13.12.1974
Efri deild: 21. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 734 í B-deild Alþingistíðinda. (643)
84. mál, útvarpslög
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Hv. frsm. meiri hl. menntmn. undraðist hve umr. um þetta mál væru lítt málefnalegar. Ég spyr nú hv. frsm.: Hvernig eiga umr, um þetta mál að verða fullkomlega málefnalegar, þegar málefnið er ekkert, tilefnið ekkert sem tilgreint hefur verið, en allir vita að ekki má nefna þá snöru í hengds manns húsi, sem er hin raunverulega ástæða og hv. frsm. nefndi vitanlega ekki heldur. En það ætti svo sannarlega að vera okkur óbreyttum þm. stjórnarandstöðunnar fagnaðarefni, þegar rösklega er að verki staðið og vinnubrögð n. eru skjót og góð. A.m.k. ætti ég persónulega að fagna því, þar sem ég á sæti í þrem þingnefndum hér í hv. d. og hef enn ekki þurft að ómaka mig á lengri fund í neinni þeirra en nemur 5 mínútum. Loks hefur sem sagt hæstv. ríkisstj. tekið fjörkipp sem um munar, enda stefnumarkandi stórmál á ferð sem vænta mátti.
Það hefur vægast sagt verið fátt um fína drætti hjá okkur þm. varðandi ný lagafrv. frá hæstv. ríkisstj. og m.a. þess vegna hef ég átt fulllétta veru í n. til þessa. Þó er skylt að geta þess, að merkast og fyrirferðarmest er einmitt frv. frá hæstv. menntmrh., þ.e.a.s. ekki þetta vitanlega, heldur frv. um fullorðinsfræðsluna. Einhvern veginn hafði mér skilst á þeim sjálfstæðismönnum hæstv., að margt þyrfti að lagfæra og mörgu að kippa í liðinn eftir óstjórn síðustu ára. En frv. þeirra eru mestallt gamlar lummur frá vinstri stjórninni, sem vitanlega ber að fagna, að þeir hafa þó haft vit á að taka upp. Raunar heyrist þessi ásökun um vonsku vinstri stjórnarinnar enn þá, þegar þeir eru að senda samstarfsmönnum sínum tóninn út af vinstri syndunum, og vekur oft furðu mína hvernig margir ágætir framsóknarmenn, sem bera ólíkt hlýrri tilfinningar í garð fyrri stjórnar en þessarar, fá þar setið undir þegjandi. Vekur raunar athygli, að þeir vilja alls ekki sitja undir þessari umr., nema einn varaþm, þeirra.
Rétt er þó þrátt fyrir verkleysi hér á þingi að minna á hve vel þeim stjórnarherrum sækist baráttan við dýrtíðina, hve sigursæl stefnan er í lækkun ríkisútgjaldanna margumtöluðu, að ekki sé talað um þá ótvíræðu staðreynd, hve verðstöðvunin er alger og fullkomin. Allt þetta ber vitanlega að meta og þakka á sinn hátt. En allt hverfur þetta þó greinilega í skuggann fyrir þessu máli málanna, sem hér er á dagskrá. Hér er hið brýnasta viðfangsefni á ferðinni. Losna þarf við ákveðna aðila úr ákveðnu ráði einu ári fyrr en lög ákveða. Manni dettur nú helst í hug — þó að það sé næstum syndsamlegt — óróleg samviska eða eitthvað þess háttar. Ja, miklir menn og voldugir að áhrifum eru þeir Njörður Njarðvík og Ólafur Ragnar og greinilega hættulegri en svo að hættandi sé á að hafa þá þetta eina ár til viðbótar í forsjá Ríkisútvarpsins. Öllu meiri heiður og traust er erfitt að sýna mönnum en það, að sérstök lög skuli þurfa að hespa af í grængolandi hvelli til að losna við áhrifavald þeirra á sama tíma og öll mál ganga í rólegheitum hér á þingi.
