16.12.1974
Sameinað þing: 24. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 857 í B-deild Alþingistíðinda. (746)

1. mál, fjárlög 1975

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Þegar núv. ríkisstj. tók við völdum í ágústmánuði s.l. hafði um þriggja ára skeið í tíð vinstri stjórnarinnar átt sér stað gjörbreyting á viðhorfum stjórnvalda til alhliða uppbyggingar atvinnulífs og félagslegrar þjónustu úti á landsbyggðinni frá því sem áður var. Í valdatíð viðreisnarinnar sálugu var ástand mála orðíð þannig að heilu landshlutarnir höfðu verið hreinlega sveltir að því er varðaði fjárframlög til hinna ýmsu framkvæmdaliða í uppbyggingu úti á landi. Það var engu líkara en þeir aðilar, sem þá héldu um stjórnvölinn, hefðu gert það upp við sig og tekið þá ákvörðun að dreifbýlisfólk skyldi í auknum mæli verða utangarðs í því nútímaþjóðfélagi og þeirri félagslegu aðstöðu og þjónustu sem verið var að byggja upp hér á höfuðborgarsvæðinu, enda var það svo í tíð viðreisnar að deyfð, drungi og vonleysi hafði gripið um sig hjá því fólki sem byggir hinar dreifðu byggðir.

Sú ríkisstj., sem við tók sumarið 1971 eftir fall viðreisnarstjórnar, gerði sér strax ljóst í hvert óefni var komið, enda höfðu þeir flokkar, sem að vinstri stjórninni stóðu, gagnrýnt harðlega þá stefnu í efnahagsmálum sem viðreisnin hafði að leiðarljósi. Enginn vafi er á því að sú gjörbreyting, réttara sagt bylting, sem átti sér stað á þriggja ára valdaferli vinstri stjórnarinnar og laut að uppbyggingu úti á landi, hafði breytt þeirri deyfð, drunga og því vonleysi þessa fólks í bjartsýni og aukinn sóknarhug. Allir þeir, sem tekið hafa þátt í eða fylgst með og kynnt sér þessa hlið mála, hljóta að vera sammála um að fráhvarf frá þessari uppbyggingarstefnu er slíkt reiðarslag fyrir það fólk sem á hlut að máli, slíkt hnefahögg í andlit þess, að það þarf mikla dirfsku til að snúa nú af þessari braut yfir til þess sem áður var. Slíkt afturhvarf sýnir í reynd forkastanlega lítilsvirðingu af hálfu stjórnvalda í garð þess fólks sem áður hefur um árabil háð harða baráttu fyrir að njóta jafnréttis án tillits til búsetu.

Því miður er svo að sjá að sú ríkisstj. Sjálfstfl. og Framsfl., ómenguð íhaldsstjórn sem að völdum settist í ágúst s.l., ætli að sýna það svart á hvítu að hún ætli sér að hverfa frá þeirri uppbyggingarstefnu sem vinstri stjórnin beitti sér fyrir. Og engan þarf að undra þá stefnubreytingu núv. ríkisstj. þegar lítið er til þess, hvernig Sjálfstfl. snerist öndverður gegn landsbyggðarstefnu vinstri stjórnarinnar. Hitt hlýtur að koma almenningi í landinu spánskt fyrir sjónir að Framsfl., sem hlut átti að uppbyggingarstefnu vinstri stjórnarinnar, skuli nú snúast gegn þeirri stefnu eða réttara sagt vera notaður til þess að koma í veg fyrir að sú stefna haldi áfram.

