14.12.1974
Neðri deild: 22. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í B-deild Alþingistíðinda. (733)

91. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Mér þótti leiðinlegt, þegar hv. 5. þm. Vestf. lýsti því yfir hér að hann nennti ekki lengur að lesa upp úr ræðum ráðh. frá því að þeir voru í stjórnarandstöðu. Hann gerði þetta hér, eins og þm. muna, um alllangan tíma og við, sem vorum ræðumennirnir í þessum tilfellum, lögðum á það megináherslu að hann héldi þessu áfram, því að hann gæti að sjálfsögðu ekki flutt betra mál á Alþ. en að lesa upp úr okkar ræðum. Við hljótum því að sjálfsögðu að hryggjast yfir því þegar hann kemur svo hér fyrir Alþ. til að lýsa því yfir sérstaklega að hann sé hættur að lesa upp úr ræðunum. En hann um það.

Ég varð satt að segja ákaflega undrandi á ræðu hv. 8. landsk. þm., síðari ræðu hans hér áðan. En ég hef skýringar á því hvernig stendur á henni. Hann hafði talið sér trú um það að þegar hann væri búinn að halda hér sína fyrri ræðu, þá mundi núv. fjmrh. standa upp og segja um það mál sem hann flutti hér og hans frv., að það væri gjörsamlega ómögulegt og það væri ekki hægt að athuga það og þetta gengi alls ekki. Síðan kemur hann svo með sína síðari ræðu í takt við þessa hugsun og segir að núv. fjmrh. hafi komið hér upp í ræðustólinn, sagt allt annað núna en hann sagði í fyrra, og vekur athygli á því að hér sé um algerlega hreytta skoðun hans að ræða.

Ég vakti athygli hv. þm. á því, að hann væri að flytja mál sem hefði komið hér fram á þingi flutt af tveimur núv. ráðh. og hefði inni að halda víðtækari heimildir í sambandi við sérstakan frádrátt heldur en að hann í sinni till. vildi lögfesta. Ég vakti athygli hans á því, að till. í frv. frá því í fyrra var grandskoðuð einmitt vegna þess hversu margslungin skattamálin eru og til þess að fyrirbyggja að þar gæti rekið sig eitt á annars horn. Og það staðfesti einmitt hv. 5. þm. Vestf. Hann kom hér upp og sagði, að aths. hans við frv. þeirra hv. þm. Guðlaugs Gíslasonar og Péturs Sigurðssonar hefðu verið þess eðlis að sér hefði fundist eðlilegt að flytja þetta frv. Það, sem hér er um að ræða, er sérstakur frádráttur til handa þeim sem að fisköflun og fiskvinnslu vinna. En ég taldi að það væri eðlilegra að um þetta yrði sett sérstök reglugerð og þeir aðilar, sem gerst þekkja skattamálin, þau flóknu mál, semdu slíka reglugerð fyrir fjmrh. Og ég benti á ákveðið dæmi í ræðu minni áðan. Hv. 8. landsk. þm. las þá upp úr ræðu hæstv. fjmrh. og sagði merkilegt að báðir skyldu hafa komið með sama dæmið. Það, sem fyrir mér vakti, var að benda þessum hv. þm. á að það eru fleiri sem koma að fiskvinnslunni heldur en sá sem handfjatlar fiskinn við fiskvinnsluna, m.a. sá sem flytur aflann frá skipshlið að fiskvinnslustöðvunum. Vandamál þessara aðila þarf að sjálfsögðu að skoða líka.

Ég vék að því atriði í ræðu minni við 1. umr. fjárlaga, þar sem beinlínis er gert ráð fyrir stórum fjárupphæðum til þess að gera breytingar á skattalögunum. Ég sagði að í sambandi við þær brtt., sem unnið verður að, muni að sjálfsögðu þær hugmyndir, sem fram komu í frv. mínu og hæstv. sjútvrh. á síðasta þingi, fá þá skoðun sem þær eiga að sjálfsögðu skilið sem mjög góðar hugmyndir í þessum málum. En þrátt fyrir allt þetta kemur þessi hv. þm. hér upp og talar þannig að hæstv. fjmrh. hafi komið hér nú upp og lýst sig andvígan þessu öllu saman, það sé allt annar hugur hjá honum í þessu máli nú en fyrir ári. Þetta getur að sjálfsögðu ekki átt neinar aðrar skýringar en þær að hv. þm. var búinn að semja ræðuna sína heima, miðað við að núv. fjmrh. kæmi upp í ræðustólinn og afneitaði sínum fyrri skoðunum og sínum fyrri till. En það gerðist alls ekki og þess vegna kom þessi ræða hv. þm. þvert á þær umr. sem höfðu farið fram á undan.

Að breyt. á skattalögum hefðu átt að vera til umr. á þingi þá daga sem fjárlögin eru hér til meðferðar, því get ég ekki beinlínis áttað mig á. Í öðru lagi er sá tími, sem slíkar till. eru til umr. á Alþ., undir flestum kringumstæðum þegar komið er fram yfir áramótin og áður en skattlagning á sér stað á næsta ári. Það verður að sjálfsögðu unnið að þessu máli með nákvæmlega sama hætti, og ég, eins og ég sagði áðan, get fullvissað flm. þessa frv. um að sú till., sem að mínum dómi er skynsamlegri í þessum málum heldur en sú sem þeir hér flytja, hún verður að sjálfsögðu skoðuð eins og aðrar ágætar till. í sambandi við skattamálin.