13.12.1974
Neðri deild: 19. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (659)
15. mál, happdrættislán ríkissjóðs vegna Norðurvegar og Austurvegar
Lúðvík Jósepsson:
Herra forseti. Ég á sæti í fjh.- og viðskn. sem hafði með þetta mál að gera, og ég tók þátt í að gera samkomulag um framgang þessa máls á þeim grundvelli sem hér liggur nú fyrir. Ég tel að eftir atvikum sé hér um eðlilega lausn að ræða. Ég hafði sagt það fyrr í umr. um þetta mál að ég teldi mjög eðlilegt að áfram yrði haldið fjáröflun samkv. þessari leið sem hér er rætt um, þ.e.a.s. að afla Vegasjóði tekna með útgáfu happdrættisskuldabréfa. Og það hefur komið í ljós að ekki er óeðlilegt að gera ráð fyrir því að fjáröflun að þessari leið verði í kringum 500 millj. kr. á ári á næstu árum miðað við þá reynslu sem fengist hefur af þessari fjáröflun til þessa.
Ég hafði þá einnig lýst því yfir sem minni skoðun, að ég teldi æskilegt að þessari fjáröflun yrði sérstaklega beint í að fullgera hringveginn í kringum landið, ekki aðeins þann hluta af hringveginum, sem liggur um Skeiðarársand, sem athyglin hefur beinst að til þessa, heldur yrði því verki haldið áfram að gera að góðum vegi hringveginn um allt landið. Þá er auðvitað enginn vafi á því, að þau verkefni, sem þar hljóta að verða næst og eru stærst, eru að gera góðan veg frá Reykjavík til Akureyrar um Vesturlandið og síðan að gera á sama hátt góðan veg frá Reykjavík um Suðurlandið til Austurlands.
Ég held að það geti varla verið mikill ágreiningur um að það er eðlilegt að leggja höfuðáherslu á þessa tvo þætti á fyrsta sprettinum. Það er mín skoðun að síðan eigi að sjálfsögðu að halda áfram með sömu fjáröflunarleið og ljúka við allan hringinn og þá yrði að sjálfsögðu stefnt að því að gera einnig sæmilega góðan veg frá Egilsstöðum á Austurlandi og til Akureyrar.
Ég tel að ekki sé réttileg sú skipting sem samkomulag varð um á þessu fé, þar sem gert er ráð fyrir að 2/3 hlutar renni til Norðurvegar, sem hér er nefndur, þ.e.a.s. vegarins frá Reykjavík til Akureyrar um Vesturland, og 1/3 til Austurvegar, en þannig nefnum við veginn frá Reykjavík um Suðurland, austur til Austurlandsins og til Egilsstaða. Ég játa að það er um miklu meiri umferðarþunga nú að ræða á leiðinni frá Reykjavík til Akureyrar vestur um og verður eflaust um langa tíð, og þá er ekki óeðlilegt, eins og málin standa nú, að þangað renni allmiklu meira fé.
Ég vil taka það fram í sambandi við það samkomulag, sem hér hefur verið gert, að ég fagna því að þetta samkomulag hefur náðst og tel að hér sé stefnt í rétta átt. Það ætti með þessu að vera hægt að þoka áfram þessum stóru verkefnum á allmyndarlegan hátt, þó að það sé að vísu augljóst að hér skortir enn á allmikið fé til viðbótar við þetta í báða þessa stóru áfanga.
Það er rétt, sem hér kom fram hjá hv. frsm. fjh.- og viðskn. að það komu upp nokkuð mismunandi sjónarmið í n. um það, hvort rétt væri að halda þannig á málum að gera útboð á þessum happdrættisskuldabréfum sér í lagi fyrir Norðurveg og sér í lagi fyrir Austurveg, eða hvort hér yrði um sameiginlegt útboð að ræða hverju sinni og síðan aðeins skiptingu. Þetta er opið samkvæmt frv. og verður auðvitað að ákveðast á sínum tíma af þeim, sem framkvæmdavaldið hafa, og þá verður að vænta þess að valin sé sú leið sem eftir nána athugun telst vera hagkvæmust. En sem sagt hlutfallið í fjáröfluninni er ákveðið með þessu samkomulagi.
Ég vil svo taka það fram, að að sjálfsögðu er ætlunin sú að það verði reynt að leggja bundið slitlag á þessa vegi eftir því sem hagkvæmt þykir og fært þykir fjárhagslega á hverjum tíma, jafnt á Austurveginn sem Norðurveg, frá Reykjavík og norður. Þar verður fjárhagur að sjálfsögðu að ráða og allar aðrar aðstæður. En með þessu frv. er að sjálfsögðu ekki slegið neinu föstu um það hvernig staðið verður að þeim framkvæmdum, hvaða kaflar verði sérstaklega ákveðnir fyrst í sambandi við bundið slitlag. Það verður eins og ég segi að fara eftir aðstæðum að mínum dómi.
Það er enginn vafi á því, að kaflar á þeim veg, sem við nefnum Austurveg, skipta hér mestu máli. Það eru þeir kaflar, sem við höfum minnst á áður í þessum umr., þ.e. að gera veginn miklu traustari um Suðurlandsundirlendið, um Rangárvallasýslu og sömuleiðis að lagfæra vegina allverulega á Mýrdalssandi, leggja veg alveg að nýju um Breiðamerkursand og alveg nýjan veg í stað vegarins yfir Lónsheiði um Hvalnesskriður og síðan að sjálfsögðu þá vegarkafla frá Hvalnesskriðum og austur að Egilsstöðum þar sem vegakaflarnir eru allra veikastir, þola augljóslega ekki mikla umferð. En þannig er einmitt ástatt þar nú um ýmsa kafla.
Ég skal ekki tefja hér umr, frekar. Ég vildi aðeins láta það koma fram að ég hef staðið að þessu samkomulagi og tel að hér sé um mikilsvert mál að ræða og beri að standa að framkvæmdum í þessum efnum þannig, að við höfum fyrst og fremst í huga þessa miklu vegagerð, að gera góðan hringveg allt í kringum landið, og þá að sjálfsögðu að standa þannig að verkinu að þeir kaflarnir verði teknir fyrst sem mesta þýðingu hafa, eins og ég tel að þetta samkomulag raunverulega miði að.