Nú, þegar til umr. eru fyrstu fjárlög hægri stjórnar, verður manni ósjálfrátt hugsað til þeirrar miklu og hörðu gagnrýni sem Sjálfstfl. beitti gegn fyrrv. ríkisstj. og þá fyrst og fremst gegn þeirri eyðslustefnu, eins og þeir sjálfir orðuðu það, sem lýsti sér í nokkurri hækkun fjárl. frá því sem áður var. En sú hækkun, sem þá varð á fjárl. milli ára, átti fyrst og fremst rætur sínar að rekja til stóraukinna fjárframlaga úr ríkissjóði til hinna ýmsu framkvæmdaþátta fjárl. og samfélagslegrar uppbyggingar, gjörbyltingar í uppbyggingu atvinnulífs dreifbýlisins, stórhækkaðra fjárveitinga frá því sem áður hafði þekkst til hafnamála, Hafnabótasjóðs, til dagvistunar- og sumardvalarheimila, til íþróttamála, til flugmála og til jöfnunar námsaðstöðu og námslána og framlaga til almannatrygginga. Í mörgum þessara málaflokka var um að ræða margfalda hækkun fjárframlaga frá því sem áður var, ekki bara í krónutölu, heldur og í raungildi framkvæmdanna.

Það var þessi uppbyggingarstefna sem Sjálfstfl. hefur barist harkalega gegn síðustu 3 árin. Það er þessi stefna sem Sjálfstfl. ætlar nú með tilstyrk Framsóknar að brjóta á bak aftur. Það fjárlagafrv., sem hér er nú til umr. og er fyrsta fjárlagafrv. núv. ríkisstj., ber þess svo sannarlega merki að hverju skuli stefnt á sviði efnahagsmála. Þetta fyrsta fjárlagafrv. núv. ríkisstj. undirstrikar vel það ákvæði stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. að dregið skuli úr framkvæmdum á vegum ríkisins. En þó mun þessi byrjun líklega lítil miðað við það sem koma skal. Ljóst er, sem betur fer, að fulltrúar stjórnarflokkanna í fjvn. hafa gefist upp við að knýja fram þá miklu niðurskurðarstefnu sem frv. upphaflega gerði ráð fyrir og ríkisstj. vildi framkvæma. Um stefnuna vita allir. Það er undirstrikað í frv. að það marki ekki að þessu sinni djúp spor í fjármálastefnu ríkisstj. miðað við það sem koma skal. Hæstv. forsrh. ítrekaði þetta í stefnuræðu sinni hér á Alþ., og ekki dró hæstv. fjmrh. úr þegar hann mælti fyrir frv. hér á Alþ. og ætlar hann greinilega ekki að vera eftirbátur í þessum efnum, enda til alls líklegur eins og sjá má og heyra.

Það er sem sagt yfirlýst af þeim hæstv. ráðh. í ríkisstj. sem ráða ferðinni, að sá niðurskurður verklegra framkvæmda, sem frv. gerir ráð fyrir og flestum finnst allharkalegur, sé nú ekki mikill miðað við það sem koma skal. Hæstv. fjmrh. er svo aðsópsmikill í þessu, að hann sagði í fjárlagaræðunni að haga beri meðferð opinberra fjármála þannig að stutt sé að jafnvægi innanlands og utan. Þetta merkir auðvitað, að hæstv. fjmrh. ætlar greinilega að leita út fyrir landssteinana að því er varðar niðurskurðaráformin, fái hann ekki nægan vettvang hér innanlands, og vita þá nágrannar vorir hvað til síns friðar heyrir í þeim efnum.

Það, sem er spurningin að því er varðar áformin um niðurskurð á samdráttarstefnu, er hvernig ráðandi öflum ríkisstj. gengur að fá fylgdarliðið til harðrar atlögu eða hvort þeir íhugi að rétt sé að fara eftir hinn gamla spakmæli sem segir að sígandi lukka sé best. Eitt er víst, að ráðh. virðist ekki vanta viljann.