Ég hef nú eiginlega verið að vona að málefnafátæktin stafaði af því hér á hv. Alþ., að íhaldinu gengi svolítið illa að kenna Framsókn hinn rétta hægri gang í öllu, a.m.k. inni á þingi, þó að utan þess hafi það tekist svo ágætlega sem raun ber vitni og einstök samningsafrek hæstv. utanrrh. sanna. En þetta mál á sem sagt að fá þá réttu hægri vængi og fljúga á þeim gegnum þingið og fylgir þar arnsúgur mikill, svo sem vænta má af stórmáli.
Hæstv. forseti þessarar d. virðist eftir nál. að dæma ekki einu sinni fá að vera með í þessu listflugi, enda sennilega heldur ófús þess, ef miða á við orð hans hér á dögunum, alvöruorð, rækilega rökstudd, sem áttu ólíkt meiri rétt á sér en flumbruháttur meiri hl. menntmn. Og nú er málið komið hér til 2. umr. án þess að minni hl. hafi átt þess kost að gera í n. grein fyrir afstöðu sinni og málsmeðferð. Er nema von að menn spyrji: Hvað skyldi standa til að gera í útvarpsráði úr ríkisfjölmiðlum? Það hlýtur að standa mikið til. Sumum hefur flogið í hug andaktin margumrædda í lok hverrar dagskrár, sem vondir menn hafa ekki viljað leyfa. Mönnum hefur jafnvel flogið í hug að sameina ætti þessa andakt guðskristninnar annarri heilagri kenningu, trúnni á NATO, og þá mætti hugsa sér að launaður erindreki þessara samtaka hér á landi, sem er eitthvað tengdur útvarpsráði, fengi einkarétt á andaktinni og gerði þá minna til þó að guðskristnin gleymdist af og til, ef þeim mun betur væri fyrir hinni séð. En það er von að mönnum detti ýmislegt í hug. Siðbótin hlýtur að verða afgerandi og afdráttarlaus, og þá þykir sjálfsagt rétt að hefja hana á jólunum, sér í lagi með tilliti til þess að ötulir kaupahéðnar þessa lands hafa gert þessa einföldu fagnaðarhátíð jafnaðar og bræðralags að uppskeruhátíð ágóðans. Við skulum vona að uppskera siðbótarinnar í útvarpsráði verði ekki síðri þeim, sem hér að standa, svo að menn öðlist þá fyrri sálarró.
Annars er lítil þörf endurtekningar þess, sem ég sagði hér á dögunum. Morgunblaðið hefur blessunarlega og opinskátt staðfest það, sem ég sagði þá um frumástæðu þessa frumvarpsflutnings. Og ekki hefur þögn Tímans verið síðra sönnunargagn. Allt ber því að sama brunni. Hér eru fyrst og fremst að verki öfl sem gjarnan kenna sig, eins og hv. þm. Ragnar Arnalds sagði, við búsmæður í Vesturbænum og fleiri viðlíka gáfnafyrirbæri, fyrirbæri eins og jafnvel birtast í formanni L.Í.Ú., sem hélt tímamótaræðu um útvarpsmál m.a. norður á Akureyri á dögunum, en ég verð svo sannarlega að hlífa nú af mannlegri vorkunnsemi eftir þá rassskellingu sem hann fékk frá sjómönnum Íslands, verðuga og réttmæta.
Hæstv. menntmrh. er vitanlega ekki viðstaddur þessar umr. Ég skil það mæta vel, samviskan er ekki góð. Ég verð samt að biðja flokksbræður hans að skila því til hans, að enn biðji ég hann þess að hann láti ekki þau öfl, sem þarna eru á ferðinni, villa sér sýn. Þetta frv. er almennt fordæmt, það ber allan keim þeirra vinnubragða, sem hreinlega sæma ekki svo ágætum manni sem hæstv. ráðh. er. Ég skal því enn sem fyrr skora á hann að láta kyrrt liggja, svæfa þetta frv. nú í kyrrþey og vekja það ekki til lífs á ný. Það væri honum líkara en þetta frumhlaup.