13.12.1974
Efri deild: 21. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 727 í B-deild Alþingistíðinda. (639)

109. mál, sjóður til aðstoðar við drykkjusjúka

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Ég fagna því sérstaklega að þetta þarfa og ágæta mál er komið hér til umr. á ný á Alþ. Ég vil einnig þakka hv. flm. þess fyrir að hafa á nýjan leik komið því hér á dagskrá.

Áfengismálin í heild hef ég ekki talið rétt að ræða hér. Ég vona svo sannarlega, að ég fái tækifæri til þess nú á næstunni með því að fylgja úr hlaði till. sem ég hef leyft mér að flytja í Sþ. ásamt 4 öðrum hv. þm. um nefndarskipun í þessum málum. Eitt skal þó aðeins undirstrikað. Alþingi Íslendinga getur ekki látið sem ekkert sé, þegar barna- og unglingafyllerí helganna eru eins yfirþyrmandi og raun ber vitni, þegar hanastélsboð heimahúsanna eyðileggja heimilisfrið og enda jafnvel á morðum, þegar skemmtanalífið einkennist framar öllu af ofneyslu áfengis, sem einnig hefur manntjón í för með sér. Þegar æ fleiri verða sjúklingar eða úrhrök mannlegs samfélags af völdum þess tekjustofns, sem er drjúgur búbætir íslenskum ríkisslóði.

Þetta frv. snertir einmitt hið síðast talda og það sem mikilvægast er, það er ekki til þess einvörðungu að hjálpa drykkjusjúkum, heldur til varnar gegn drykkjusýki. Hinar fyrirbyggjandi aðgerðir, sem nú eru æðstar á blaði í heilsugæslu og heilbrigðismálum okkar, þurfa þarna eins og annars staðar að sitja í fyrirrúmi. Ég fagna þeim ákvæðum frv. alveg sérstaklega.

Í tölunum um ágóða ríkisins af áfengissölunni er aðeins tæplega hálfur sannleikur sagður. Það vantar nefnilega frádráttarliðina, þá frádráttarliði, sem ég drap á áðan, og hver veit nema þeir færu ríflega upp fyrir tekjuliðina ef grannt væri skoðað. Ég fagna því að 10% af sjóði þessum skuli varið til styrktar þeim er reka áróður gegn áfengisneyslu eða til þess er a.m.k. ótvíræð heimild. Þeir aðilar hafa farið varhluta af fé til starfsemi sinnar. Og af því að útvarpslög eru sennilega hér næst á dagskrá hlýt ég að benda á sjónvarpið sem þann aðila sem daglega ætti að vara við þessu vandamáli í stað þess gagnstæða oft á tíðum, sbr. kvikmyndirnar okkar, sem nær allar eru með áfengi sem ómissandi líð á dagskránni.

Ég ítreka aðeins stuðning minn við frv. og vona svo sannarlega að með því sé stigið skref fram á við til viðnáms gegn því hrikalega vandamáli, sem tröllríður okkar þjóðfélagi í dag með hinum hörmulegustu afleiðingum.