13.12.1974
Neðri deild: 20. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 769 í B-deild Alþingistíðinda. (687)
76. mál, nýting innlendra orkugjafa
Eyjólfur K. Jónsson:
Herra forseti. Mig langar að leggja nokkur orð í belg í þessum umr., sem hér hafa farið fram að undanförnu, þó að nú sé að vísu nokkuð langt um liðið síðan þeir flm. töluðu um þetta mál og síðasti ræðumaður hafði ekki lokið sinni ræðu, þegar málinu var frestað og kemur nú aftur á dagskrá. Hvort sem orð mín verða nú til þess að hann hefji síg til flugs eða ekki, þá finnst mér ekki hjá því komist að vekja athygli á þessum sérstæðu umr., sem hér hafa farið fram. Það hefur nefnilega ekki getað hjá því farið, að andstæðingar Alþb. hefðu lúmskt gaman af því innanflokksuppgjöri, sem þm. þessa flokks hafa verið að setja hér á svið á hinu háa Alþ. síðustu daga, og einna mest hefur þar kveðið að hv. þm. Jónasi Árnasyni, enda mun hann aðalhöfundur þeirrar „tragikomedíu“, sem flutt hefur verið.
En hv. þm. Lúðvík Jósepsson bar þó svo sannarlega uppi einn þáttinn hér síðast, er þetta mál var til umr. og hann flutti fyrri hluta þeirrar ræðu, sem hann nú var að ljúka. Hann kvaddi sér hljóðs, þegar hv. 1. flm. till., Magnús Kjartansson, hafði talað sig dauðan, eins og það er kallað, og flestum virtist raunar málið þá vera útrætt. En hv. þm. Lúðvík Jósepssyni fannst allt annað. Hann greip til þess í ræðu hér að lýsa furðu sinni á því, að öllum væri ekki fullkunnugt um afstöðu ráðh. Alþb. í fyrrv. ríkisstj. til byggingar málmblendiverksmiðju í Hvalfirði. „Ég hef allan tímann verið á móti byggingu þessarar verksmiðju“, sagði þessi hv. þm, orðrétt og vék síðan að afstöðu hins ráðh. og sagði: „Hann taldi, að rétt væri að fara í þessa framkvæmd“, orðrétt einnig. Síðar í ræðu sinni nefndi hann þetta fyrirtæki orðrétt „einstaklega vitlaust fyrirtæki“. Og það leyndi sér ekki, til hvers refirnir voru skornir. Þm. var á einkar „smekklegan“ hátt að koma höggi á félaga Magnús Kjartansson, hv. þm. Það var öllum ljóst. Og auðvitað gerði hann það, þegar sá siðarnefndi gat ekki tekið til máls. Og hv. þm. Jónas Árnason, meginhöfundur þessa þáttar, sem hér hefur verið fluttur í fleiri málum en einu, reyndar þrem, ræddi málin þó á meðan andstæðingur hans, hv. þm. Magnús Kjartansson, gat tekið til máls. Hann sagði í ræðu sinni: „Við höfum alltaf staðið gegn byggingu þessarar verksmiðju, Alþb.- menn.“ Þetta er einnig orðrétt, enda þótt öllum landslýð sé ljóst, að meginhvatamaður framkvæmdarinnar var annar ráðh. þeirra. En síðan kom í ljós, að honum, þ.e.a.s. hv. þm. Magnúsi Kjartanssyni, orðrétt einnig eftir einum þm.: „ leyfðist að hafa rangt fyrir sér innan Alþb.“ Þetta var raunar hv. þm. Stefán Jónsson, sem þessi orð lét falla, er hann lét ljós sitt skína um þessar deilur, sem mjög eru háværar innan Alþb. og illvígar. Þeir geta ekki leynt þeim innan sinna vébanda, heldur þurfa jafnvel að koma með þær hingað inn í Alþ.
