12.12.1974
Sameinað þing: 22. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í B-deild Alþingistíðinda. (609)

Umræður utan dagskrár

Í því sérstaka tilviki sem hér er um að ræða, þá vil ég ekki segja neitt um það, ekki síst vegna þess hvað tíminn er takmarkaður, hvort þau skilyrði, sem sjútvrn. hefur sett, séu fyllilega í samræmi við lög eða ekki. Ég vænti þess þó að svo sé, en úr því munu dómstólar skera ef til kemur. Hitt vil ég taka fram, að miðað við þær sérstöku aðstæður, sem fyrir hendi eru í þeim byggðarlögum sem hér um ræðir, þá er málið þannig vaxið, að um er að ræða allmörg sjávarþorp:

Hólmavík, Drangsnes, Skagaströnd og Hvammstanga, sem hafa verið ákaflega illa sett hvað atvinnulíf snertir um langan tíma á undanförnum árum. Þarna hefur atvinnulíf rést við á allra síðustu árum fyrst og fremst vegna tilkomu rækjuvinnslunnar, og það er um að ræða það mikla hagsmuni fyrir þessi þorp, að verndun þeirra hagsmuna verður að ganga fyrir öðru. Á Blönduósi er atvinnulífið hins vegar ekki byggt á sjávarafla, heldur öðru. Við getum hugsað okkur það að þarna væri reyndar um að ræða þorp eða kaupstað sem stæði kannske enn þá traustari fótum atvinnulega en Blönduós gerir, hefði engu að síður ekki byggt á sjávarafla, en allt í einu kæmu fjármálamenn úr Reykjavík til að reisa á slíkum stað rækjuverksmiðju sem gæti haft ákaflega alvarlegar afleiðingar fyrir þorp, sem á rækjunni hafa byggt. Í slíkum tilvikum verða stjórnvöld að hafa rétt til að grípa inn í.

Ég vil að lokum taka það fram, að ég hygg, að það komi hins vegar mjög til greina, að vald í þessum efnum sé ekki eingöngu á hendi ráðh. eins og frv., sem hér hefur spunnist inn í umr., gerir ráð fyrir, en þetta vald verður að vera fyrir hendi hjá ábyrgum opinberum aðilum að mínu viti og það ber að nota.