Hæstv. fjmrh. núv. virðist að því er best verður séð hafa ofboðið svo útþensla og skattheimta ríkisins hjá fyrrv. ríkisstj., að hann settist niður fyrir um ári og samdi frv. þess efnis að minnka bæri skattheimtu ríkisins um hvorki meira né minna en 4300 millj. kr. á þáv. gengi og lýsti jafnframt yfir, að auðvelt væri að brúa það bil sem þarna skapaðist við tekjumissi ríkissjóðs með sparnaði í ríkisrekstrinum og minni framkvæmdahraða. Þeim flokksbræðrum hæstv. fjmrh. hefur sjálfsagt orðið mun léttara um andardráttinn þegar ljóst var, hver varð aðnjótandi hins eftirsótta stóls fjmrh. Enginn vafi er sjálfsagt á því að þeir sjálfstæðismenn hafa talið ríkisfjármálunum vel borgið að því er varðar sparnað í kerfinu, þegar sjálfur faðir þessarar frv.-smíðar hafði öðlast það hnoss að verða hið mótandi afl í meðferð ríkisfjármála og þar með kominn í þá aðstöðu að geta í reynd komið í framkvæmd innihaldi þessa framburðar síns í sparnaði ríkisútgjalda. En þá skeður undrið.

Í þessu fjárlagafrv., því fyrsta sem hæstv. ráðh. leggur fram, er gert ráð fyrir því að ,.önnur rekstrarútgjöld“, þ.e. rekstrarkostnaður ríkisins, hækki nokkru meira en sem nemur verðlagshækkunum á árinu eða meira en nokkru sinni áður. Það er því eðlilegt, að menn spyrji nú: Er þetta hægt, Matthías? (Gripið fram í: Hvert var svarið?) Það er ekki komið. (Gripið fram í: Það kom.) Það á eftir að koma.

Eins og áður hefur verið að vikið, hafa fulltrúar stjórnarflokkanna í fjvn., sem betur fer, segi ég, gefist upp við að halda til streitu þeim stórkostlega niðurskurði sem ríkisstj. ætlaði sér á opinberum framkvæmdum. Í aths. með frv. er tekið fram að þótt stefnt sé að samdrætti og niðurskurði í opinberum framkvæmdum, þá sé þess gætt að slíkur niðurskurður komi ekki fram á þjóðhagslega mikilvægustu framkvæmdum, en nú við 2. umr. fjárl. liggur það fyrir að stórkostlegur niðurskurður á sér stað í mikilvægum málaflokkum haldi stjórnarliðið fast við þær ákvarðanir sínar sem nú liggja fyrir.

Ég ætla hér að nefna tvo málaflokka sem mest áberandi eru. Þrátt fyrir þá staðreynd, að þörfin fyrir stórauknar framkvæmdir í hafnamálum vegna tilkomu hins glæsilega togaraflota er brýnni en nokkru sinni fyrr, þá er lagt til að raungildi framkvæmda í hafnamálum sé skorið niður um 21% frá gildandi fjárl. Og þótt hér sé talað um 21% heildarniðurskurð, þá kveður svo rammt að, að sumir landshlutar, sem byggja afkomu sína á þessum undirstöðuatvinnuvegi sem er sjávarútvegurinn, eru skornir niður að því er varðar framkvæmdir í hafnamálum allt að 65% frá núgildandi fjárl. Það er greinilegt að núv. stjórnarliðar telja það ekki þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir að stuðla að því að það fólk, sem berst harðri baráttu til þess að skapa þjóðfélaginu þann auð sem allt byggist á, fái bætta aðstöðu til aukinnar verðmætasköpunar þjóðarbúinu til handa. Það verður því að láta á það reyna hér í þinginu, hvort meiri hluti sé fyrir því að beita svo harkalegum aðgerðum gegn landsbyggðarfólki. Einnig liggur nú fyrir við 2. umr. að framlög til flugvallagerðar þyrftu að vera 36% hærri en þau nú eru til þess að halda sama raungildi og fjárlög yfirstandandi árs. Og þótt hér hafi aðeins verið staðnæmst við tvo stóra málaflokka, þá mætti nefna mörg fleiri dæmi þess hvern hug núv. stjórnarflokkar bera til þess fólks sem verst stendur að vígi í lífsbaráttunni.

