14.12.1974
Efri deild: 22. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (692)

48. mál, lántökur ríkissjóðs og ríkisfyrirtækja

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Við 1. umr. fjárl. var gerð grein fyrir flutningi tveggja frv. af hálfu ríkisstj. og eru þau til umr. nú í hv. Ed. Annars vegar var frv. til l. um lántökur ríkissjóðs og ríkisfyrirtækja og hins vegar frv. um ráðningu opinberra starfsmanna og leiguhúsnæði ríkisstofnana.

Frv. um lántöku ríkissjóðs og ríkisfyrirtækja á þskj. 51 er nánari skýring á ákvæðum 40. gr. stjórnarskrárinnar, sem gerir ráð fyrir því að ekki megi taka lán, sem skuldbindi ríkið, nema skv. lagaheimild. Í samræmi við ákvæði þessi hefur yfirleitt verið leitað fjárlagaheimildar til töku fjárfestingarlána innanlands, en hins vegar sérstakrar lagaheimildar til lántöku erlendis. Þó hafa fasteignakaup ríkisins iðulega verið þannig gerð, að ríkissjóður hefur tekið við áhvílandi lánum án þess að til slíks væri bein heimild í lögum. Um nokkurt skeið hefur verið fylgt þeirri reglu að fjmrn. tæki lán vegna ríkissjóðs og stofnana, sem um er getið í A-hluta ríkisreiknings, en eins og kunnugt er er ríkisreikningnum skipt í tvo hluta, A-hluta og B-hluta. Í A-hluta er ríkissjóður og ríkisstofnanir, en í B-hluta eru ríkisfyrirtæki og sjóðir, sem flestir hafa einhvern rekstur með höndum. Frv. þetta gerir ráð fyrir óbreyttri reglu hvað snertir A-hluta fyrirtæki, að fjmrn, taki fyrir hönd ríkissjóðs öll lán vegna þeirra, sem þar eru, en fyrirtækjum í B-hluta sé því aðeins heimilt að taka lán, stofna til skulda eða taka ábyrgð á skuld að fyrir liggi heimild í sérstökum l. eða fjárl. eða fyrir liggi samþykki viðkomandi rn. og fjmrn., en skort hefur á að slíkar lagaheimildir, sem áður var getið, hafi verið fyrir hendi þegar fyrirtæki B-hluta hafa staðið að lántöku.

Frv. þetta er gagngert flutt til að koma í veg fyrir að einstök fyrirtæki geti hlaðið upp skuldum, án þess að viðkomandi rn. sé um það kunnugt fyrr en í hreint óefni er komið. Veruleg skuldasöfnun fyrirtækja ríkisins án skýrra lagaheimilda getur ekki heldur talist í samræmi við eðlilega fjármálastjórn. Jafnframt er með þessum till., ef að lögum verða, betur tryggt að stjórnvöld sinni vandamálum þessara fyrirtækja fyrr en raun hefur orðið á að undanförnu. Ákvæði þessa frv., ef að l. verður, ætti því að tryggja að jafnan liggi fyrir yfirlit um heildarlántökur ríkisins og fyrirtækja þess svo og að ekki séu teknar skuldbindingar án þess að fjármálayfirvöld hafi um það fjallað.

Í grg. frv. er nánari grein gerð fyrir frv. og einstökum greinum þess og ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða meira um málið. Ég legg til, herra forseti, að frv. verði vísað að lokinni þessari umr. til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. og vænti þess að sú n. taki málið til skoðunar og hv. þd. með þeim hætti að hægt verði að ljúka afgreiðslu þess hér í hv. þd. fyrir jólaleyfi þm.