Það er nú svo, að hv. þm. Magnúsi Kjartanssyni leyfist að hafa rangt fyrir sér innan Alþb. Raunar er þetta liðin tíð. Honum leyfist ekki lengur að hafa sína skoðun á þessu máli innan Alþb. Hann hefur á nýafstöðnum dandsfundi Alþb. verið látinn ganga undir það jarðarmen að flytja sjálfur fordæmingartill. á verk sin í ríkisstj. í þessu máli. Að öðrum kosti skyldi honum sýnt í tvo heimana. Þessi fyrrv. ráðh. hefur vafalaust vænst þess, að þar með væri hann búinn að kaupa sér frið flokksmanna sinna og þyrfti því aðeins út á við, en ekki innan flokksins, að standa í ströngu til varnar þeirri stefnu, sem hann fylgdi í sinni ráðherratíð. En þar sást honum yfir þau fræði, sem hann kunni þó svo vel hér fyrr á árum og ætti að þekkja allra manna best. Í röðum kommúnista er nefnilega yfirleitt ekki látið við það sitja að knésitja þann, sem hefur skrikað á línunni, flatur skal hann vera. Og dag eftir dag í máli eftir máli er hv. þm. Magnús Kjartansson niðurlægður af flokksbræðrum sínum, þeirri deild Alþb., sem hv. þm. Lúðvík Jósepsson stjórnar. Og eins og menn vita, eru helstu „korporalar“ hans einmitt þeir hv. þm. Alþb., sem hér hafa tekið þátt í umr. um orkumál og orkuflutning og önnur þau mál, þar sem innanflokkserjur Alþb. hefur borið á góma, þeir hv. þm. Jónas Árnason, Stefán Jónsson og Ragnar Arnalds. Sá síðast nefndi vakti rækilega athygli á vanrækslusyndum fyrrv. orkumálaráðh. gagnvart norðlendingum, þegar hann flutti hér fsp. um byggðalínu og hv. síðasti ræðumaður sat sig ekki úr færi um að vekja einnig á því athygli, hverjir erfiðleikar norðlendinga væru í raforkumálum eftir stjórn hv. þm. Magnúsar Kjartanssonar á þeim málum; þegar hann sagði, að byggðalínan yrði til einhverra bóta, og réttilega, að það kæmi seint. Þrír mánuðir, sem hann var að tala um, að það frestaðist. Það var ekki það, sem hann átti við. Hann var að benda á, að úrlausn málefna norðlendinga hefði veríð frestað í 3 ár og rúmlega það og ekkert í þeim málum gert. En hann kann lagið á því að koma höggi á andstæðing sinn.
Þessar umr. koma í kjölfar upplýsinga nokkurra forustumanna norðlendinga í sjónvarpsþætti, þar sem um orkumál þessa fjórðungs var farið þeim orðum, að ástandið væri geigvænlegt, hörmulegt og ekkert varaafI væri til. Þessar umr. rifja raunar upp þær staðreyndir að fyrrv. orkumálaráðh, hindraði tvær virkjanir norðanlands, sem fullhannaðar voru og hefðu getað brúað bilið — og takið eftir: þær hefðu meira að segja getað borgað sig að fullu á því tímabili, sem líður, miðað við það verð, sem nú er á olíu, ef hv. fyrrv. orkumálaráðh. hefði ekki hindrað þessar framkvæmdir. Að vísu heimilaði hann seint og um síðir virkjun í Fljótaá í Skagafirði, litla virkjun en mjög hagstæða, en hana dró hann engu að síður um 2 ár, og ekki var leyft að samtengja Skeiðsfossvirkjun við Skagafjarðarveitu, þótt veruleg.t afgangsafl væri við Skeiðsfoss og hefði strax verið hægt að nota í stað olíukeyrslu. Sú samtenging er enn ekki komin. Það eru ekki tugir millj., að ég hygg, heldur hundruð, sem með þessum hætti fóru í súginn, og skal ég ekki rekja þá sorgarsögu og hef þá hliðsjón af því, að hv. þm. Magnús Kjartansson getur ekki talað oftar í þessum umr., en þess vegna vil ég ekki bera hann sökum, hvorki beint né óbeint og síst á þann hátt, sem Lúðvík Jósepsson og hans félagar gera, þann lævísa hátt, hinir svokölluðu samherjar hans. (LJós: Er ekki verið að gera þetta? Vissi þm. ekki, hvað hann var að segja?) Vissi hann ekki, hvað hann var að segja? Jú, jú, hann hefur mjög góða hugmynd (LJós: Var hann ekki að bera sakir á einhvern?) Þær eru ekki alveg nýjar, hann hefur haft tækifæri til þess, hv. þm. Magnús Kjartansson, að svara þessu áður. En ég kem eð hv. þm. Magnúsi Kjartanssyni á eftir með öðrum hætti og öðrum hætti en hv. þm. Lúðvík Jósepsson umgengst hann og bið ég þm, að doka örlítið við.
