13.12.1974
Neðri deild: 20. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 761 í B-deild Alþingistíðinda. (676)
111. mál, Hitaveita Suðurnesja
Benedikt Gröndal:
Hæstv. forseti. Eins og orkumálum er komið í heiminum hljótum við íslendingar að undrast það að við skulum ekki á liðnum áratugum hafa gert miklu meira átak til að hagnýta möguleika lands okkar á þessu sviði. En það er auðvelt að vera vitur eftir á og þýðir því ekki um það að fást og mætti jafnvel geta þess að átök eins og hitaveitan í Reykjavík eiga sér fáa líka í veröldinni.
Engu að síður er rík ástæða til þess, eins og nú er komið málum, að við leggjum á það áherslu framar öllum öðrum verklegum framkvæmdum að hagnýta orkulindir landsins og reyna að spara þjóðinni þá milljarða sem hún verður að borga fyrir innflutt eldsneyti. Á þessu sviði er enginn vafi á því að sameiginleg hitaveita fyrir Suðurnes öll er eitt af stærstu málum, og ég vil lýsa yfir fyrir hönd míns flokks, að við teljum þetta vera stórmál og munum veita því brautargengi og stuðla að því, eftir því sem við getum að það verði afgreitt eins skjótlega og unnt er hér í þinginu.
Ég vil einnig taka það fram út af mjög ákveðnum skoðunum og till. sem við höfum flutt um eignarrétt lands og landsnytja, að við gerum okkur vonir um það að ekki komi til neinna vandræða á því sviði í sambandi við þetta mál. Það eru allar nauðsynlegar heimildir í þessum lögum til þess að þjóðarheildin fái vilja sínum framgengt ef þess þarf, en að sjálfsögðu vonast allir til þess að það takist að ná samkomulagi, þó að hinn sé að okkar hyggju ekki hægt að neita, að þessum málum verður að gefa gaum á landsmælikvarða og skipa þeim í heild til frambúðar. Við teljum þetta vera mikið hagsmunamál fyrir fjölmenn byggðarfélög og viljum láta í ljós von okkar um að framkvæmd þessa máls verði með þeim hraða sem mestur geti orðíð og það gangi í alla staði vel.