Það verður ekki hjá því komist að benda á í sambandi við hafnamálin að jafnhliða slíkum niðurskurði í framkvæmdum heldur stjórnarliðið svo á málum að engar lánveitingar hafa átt sér stað úr Hafnabótasjóði á þessu ári, þótt sú staðreynd blasi við að fjárhagsstaða flestra hafnarsjóða er með þeim hætti að óhjákvæmilegt er að sérstakar aðgerðir af hálfu ríkisvaldsins komi til, ef sveitarfélögin eiga að geta staðið straum af sínum hluta framkvæmdanna. Slíka fyrirgreiðslu ber tvímælalaust að veita í gegnum Hafnabótasjóð.

Það er líka ástæða til að vekja athygli á þeim yfirlýsingum núv. stjórnvalda að sveitarfélög eigi sjálf að geta séð fyrir sínum hluta í framkvæmdum þótt vitað sé með hliðsjón af getu sveitarfélaganna að um slíkt er ekki að ræða. Hér er um að ræða stefnu sem ekki hefur áður verið fylgt og er enn eitt dæmið um þann hug sem núv. ríkisstj. sýnir landsbyggðarfólki.

Eftir því sem mál horfa nú við 2. umr. mun ríkisstj. ætlast til þess að langsamlega flest þeirra félaga, sem vinna að mannúðar- og menningarmálum og notið hafa framlaga á fjárl., haldi óbreyttri krónutölu til sinnar starfsemi á sama tíma og rekstrarkostnaður ríkisfyrirtækja hækkar um 65.7%. Þessi afstaða stjórnarliða er auðvitað fjarstæða og má furðulegt teljast ef þeir ætla þar enga breytingu á að gera.

Sú skrautfjöður, sem núv. stjórnarflokkar hafa hampað hvað mest, er sú mikla aukning sem þeir telja verða á framlögum ríkissjóðs til Byggðasjóðs og sýni glöggt stórfellda byggðastefnu stjórnarliða. Það er vert að íhuga þetta nánar. Því hefur verið haldið fram af okkur stjórnarandstæðingum að sú breyt., sem hér um ræðir, muni ekki í reynd þýða aukna uppbyggingu úti á landsbyggðinni, því að samhliða þessu aukna framlagi til Byggðasjóðs verði dregið úr framlögum ríkissjóðs til ákveðinna framkvæmdaþátta. Ég held að ekki þurfi lengur að deila um það að við stjórnarandstæðingar höfum rétt fyrir okkur að því er þetta varðar og skulu færð að því rök hér.

Á fjárl. yfirstandandi árs er heimild til handa ríkisstj. til að taka 50 millj. kr. lán til þess að létta greiðslubyrði hafnarsjóða er verst eru settir.

Nú hefur það fengist upplýst að ríkisstj. ætlar sér ekki að notfæra sér þessa heimild, en ætlar sér þess í stað að yfirfæra þessa fyrirgreiðslu yfir á Byggðasjóð og Framkvæmdasjóð og láta þessa aðila í kerfinu ákveða hvaða bæjar- eða sveitarfélög verða aðnjótandi þessarar fyrirgreiðslu. Sú heimild, sem hér um ræðir, er samhljóða heimild í fjárl. fyrir árið 1973 nema hvað núv. heimild er 10 millj. kr. hærri og var ætluð af ríkisins hálfu sem framlag ríkissjóðs til þess að létta á þeim hafnarsjóðum sem verst eru settir, auk þeirrar fyrirgreiðslu sem hugsanlega kæmi annars staðar frá. Á þennan hátt var heimildin frá 1973 notuð. Það er því augljóst að hér er farið inn á nýjar brautir og verið að létta af ríkissjóði með því að færa yfir á Byggðasjóð ýmsa útgjaldaliði. En ekki nóg með það, hér er verið að draga valdið úr höndum fjvn. og Alþ. með því að ríkissjóður veitir fé til Byggðasjóðs sem hann á síðan að eigin geðþótta að útdeila. Hér er enn eitt dæmið um þá breyttu stefnu sem núv. hæstv. ríkisstj. beitir sér fyrir.

