11.11.1974
Neðri deild: 7. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í B-deild Alþingistíðinda. (74)
4. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Ég held, að það sé rétt að rifja aðeins upp, hvernig var umhorfs í sjávarútveginum, þegar ráðstafanir voru gerðar í septemberbyrjun, rétt eftir að hv. 2. þm. Austf. hafði yfirgefið sjútvrn. Nú ætla ég ekki að fara að búa til neinar tölur. Ég ætla aðeins að fara lauslega yfir það, sem Þjóðhagsstofnunin hefur látið frá sér fara, og ég hygg að það geti enginn þm. eða aðrir leyft sér að segja annað um þá stofnun og forstöðumann þeirrar stofnunar en að þar sé samviskusamlega og hlutlaust unnið. En til þess að samanburður á rekstrarskilyrðum einstakra greina í sjávarútvegi verði sambærilegur, þá er gengið út frá sömu markaðsforsendum í júlí og gert hefur verið í nýjustu áætlunum eftir gengisbreyt. og hliðarráðstafanir. Helstu breyt. á markaðsforsendum frá upphaflegum útreikningum í júlí eru þessar: 1. Það er reiknað með 5% hækkun frystiafurða í erlendri mynt. 2. Það er reiknað með 5% lækkun afurða söltunar og herslu í erlendri mynt. 3. Það er reiknað með 30% hækkun fiskimjöls og loðnumjöls í erlendri mynt. — Sé tekið mið af framangreindu, þá er rekstrarhalli veiða á ársgrundveili hvorki meira né minna en 1380 millj. kr. Ég veit, að hv. 2. þm. Austf. er léttlyndur í meðferð talna og hann segir þegar eitthvað vantar: Þetta eru bara afskriftir, þá kemur þetta manni ekkert við. — Afskriftir! Það er eins og það sé bara eitthvert bókhaldsatriði þegar hann talar um afskriftir. Þá er ekki talað um að það þurfi að borga af lánum. Léttlyndur maður!
Af þessari upphæð nam áætlaður rekstrarhalli togara á ársgrundvelli um 920 millj. kr. Mikill munur var á rekstrarafkomu loðnubáta annars vegar og þeirra sem ekki stunduðu loðnuveiðar hins vegar, þannig að nokkur rekstrarafgangur var hjá loðnubátunum, en mjög mikill hallarekstur hjá hinum. Eftir hliðarráðstafanirnar hefur rekstrarhalli veiða lækkað í 970 millj. kr. eða um 410 millj. kr. Af þessari upphæð nemur rekstrarhalli togara 790 millj. kr., en rekstrarhalli báta um 180 millj. kr. Eftir sem áður er mikill munur á rekstrarafkomu loðnubáta og annarra báta. Loðnubátarnir sýna rekstrarafgang upp á 250 millj. kr. meðan aðrir bátar sýna halla upp á 430 millj. kr. Við gengisbreyt. hækkuðu erlend lán báta um 200 millj. kr., en erlend lán togara um hvorki meira né minna en 1100 millj. kr. En það hefur verið meira en ein gengisbreyt. á þessu ári. Það var gengissig eftir gengissig, eins og það var kallað. Eru þetta ekki aukin útgjöld fyrir útgerðina?
Það er því furðulegt að hlusta á ræðu hv. 2. þm. Austf. og svo þess hálfbróður hans, sem kom á eftir honum hér áðan, alveg furðulegt að hlusta á þennan málflutning. Hvað vilja þessir menn? Vilja þeir halda því fram, að Þjóðhagsstofnunin ljúgi öllu og sé að blekkja og svíkja ríkisvald og Alþ. og það sé hagnaður hjá útgerðinni alls staðar? Ef þeir segja, að þeir vilji alls ekki halda því fram og það sé rétt, sem Þjóðhagsstofnunin segir, hvað er þá verið að gera? Er þá ekki verið að færa stoð undir atvinnulífið í landinu? Verður það sjómönnum til framdráttar og verður það sjómönnum til tekjuaukningar, ef útgerðin stöðvast algerlega? Ég hugsa, að þeir skilji þetta í Bolungarvík og sá, sem talaði hérna, mundi skilja, ef hann væri kominn vestur. En hann virðist ekki skilja það hérna í þingsalnum.