Ég vil nefnilega taka það fram, að skoðun mín er sú, að í ráðherratíð sinni hafi hv. þm. Magnús Kjartansson gert það best að halda áfram áformum um uppbyggingu iðnaðar, sem grundvallaðist á stórvirkjunum og nýtingu hinnar miklu orku, sem við eigum í fallvötnum og hverahita. Hann átti, eins og kunnugt er, vinsamlegar viðræður við fleiri aðila en Union Carbide. Hann fór t.d. til Sviss þar sem hann ráðgaðist við forustumenn Alusuisse um stækkun álbræðslunnar í Straumsvík og jafnvel bar á góma byggingu annarrar álverksmiðju. Þær hefðu kannske orðið tvær, ef honum hefði gefist færi á að sitja lengur í ráðherrastóli, en vonandi aldrei þó 20 eða nokkurn veginn öll heimsframleiðslan, svo að rifjuð séu upp gamanyrði, sem þessi annars mjög alvörugefni þm. lagði mér í munn sællar minningar og ósönn eru.
En samskipti ráðh. við þennan erlenda aðila, sem hefur um árabil átt við okkur samstarf, Alusuisse, olli því, að þetta fyrirtæki og önnur fengu fullt traust á því, að unnt væri að starfa með íslendingum, hvaða stjórn sem væri hér við völd. Eftir að hafa e.t.v. óttast að vinstri stjórn yrði kröfuharðari í þeirra garð en stjórn annarra flokka, þá sannfærðust þeir um það gagnstæða. Þannig var t.d. horfið frá kröfum um, að dýr hreinsitæki yrðu sett upp við álverksmiðjuna í tíð vinstri stjórnarinnar og forustumenn hins svissneska fyrirtækis höfðu aldrei haft ánægjulegri samskipti við æðstu ráðamenn hérlendis en einmitt þá. En samhliða var í ráðherratíð hv. þm. Magnúsar Kjartanssonar sleitulaust unnið að því að ná samningum við aðra erlenda aðila um atvinnurekstur hérlendis og samkv. ákvörðun hans var sérstaklega kappsamlega unnið að samningagerð við bandaríska fyrirtækið Union Carbide, og allir samningar meira og minna frágengnir á liðnu vori og mjög þrýst á, að þingflokkarnir samþykktu þá. Sjálfur vildi ráðh. raunar nefna þetta framtak sítt iðnbyltingu, þótt það orð hafi nú líklega verið helst til stórt. En þetta, einmitt þetta, ber að þakka fyrrv. iðnrh. og mun verða mikils metið þegar iðnsaga landsins verður skráð og þróunin á þeim tíma, sem við nú lifum, fær mikið rúm.
En hv. þm. Jónas Árnason er ekki alveg á sömu skoðun. Það var áður getið um ræðu hans hér í þingi, en mig langar til að víkja örfáum orðum að viðtali einu miklu, sem við hann birtist í blaði hans, Þjóðviljanum, föstudaginn 6. þ.m. undir fyrirsögninni, — ja, hvað haldið þið? „Siðferðilegu undanhaldi snúið í sókn“. Já, það er auðvitað siðferðisskortur aðalforgöngumannsins sem er alvarlegasta áhyggjuefni þm. Og mig langar til, — með leyfi forseta — að lesa smákafla úr nefndu viðtali. En Jónas er spurður að því, hvers vegna hann sé á móti málmblendiverksmiðju, og segir:
„Það er af mörgum ástæðum, sem eru af félagslegum, umhverfisverndarlegum, byggðalegum og siðferðilegum toga spunnar, svo að maður skelli fram öllum tískuorðum á einu bretti.
Union Carbide á sér einna óþokkalegastan feril allra auðhringa að því er varðar mengun og mannréttindi. Ég hef í höndum skýrslu, sem sannar, að í heimalandi þessa auðhrings, Bandaríkjunum, hefur hann neytt allra bragða til að sniðganga gildandi lög um mengunarvarnir og enginn auðhringur er eins illa þokkaður hjá því fólki sem berst gegn mengun og fyrir náttúruvernd.
Ég hef líka í höndum skýrslu, sem sannar, að enginn auðhringur er eins illa þokkaður og Union Carbide hjá hinum nýfrjálsu ríkjum Afríku, enda heyrir maður fulltrúa þeirra nefna Union Carbide í ræðum sínum vestur á þingi Sameinuðu þjóðanna, þegar þeir ræða hraklega meðferð á svörtu fólki. Í Rhódesíu og Suður-Afríku eru umsvif þessa auðhrings mikil og hvítir verkamenn, sem vinna hjá fyrirtæki hans þar, fá allt að því tíu sinnum hærri laun en svartir. Meðferð auðhringsins á svörtu fólki er öll eftir þessu.
