13.12.1974
Neðri deild: 19. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 752 í B-deild Alþingistíðinda. (660)

15. mál, happdrættislán ríkissjóðs vegna Norðurvegar og Austurvegar

Tómas Árnason. Herra forseti. Ég er einn af fimm þm. sem sæti eiga í fjh.- og viðskn. og stend að því samkomulagi sem hér hefur verið gert um sérstaka fjáröflun til hringvegarins frá Akureyri til Reykjavíkur um Suðurland og austur að Egilsstöðum. Hér er um meiri háttar fjáröflun að ræða og talsvert merkur atburður, ef Alþ., sem við vonumst til, samþykkir þetta mál, því að gert er ráð fyrir sérstakri fjáröflun að upphæð 2000 millj. kr. á næstu 4 árum. Ég hefði heldur kosið, að þessi fjáröflun hefði verið tengd við hringveginn hreinlega, og lét þá skoðun í ljós þegar við vorum að ræða þetta mál í n. En það hefur náðst fullt samkomulag um að haga þessari tillögugerð á þann hátt sem greint er frá á þskj. 17 og 135 og að því leyti til er málið útrætt af minni hálfu hvað það snertir.

Það getur verið spurning um hvaða aðferðir á að nota til að afla fjár til vegaframkvæmda og það getur vaknað spurning um það, hvort hægt sé að telja svona fjáröflunaraðferð vísa. Þetta verða menn að reyna að meta miðað við það, sem hefur skeð á þessum vettvangi. Það er náttúrlega ekki gefið mál að hægt verði að selja slík happdrættisskuldabréf, eins og hér er fyrirhugað að selja, fyrir 500 millj. á hverju ári, en við vonum að það verði reyndin. Ef við lítum til baka til þeirra tveggja tilfella þar sem slíkt hefur verið gert áður, þá gerðist það að happdrættisskuldabréfin seldust upp á undraskömmum tíma og það var mjög mikil eftirspurn eftir þeim, bæði þegar um fjáröflunina var að ræða til Skeiðarársands og einnig um Inndjúpsfjáröflunina. Þess vegna verðum við að vona að þessi fjáröflun verði, þegar til kemur, vís, og á þeim grundvelli er málið náttúrlega byggt.

Það hefur verið rætt dálítið almennt um þessi mál hér í umr. Ég hef áhuga á því að gera það, en vegna þess að vegáætlunin kemur til afgreiðslu og meðferðar í þinginu eftir áramótin og þá gefst nægur tími til þess að koma á framfæri almennum skoðunum um þessi efni mun ég nú stytta mitt mál.

Það er í raun og veru aldrei lögð of mikil áhersla á hverja þýðingu það hefur að hraða uppbyggingu vegakerfisins í landinu. Það hefur sýnt sig á undanförnum árum og áratugum að sú breyting, sem orðið hefur við uppbyggingu vegakerfisins, þó að það sé ekki nærri nógu fullkomið í dag, — sú breyting, sem orðið hefur í landinu hefur í raun og veru skapað hreina — ég vil segja byltingu á sviði atvinnumála og hreina byltingu í þjóðlífinu á ýmsan annan hátt. Það er nú hægt að koma við aðferðum í atvinnulífi sem voru óhugsandi og eru óhugsandi án þess að vegakerfi sé, jafnvel eins og það er í dag, að ekki sé talað um hvernig hægt væri að hagnýta vegakerfið síðar meir, þegar það hefur verið fullkomnað eins og stefnt er að.

Það hefur veríð margtekið fram í umr. um þetta mál að við austfirðingar höfum sérstakan áhuga á alveg ákveðnum vegaköflum, eins og kom fram í ræðu hv. frsm. Það er Mýrdalssandurinn og að bæta veginn hér austur um Suðurland það er Breiðamerkursandinn, það er veginn fyrir Lónsheiðina eða fyrir Þvottár- og Hvalnesskriður. Þetta eru þeir vegakaflar sem við höfum hvað mestan áhuga á að úrbætur verði gerðar á hið fyrsta, vegna þess að þetta eru allt saman verulegir umferðartálmar ef nokkuð ber út af. Markmiðið er að gera fullkominn veg með varanlegu slitlagi allan hringveginn og þá kemur einnig til tenging Vestfjarða við hringinn. Við vitum nú orðið nokkurn veginn hvers konar vegi við viljum fá. Það hefur orðið alger bylting í þessum málum á undanförnum árum frá því sem áður var. Við finnum það vel t.d. í kringum höfuðborgina hversu mikla þýðingu það hefur að fá í not fullkomna vegi af þeirri gerð, sem við stefnum að því að gera. Sú bylting, sem átt hefur sér stað hér t.d. á Reykjanesi með tilkomu Reykjanesvegar, og þau áhrif, sem vegagerðin austur fyrir fjall hefur haft á, — ég vil segja bæði atvinnulíf og á mörgum öðrum sviðum, slíkt fer yfirleitt ekki fram hjá neinum manni. Hér er um að ræða málefni sem væntanlega mun stuðla að því að myndarlegur áfangi náist að því markmiði að gera veg kringum landið með varanlegu slitlagi.