Ég tel rétt hér og nú að láta þá skoðun mína í ljós, að ég tel að störfum fjvn. hafi að þessu sinni verið hagað með öðrum og óæskilegri hætti en þau 3 undanfarin ár sem ég hef átt þar sæti. Ég tel, að núv. meiri hl. fjvn. hafi verið um of einstrengingslegur í afstöðu sinni gagnvart minni hl. Ég minnist þess ekki þann tíma sem ég hef setið í fjvn., að jafnlítið tillit hafi verið tekið til óska einstakra nm. úr minni hl. eins og nú átti sér stað. Ég held að hér sé rangt að farið, ef meining manna er að viðhafa sem skynsamlegust vinnubrögð. Þetta taldi ég rétt að kæmi hér fram, af því að ég tel að það sé nauðsynlegt að um störf fjvn. í heild ríki sem best samstaða, ef árangur á að nást sem bestur.

Að sjálfsögðu mætti miklu fleira segja því að af nógu er að taka, bæði að því er varðar það sem þegar liggur fyrir og einnig þau mörgu mál sem enn hafa ekki verið afgreidd og biða 3. umr. Ég ætla þó ekki að fara frekari orðum að þessu sinni, nema ástæða gefist til, um þessa hlið mála. En ég vil að síðustu, herra forseti, gera grein fyrir brtt. sem ég hef flutt ásamt nokkrum öðrum hv. þm.

Ég gat þess hér áðan, að svo væri staðið að afgreiðslu að því er varðar fjárl. til einstakra málaflokka, að til þess eru dæmi að heilir landshlutar eru skornir niður um 65% í framkvæmdum. Nú ætla ég ekki að gera samanburð að því er þetta varðar, en þær brtt., sem eru á þskj. 153 og ég hef leyft mér að flytja ásamt hv. 8. landsk. þm. og hv. 3. landsk. þm., eru við brtt. fjvn á þskj. 143, 64. líð, þ.e. í sambandi við hafnarmannvirki og lendingarbætur. Þessi brtt. gerir ráð fyrir því að fyrir 534 millj. 610 þús. komi 598 millj. 610 þús. og að sundurliðunin breytist þannig:

1. Ísafjörður, sem er í 12. lið að ég held núna í sundurliðuninni, í staðinn fyrir 13.4 millj. komi 21.4 millj.

2. Nýr liður að því er varðar Súðavík, sem ekki er inni með fjárveitingu eins og málið er afgreitt nú frá fjvn., þar komi inn 6 millj. kr. fjárveiting.

Það er nauðsynlegt að fara nokkrum orðum um, hvað til grundvallar liggur að þess er freistað hér við 2. umr. að bera fram brtt. til þess að fá fram nauðsynlegar fjárveitingar til þess að halda áfram framkvæmdum á þessum stöðum.

Að því er varðar Ísafjörð, þá er hér um að ræða frágang á framkvæmd sem staðið hefur um nokkurra ára bil og nauðsynlegt er að ljúka. Einnig kemur það til að svo mikil áhersla er lögð á þennan hluta núna að því er varðar Ísafjörð, að þar er um að ræða malbikun á hluta af hafnarsvæði sem er í nánum tengslum við þær framkvæmdir sem gert er ráð fyrir að eigi sér stað á Vestfjörðum á næsta sumri að því er varðar varanlegt slitlag á götur. Það er nauðsynlegt talið að ná sem flestum verkefnum inn, til þess að hægt verði að nýta þau tæki sem verða til staðar á Vestfjörðum á næsta sumri, en ekki lengur, þannig að liðið geta nokkur ár þangað til slíkt tækifæri gefst aftur til að hagnýta þessa hluti. M.a. vegna þess og einnig vegna ótal fleiri atriða, sem fram koma að því er varðar þessa brýnu framkvæmd, þá er nauðsynlegt að þetta fáist nú fram.