Hann hefur aðstoðað fasistastjórnina í Rhodesíu dyggilega við að rjúfa það viðskiptabann, sem Sameinuðu þjóðirnar og þ. á m. Bandaríkin samþykktu að setja á hana. Yfirleitt má segja, að þessi auðhringur sé sérstakur ástmögur fasistastjórnanna í Rhódesíu og Suður-Afríku. Þótt ekki komi til aðrar ástæður en þessar, mundi ég beita mér gegn samningum um málmblendiverksmiðjuna. Union Carbide er vægast sagt ekki nógu göfugur félagsskapur fyrir þjóð eins og okkur íslendinga.
Enn ein siðferðileg mótbára mín er sú, að í Grundartangaverksmiðjunni á að framleiða ferrosilikon. Efni þetta er til margs nytsamlegt, en fyrst og fremst er það notað til að herða stál og það þarf hart stál í vopn. Efni þetta er því ein af helstu nauðsynjum vopnaframleiðenda. Hlutverk okkar íslendinga í sveltandi heimi á að vera að framleiða matvæli, en ekki efni til að auka áhrifamátt drápstækja.“
Og síðar: „Vegna þessarar samtvinnunar herstjórnar og auðhringa hafa þeir síðast nefndu notað bandarísku leyniþjónustuna, CIA, sem sinn einkaspæjara og raunar orðið oft uppvísir að stuðningi við fasistisk valdarán í ýmsum löndum, eins og nærtækast er í Chile“. Og loks: „Þau margendurteknu vinnubrögð stjórnvalda í stórmálum að taka ákvarðanir án minnsta samráðs við almenning, en í andstöðu við vilja hans, hafa því miður haft sín áhrif. Það er komin siðferðisþreyta í sumt fólk, sem lýsir sér helst í því, að menn yppta öxlum og segja: Er ekki hvort sem er búið að ákveða þetta?“
Þetta voru orð hv. þm. Jónasar Árnasonar og sendingin, sem hann birti í Þjóðviljanum, sem er enn þá hans blað að vísu, en hv. þm. Magnús Kjartansson var sem lengst ritstjóri við og hv. þm. Kjartan Ólafsson stjórnar núna, og hefur vafalaust við skulum ekki fara að skipa honum í dilk að sinni, það kemur upp, hvorum megin hann liggur um það er lýkur.
Í upphafi þessarar tilvitnunar er talað um ástæður þær, sem þm. tilgreinir fyrir andstöðu sinni við málmblendiverksmiðjuna. Þær eru félagslegar, umhverfisverndarlegar, byggðalegar og siðferðilegar. CIA og fasistiska valdaránið er ekki meðtalið nema að því leyti sem það kann að falla undir siðferðisbrest — eða „siðferðisþreytu“ nefnir víst þm. það, — forgöngumannsins, hv. þm. Magnúsar Kjartanssonar. Efnislega eru samningarnir ekki gagnrýndir, enda segir raunar um þá á öðrum stað í nefndu viðtali, að þeir séu „bisniss“ og ekkert annað. Það er sem sagt ekkert verið að gagnrýna núv. valdhafa fyrir eitt eða neitt, sem gert hefur verið, heldur fyrrv. ríkisstj. fyrir hennar verknað og þá að sjálfsögðu fyrst og fremst iðnrh, þeirrar stjórnar, sem ábyrgð bar á öllu því, sem hv. þm. Jónasi Árnasyni finnst erfiðast að kyngja. Það var hann, iðnrh. fyrrv. ríkisstj., sem spann þráðinn, og þm. segir, að andstaða sín sé af félagslegum, umhverfisverndarlegum, byggðalegum og siðferðilegum toga spunnin. Þetta er þráður Magnúsar.
Úr því að hv. þm. Lúðvík Jósepsson valdi þann kost að halda þessum umr. áfram eftir að hv. þm. Magnús Kjartansson var úr leik, þá taldi ég mér skylt að taka upp varnir fyrir hinn síðarnefnda. Við vorum ósammála og öttum kappi, er umr. fóru fram um byggingu álbræðslunnar í Straumsvík. Hann var þá eindreginn andstæðingur stóriðjuframkvæmda og samvinnu við erlenda fjármagnseigendur. Ég taldi hins vegar rétt að fara inn á þá braut að vissu marki. En síðan snerist hv. þm. hugur, er hann var orðinn ráðh., og framtak hans í stóriðjumálum í ráðherratíð hans ber að þakka og mun verða þakkað, þótt hins vegar hljóti afskipti hans af orkumálum að öðru leyti að verða gagnrýnd, þótt ég skuli ekki gera það frekar hér en orðið er.
Ég skal svo ekki tefja þessar umr. lengur og vona, að hv. þm. Lúðvík Jósepsson, sem mun hafa kvatt sér hljóðs, fái tilefni til að taka sig svolítið á loft, eins og hann gat um áðan.