Svo hneykslast báðir þessir sálufélagar á því, að það hafi verið tekin inn I lög 11% hækkun, — gengið á rétt Verðlagsráðsins. Að vissu leyti er þetta rétt. Verðlagsráðið á að afgreiða fiskverðsbreytingar. En af hverju er það gert? Og hvað gerðist áður? Það segir í 4. gr. brbl. um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu:
„Almennt fiskverð, annað en verð skarkola, humars og rækju, skal haldast til 31. ágúst 1974 eins og það var ákveðið um s.l. áramót, sbr. tilkynningu Verðlagsráðs sjávarútvegsins nr. 1/1974, enda tryggi ríkisstj., að verð á brennsluolíum til íslenskra fiskiskipa, er landa afla sínum og taka olíu erlendis, haldist á meðan óbreytt eins og það var í nóv. 1973.“
Fyrir hvern er verið að halda óbreyttu olíuverði? Er það ekki fyrir sjómennina eftir þessu? Það er eitthvað annað hljóðið í hv. 2. þm. Austf. núna. Hvað gerðist á undan? Fiskverðið er ákveðið í ársbyrjun 1974. Síðan koma þessir margumtöluðu kjarasamningar, sem allir vita hvernig fóru. Allir voru að vinna fyrir þá lægst launuðu og allir kepptust við að lýsa yfir fylgi sínu við þeirra kröfur og óskir, en það þyrfti að halda í við aðra. Svo þegar búið var að semja, þá komu hinir, hátekjumennirnir, sem fengu tvisvar sinnum og jafnvel þrisvar sinnum meiri hækkun. Þá sátu þessir herrar í ríkisstj., eins og hv. 2, þm. Austf. Þá var ekki hv. 5. þm. Vestf. farinn í fýlu við fyrrv. stjórn, þá var hann innilegur stjþm. og í faðmlögum við stjórnina á þessum tíma. Þetta var allt gott og blessað. Þessi hækkun gengur yfir.
En hvað er svo gert, þegar komið er fram í maí, þegar sjómenn eiga að taka á sig allar þær miklu verðhækkanir, sem fylgja í kjölfar þessara aðgerða allra saman, þessara raunalegu aðgerða? Hvað er þá gert? Þá stendur hv. Lúðvík Jósepsson að útgáfu þessara l., sem ég var að vitna í: Þið skuluð enga kauphækkun fá þrátt fyrir allar kauphækkanirnar sem urðu í byrjun ársins. - En þá var hv. 5. þm. Vestf. farinn í fýlu við ríkisstj., svo að hann getur sagt, að hann hafi ekki staðið að þessu. Hins vegar hefur hann verið að væla og skæla í allt vor, sumar og haust yfir því, að þessi vinstri stjórn, sem hann sjálfur drap í vor, hélt ekki áfram.
Að hugsa sér svo hræsnina hjá þessum tveimur hv. ræðumönnum, fyrirlitleg hræsni. Af hverju voru þessi brbl. sett? Þau voru sett vegna þess að það var óðaverðbólga, sem enginn réð við. Lúðvík Jósepsson stóð að setningu þessara brbl. vegna þess hvernig komið var. Svo er hneykslast yfir því, að það hafi eftir þetta ranglæti, verið tryggð hækkun upp á 11% frá núv. ríkisstj. Og hv. 5. þm. Vestf. er alveg stórhneykslaður á þessu.
Hv. 2. þm. Austf. sagði, að það hefði ekkert loðnugjald verið lagt á loðnubátana, það hefði bara verið lagt á verksmiðjurnar, ekkert nema á verksmiðjurnar. Þeir áttu þá ekkert í loðnuverðinu, hvorki sjómenn né útgerðarmenn, þá var það bara orðið eign verksmiðjanna. Þetta er maður sem kann að haga seglum eftir vindi, það má nú segja. Í reglugerðinni um sérstakt útflutningsgjald á loðnuafurðir fyrir árið 1974, sem gefin er út af því rn. sem þessi ráðh. stjórnaði, segir:
„Greiða skal 5% útflutningsgjald af fob-verðmæti framleiðslu ársins 1974 af loðnumjöli, loðnulýsi, frystri loðnu og loðnuhrognum svo og öðrum loðnuafurðum, öllum nema niðursoðnum eða niðurlögðum.“
Í 2. gr. segir:
„Hið sérstaka útflutningsgjald samkv. 1. gr. skal reiknað og innheimt á sama hátt og annað útflutningsgjald af sömu vöru samkv. l. nr. 19 16. apríl 1973, um útflutningsgjald af sjávarafurðum.“
Nú veit þessi hv. þm. að þetta gjald eins og öll önnur gjöld er tekið af óskiptu, það eru allir aðilar, sem taka þátt í því. Þetta er ekki tekið af neinum ímynduðum hagnaði verksmiðjanna. En gjaldið brást. Hann gat ekki gert að því, þessi hv. þm., sem þá var hæstv. ráðh. En hann sat í ríkisstj. næstum því til ágústloka. Hann vissi hvað vantaði. Hvaða tillögur lágu fyrir til úrbóta? Hvaða tillögur lágu fyrir ti1 þess að tryggja niðurgreiðslu á olíu? Ekki ein einasta till. Í hjálparkokknum heyrðist ekkert heldur. Og svo er hneykslast núna á Stofnfjársjóðnum eins og fyrri daginn. Ég spyr: Þegar ég nefndi hér áðan skuldaaukninguna, sem verður við gengissig og gengisbreytingar, telja þessir hv. þm. að útgerðin geti tekið ein á sig þessa aukningu miðað við þær upplýsingar, sem liggja fyrir frá Þjóðhagsstofnuninni? — Ég hlusta ekki á útgerðina, ekki eitt orð, sem hún segir, heldur bara þessa stofnun, fer bara eftir henni. Á útgerðin að bæta þessu ofan á? Verður þetta sterkur grundvöllur til atvinnurekstrar i okkar landi?