Að því er varðar Súðavík, þá er þar um að ræða áframhald framkvæmda sem staðið hafa yfir. Súðavík var ekki inni með fjárveitingu til hafnarframkvæmda í núgildandi fjárl. og var þá byggt á því að það var upplýst af hálfu Vita- og hafnamálaskrifstofunnar að ekki væri tæknilegum undirbúningi nógu langt komið til þess að raunverulegt væri að veita fjárveitingu á þessu ári, en fyrirheit um það gefið að á fjárl. fyrir árið 1975 yrði inn tekin fjárveiting til þessara hluta. Það, sem hér er því á ferðinni, er um það að staðið verði við þau fyrirheit sem búið var að gefa forsvarsmönnum þessa staðar um það að fjárveiting fengist á fjárl. ársins 1975 til að halda áfram brýnum og nauðsynlegum áfanga á Súðavík.

Ég vona a.m.k. að hv. alþm. standi með okkur, sem að þessari till. stöndum, í því að fá þessa leiðréttingu, þannig að ekki komi til að horfi til stórvandræða á þessum stöðum sem hér um ræðir á næsta ári. Hér er ekki um að ræða að verið sé að flytja sýndartill. af einu eða neinu tagi, hér er um blákaldar staðreyndir að ræða, staðreyndir sem nauðsynlegt er að hv. alþm. geri sér grein fyrir. Við vestfirðingar leggjum höfuðáherslu á að hægt sé að halda áfram vinnu við þessar mikilvægu framkvæmdir.

Í öðru lagi stöndum við sömu þm. að flutningi á brtt. við 69. brtt. frá fjvn., þ.e. í sambandi við flugmál. Hún er þess efnis, að fyrir 485 millj. 725 þús. komi: 505 millj. 725 þús. — og liðurinn fjárfestingar í flugmálum í 72. brtt. breytist þannig að inn komi nýr liður á eftir 2. tölul., sem verði Ísafjörður með 20 millj.

Að því er þetta varðar, þá er rétt að gera þá grein fyrir þessari brtt. að um áraraðir hafa verið uppi áform um það að malbika Ísafjarðarflugvöll. Ef ég man rétt — það verður þá leiðrétt hér á eftir fari ég rangt með — ef ég man rétt var þessi framkvæmd inni í hinni svokölluðu Vestfjarðaáætlun þegar hún var á döfinni og var í framkvæmd þannig að það var gert ráð fyrir þessari framkvæmd þá. Síðan hefur þetta verið dregið ár eftir ár og engar framkvæmdir hafa orðið. Fyrst var því borið við að ekki væri hægt að fara í framkvæmd malbikunar á Ísafjarðarflugvelli vegna þess að það væri allt of lítið verkefni til þess að fara að flytja stórvirk tæki og dýr bara til þess að framkvæma þetta verkefni þarna. Tækin komu á þessu sumri. Það var reynt að fá fjárveitingu inn fyrir árið 1974. Að vísu var það seint upp tekið, en það tókst ekki, en þá var einnig um það talað að Ísafjarðarflugvöllur kæmi inn með fjárveitingu á árinu 1975. Hér er um að ræða svo brýnt verkefni sem einnig er í samhengi og tengslum við þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru í lagningu varanlegs slitlags á götur þar vestra, að það er brýnt nauðsynjamál til þess að þær framkvæmdir geti átt sér stað, sem nú er verið að undirbúa, að einnig þetta komist inn, til þess að verði hægt að framkvæma það. Það er ekki farið fram á meira en það að hægt sé að malbika brautarenda á Ísafjarðarflugvelli. Það er ekki um að ræða alla malbikun flugvallarsvæðisins, heldur aðeins um það að ræða að gert sé ráð fyrir því að hægt sé að malbika brautarenda og e.t.v. líka við afgreiðslu flugstöðvarinnar.

