13.12.1974
Efri deild: 21. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 736 í B-deild Alþingistíðinda. (644)

84. mál, útvarpslög

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Það vekur eðlilega athygli að hæstv. menntmrh. er ekki staddur við þessa umr. þrátt fyrir það þótt frsm. hv. menntmn. Ed. útskýrði það lystilega hversu þetta frv. að l. um ríkisútvarpið væri beint framhald af merkilegum fyrri tilraunum til þess að finna hina einu sönnu aðferð til að velja gott útvarpsráð. Um tíma við upphaf umræðnanna var heldur enginn framsóknarmaður viðstaddur þessa umr., og rifjaðist þá upp fyrir mér á ný sú staðreynd hversu það hefði verið sláandi við umr. um stjfrv. hér á Alþ. í vetur að framsóknarmenn hafa forðast að taka þátt í þeim. Þeir hafa látið eins og það væri nóg að Ólafur Jóhannesson myndaði þessa ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar, þótt þeir þyrftu ekki líka að standa upp á Alþ. og verja hana.

Frv. það, sem hér hefur verið lagt fram nú frá hv. menntmn., hefur fengið þar sína skrýtilegu meðferð, sem e.t.v. er við hæfi frv., þó að hún sé tæpast við hæfi þeirrar virðingar sem Alþ. hæfir, — þetta frv. var tekið til meðferðar í menntmn. þegar einungis fylgismenn þess gátu sótt fundinn, eins og áður hefur verið að vikið hér. Það var samþ. úr n. án þess að leita umsagnar réttra aðila, svo sem útvarpsstjóra, e.t.v. Starfsmannafélags útvarpsins og stjórnar Blaðamannafélags Íslands. Ekkert samráð var haft við þá menn sem unnu að samningu þeirra útvarpslaga sem hér var verið að breyta. N. lagði ekki á sig neina vinnu til að kanna hvort lagabreytingin væri til bóta eða til hins verra, þrátt fyrir það þótt hæstv. forseti þessarar þd., Þorv. Garðar Kristjánsson, sem um árabil hefur átt sæti í útvarpsráði, þrátt fyrir það þótt hann hefði með gildum rökum gert grein fyrir því hvílíkt rannsóknarstarf og hvílík alúð var lögð í samningu þeirra laga sem enn áttu eftir að fá að standa um sinn. Vinnubrögð n. sýna raunar ljóslega að með þessu frv. á aðeins að klóra yfir innanflokksskyssur í flokki hæstv. menntmrh., samtímis því sem hæstv. menntmrh. lætur að vilja Morgunblaðsklíkunnar í Sjálfstfl. um þess háttar hreinsun hjá Ríkisútvarpinu sem hæfir pólitísku siðgæði nýrrar afturhaldsstjórnar. Hér er sem sagt boðað nýtt tímabil, sem við gætum kallað tímabil Moggaþjónustu Tímaklíkunnar. Það bendir margt til þess að störf Alþ. á næstu missirum kunni að einkennast býsna mikið af þjónkun Framsfl. við andstæðinga kjósenda sinna, við hina hlaupkenndu stefnu flokksins.

Frv. um breytingu á útvarpslögunum, sem hæstv. menntmrh, réttlætir með því að útvarpsráð eigi að endurspegla styrkleikahlutföll á Alþ., er rétt einn vottur þessarar undarlegu stefnu. Breyting á styrkleikahlutföllum á Alþ. hefur ekki orðið nein hvað útvarpsráð varðar síðan í það var kosið. Við umr., sem þegar hafa orðið um frv. í þessari hv. deild, hefur raunar komið í ljós að núv. útvarpsráð nyti nú meiri þingfylgis en þegar það var kosið, ef ekki kæmi til breytt stefna þingflokks Framsfl. Þar við bætist svo hitt, að lögum samkvæmt er útvarpsráði alls ekki ætlað að endurspegla styrkleikahlutföll á Alþ. Frv. endurspeglar að vísu dálitið. Við gætum kallað það, sem það endurspeglar, dálítið grátbroslega hentistefnu Framsfl. Ég get, vegna þess að það snertir á vissan hátt orsakirnar fyrir því að nú á að hreinsa til í útvarpsráði, nefnt eitt lítið dæmi um það hvernig afleiðingarnar af þessari hentistefnu blasa við okkur nær daglega þessar vikurnar. Í fyrradag lá á borðinu mínu hér í þessari hv. d. sendibréf frá manni nokkrum, sem kvaðst heita Nguyen Phoung Thiep og vera sendiherra Vietnam með aðsetri í Þýskalandi. Hann þakkaði mér í þessu bréfi kærlega stuðning íslenskra alþm. við kjör hans í stjórn Alþjóðaþingmannasambandsins. Ekki kannaðist ég við að eiga neinar sérstakar þakkir skildar í sambandi við kjör þessa manns í virðingarstöðu né heldur bar ég kennsl á hann að öðru leyti en því að ég þóttist þó sjá af ættarnafni hans að hann mundi vera einn af fjölmörgum ættingjum Thieps þess sem Bandaríkjastjórn hefur fyrir lepp í Saigon í Suður-Víetnam. Svo sá ég mynd af því í blöðunum í fyrradag hvar þessi silkiklæddi herramaður var að afhenda skilríki sin sem sendiherra á Íslandi fyrir lýðveldið Suður-Víetnam, landið sem hefur mátt þola fleiri tonn af sprengjum á hvern ferkílómetra, fleiri eiturlitra á hvern hektara ræktaðs lands en nokkurt annað ríki í heiminum, hvort tveggja frá bandamönnum okkar, ameríkumönnum. Ein af þeim sökum, er meiri hl. sá í útvarpsráði, sem Framsfl. vill nú víkja frá, er oftast borinn í Morgunblaðinu, er að opna ríkisfjölmiðlana fyrir gagnrýni óhlutdrægra aðila og þá helst svía á óhæfuverkum bandaríkjamanna í Víetnam og á það undarlega siðferði sem birtist í því að leppar árásarríkisins skuli sitja í ráðherrastólunum í Saigon og koma fram fyrir hönd víetnömsku þjóðarinnar út á við. Þannig má segja að heimsókn Nguyens Phoung Thiep sendiherra til Íslands nú standi í nokkru samhengi við frv. Vilhjálms Hjálmarssonar, hæstv. menntmrh., um kjör nýs útvarpsráðs, sem henti betur til að endurspegla undirlægjuhátt ráðh. Framsfl. við sjónarmið Morgunblaðsklíkunnar og málstað þess herveldis, sem utanrrh. Framsóknar hefur nú tryggt herseturétt á Miðnesheiði um fjölda komandi ára. Má því að vísu segja að þetta dæmafáa plagg, þetta frv. hæstv. menntmrh. sé hæfilegur virðingarvottur af hálfu ríkisstj, við Nguyen þennan Phoung Thiep sem nú gistir Ísland í boði framsóknarráðherra.