Ég fullyrði, að sjómenn eru ekki eins ósanngjarnir og þessir tveir hv. ræðumenn. Þeir hafa sýnt skilning, þó að þeir eðlilega mótmæli. Hörðustu mótmælin koma frá saltfiskverkendum út af brbl., að þeir eigi að leggja á saltfiskinn 1.5% hærra gjald heldur en hið almenna gjald, og það er sú greinin sem hefur haft bað best. En hins vegar er alveg sjálfsagt að kynda undir elda óánægjunnar. Til þess þurfa sumir menn að verja öllum sínum tíma. En hvort það tekst, það er önnur saga.
Ég spyr: Það hefur verið framlag gildandi til Stofnlánasjóðs fiskiskipa, 20% á humar og síld, sem lítil sem engin hefur verið, og 10% á annað. Af hverju afnam 2. þm. Austf. ekki þetta ranglæti? Hann sat í þrjú ár og hafði aðstoðarmenn hér í þingsölunum. Þeir fundu ekki þetta óréttlæti þá, þeir finna það bara núna.
Höfuðatriði þessa máls er þetta: Telja þessir menn, að upplýsingar Þjóðhagsstofnunarinnar séu réttar eða rangar? — Ef þeir telja þær réttar, þá geta þeir ekki haldið því fram, að það sé hægt að bæta hundruðum millj. á útgerðina í landinu við þær aðstæður, sem hún á nú við að búa. Og þá komum við að því: Ef það er ekki réttlætanlegt að fara þessar leiðir, sem hér er talað um, vilja þeir þá leggja skatta á þjóðina til þess að standa undir þessum útgjöldum? Og á hvern hátt vilja þeir standa að slíkri skattlagningu? — Ef þeir vilja vera og eru ábyrgir þm., þá eiga þeir að benda á leiðir.
Hv. 2. þm. Austf. fjasaði um olíusjóðinn, hvað það sé ranglátt að gera þetta, og það þyrfti eiginlega, sagði hann, að leysa þetta með einhverjum öðrum hætti. Og þá setti hann punkt. Þá var það búið. Þá kom hann ekki að því. Á hvern hátt vill hv. þm. leysa þetta? Ég er til viðræðu við hann. En telur hann, þegar verður að gera ráðstafanir í þeirri miklu óðaverðbólgu, sem nú hefur tröllriðið íslensku efnahagslífi, telur hann þá vera stætt á því að leggja almenna skatta á þjóðina til þess að greiða niður olíuna til fiskiskipanna eða telur hann þetta vera réttlátari leið, sem þessi brbl. eða þetta frv. gerir ráð fyrir. Það væri fróðlegt að fá við því skýr svör, en ekki svona loðin, eins og honum verður svo oft á að gefa, þegar hann er búinn að gagnrýna og er svo kominn í vandræði, til þess að koma sér út úr hlutunum.
Ég ætla að segja hv. 5, þm. Vestf. það, að þær víkur, sem ég hef verið sjútvrh., hafa ekki verið neinn dans á rósum. Mér finnst, að verkefnin hafi æpt á mann og erfiðleikar ekki örfárra manna heldur velflestra manna í þessari atvinnugrein hafi verið miklir af margvíslegum ástæðum, hæði heimatilbúnum ástæðum og líka óviðráðanlegum ástæðum. En þetta hafa verið það miklir erfiðleikar, að það hefur ekki verið hlaupið að því að leysa þá og það verður ekki hægt að leysa þá, — og það ætla ég að segja þeim við 1. umr. þessa máls, — það verður ekki hægt að leysa þá nema leggja einhvers staðar að öðru, því að peningar og verðmæti detta ekki af himnum ofan, hvorki til mín né annarra. Hér verður að gera ráðstafanir víð þær aðstæður, sem núna eru, sem ekki þykja vinsælar. En ég held að það væri hollast fyrir menn að tala með meiri ábyrgð en þessir tveir hv. þm. hafa gert við þessa umr. í dag.