Verði ekki orðið við þessari beiðni okkar vestfirðinga að þessu sinni, bæði að því er varðar flugvallargerðina, malbikunina, og að því er varðar malbikun hafnarsvæðisins á Ísafirði, þá eru allar líkur á því að ekkert verði úr þeim framkvæmdum í gatnagerð og lagningu varanlegs slitlags á götur sem fyrirhugaðar eru á Vestfjörðum á næsta ári. Ég heiti því á alþm. að þeir komi til liðs við okkur og styðji okkur í þessu mikilsverða máli, þannig að við getum haldið áfram því starfi sem upp var tekið á þessu ári til þess að hrinda þessum málum í framkvæmd.

Að síðustu flyt ég ásamt hv. 7, landsk. þm. og hv. 1. landsk. þm. brtt. á þskj. 153 við brtt. fjvn. á þskj. 143, þ.e. 16. tölul., við 4. gr., þ.e. til jöfnunar á námskostnaði. Í fjárlagafrv., eins og það var fram lagt, var gert ráð fyrir 100 millj. kr. fjárveitingu til þessa þáttar. Í meðförum n. hefur þetta verið hækkað upp í 110 millj., en er talið alls ófullnægjandi til þess að það þjóni þeim tilgangi sem lögin, sem sett voru um þetta efni, fyrst og fremst gerðu ráð fyrir. Ég ætla að leyfa mér — með leyfi hæstv. forseta — að að lesa hér bréf sem fjvn. barst frá námsstyrkjanefnd. Það er svo hljóðandi:

„Í frv. því til fjárl., sem nú liggur fyrir Alþ., er gert ráð fyrir 100 millj. kr. fjárveitingu til jöfnunar á námskostnaði. Í fjárl. ársins 1974 voru veittar 76 millj. kr. til þessara mála. Heildarúthlutun vegna skólaársins 1973–74 var um það bil 79 millj. kr., þ.e. tæpar 4 millj. umfram fjárlög. Í áætlun námsstyrkjanefndar vegna fjárlagaársins 1975 er gert ráð fyrir 140 millj. kr. fjárveitingu, sem er lágmarksfjárveiting vegna yfirstandandi skólaárs. Slík fjárveiting mundi taka tillit til verðhækkana og lítils háttar aukningar á námsstyrkjum. Samkv. könnun, sem n. hefur látið fara fram, hefur námskostnaður hækkað um 45–50% frá s.l. skólaári, sem þýðir að miðað við óbreytt raungildi námsstyrkja ætti fjárveiting 1975 að vera sem næst 120 millj. kr. og er þá gert ráð fyrir óverulegri fjölgun námsstyrkja. Slík fjárveiting hefði hins vegar í för með sér stöðnun á þeirri þróun sem verið hefur undanfarin ár og er megintilgangur laganna, þ.e. að jafna fjárhagslegan aðstöðumun nemenda.“

Undir þetta rita fyrir hönd námsstyrkjanefndar Sigurvin Einarsson, fyrrv. alþm., form. n. og Örlygur Geirsson, ritari. Ég tel að Alþ. geti ekki verið þekkt fyrir það að synja slíkri beiðni eins og hér kemur fram. Hér er sýnt fram á það, að ef ekki verður orðið við þessari nauðsynlegu beiðni sem hér um ræðir, þá er stigið skref til baka frá því sem var á árinu 1974. Við höfum því, þessir 3 þm., leyft okkur að leggja fram brtt. til hækkunar á þessum lið, brtt. sem gerir ráð fyrir því að orðíð verði við óskum námsstyrkjanefndar um að fjárveiting til þessara mála verið 140 millj. kr. í fjárl. ársins 1975. Ég trúi því ekki fyrr en ég sé það og á það reynir að hv. alþm. neiti þessari beiðni sem mér sýnist vera reist á fullkomnum rökum og gerir ráð fyrir því að framkvæmd séu þau lög sem fyrir tiltölulega stuttu voru sett og eru þess eðlis að gera ráð fyrir að jafna þann mismun sem verið hefur í námsaðstöðu með tilliti til þess hvar nemendur hafa verið búsettir á landinu. Ég treysti því a.m.k. að hv. alþm. verði við þessari beiðni.