðferð málsins í nefnd.