13.12.1974
Efri deild: 20. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 722 í B-deild Alþingistíðinda. (631)
106. mál, löndun á loðnu til bræðslu
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Þetta frv. er um breyt. á l. frá 27. des. 1973, um löndun á loðnu til bræðslu.
1. jan. 1974 tóku gildi lög um löndun á loðnu til bræðslu. Þessi lög voru sett í framhaldi af lögum um skipulag á löndun á loðnu til bræðslu frá áramótum 1972 og var við undirbúning þeirrar lagasetningar tekið tillit til þeirrar reynslu sem fékkst af eldri lögum um skipulag loðnulöndunar á vertíðinni 1973. Á síðustu loðnuvertíð stunduðu 135 skip veiðar á móti 90 skipum árið áður. Af því leiddi að mun meiri erfiðleikar urðu í sambandi við loðnulöndun og einstakir aðilar reyndu að fara í kringum lögin eins og mögulegt var, sérstaklega þar sem þau náðu aðeins yfir löndun á loðnu til bræðslu en ekki til frystingar. Til þess að reyna að ráða bót á þessu er lagt til að 2. og 5. gr. gildandi l. verði gerðar nokkru fyllri en þær eru.
Jafnframt er lagt til að heimild verði veitt til að greiða kostnað af framkvæmd l. úr loðnuflutningasjóði, en innheimta sérstaks gjalds af hverri smálest hefur þann ókost í för með sér að hún veldur verksmiðjum sérstaklega aukinni bókhaldsvinnu, þar sem þær eiga að standa loðnunefnd skil á gjaldinu. Hins vegar er ekki lagt til að heimild til að innheimta gjaldið verði felld niður úr gildandi l., þar sem grípa yrði til þeirrar heimildar, ef Verðlagsráð sjávarútvegsins kynni að ákveða við verðlagningu einhverju sinni að loðnuflutningasjóður yrði ekki starfræktur.
Samkv. 4. gr. þessa frv. er lagt til að veitt verði heimild fyrir setningu reglna um löndun á loðnu til frystingar, ef samstaða er fengin um þær milli hagsmunaaðila, og er þetta gert í samráði við fulltrúa þeirra.
Það má segja að 4. gr. sé ekki mjög ákveðin, þar sem hér er um að ræða að setja reglur um löndun á loðnu til frystingar, „enda ríki um þær samstaða milli sölusamtaka hraðfrystihúsanna og samtaka útvegsmanna og sjómanna.“ Það var haldinn fundur í sjútvrn. með fulltrúum Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, fulltrúum Landssambands ísl. útvegsmanna, fulltrúum skipstjórafélaga og fulltrúum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og þar náðist samkomulag um þetta orðalag á 4. gr. Hins vegar ef n., sem fær frv. til meðferðar, þykir þetta ekki nógu ákveðið, þá auðvitað er hennar að taka ákvörðun um það, hvort hún vilji breyta þessu ákvæði á þann veg að reglur verði settar að fengnum till. sölusamtaka frystihúsanna og samtaka útvegsmanna og sjómanna. Það gæti því kannske orðið fyllra og ákveðnara, en á þessu stigi náðist ekki samkomulag sérstaklega við frystihúsaeigendur um annað orðalag.
Ég held að ég geti sagt það með góðri samvisku að sú reynsla, sem fékkst af þessum lögum á s.l. vertíð, hafi sannað að skipstjórnarmenn og sjómenn hafi sýnt afar mikinn og góðan samstarfsvilja. Hins vegar var um að ræða að það var farið fram hjá lögunum, sérstaklega hvað snerti frystihúsin og hagsmuni þeirra við loðnuverksmiðjurnar. Þess vegna er nú verið að leitast við að gera hér breytingu á til þess að koma á fastara og traustara skipulagi, og eftir því er mjög ríkt leitað, sérstaklega af fulltrúum sjómanna og útvegsmanna almennt.
Herra forseti. Ég legg til, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og sjútvn.