12.11.1974
Sameinað þing: 6. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 110 í B-deild Alþingistíðinda. (77)

Umræður utan dagskrár

Gils Guðmundsson:

Herra forseti. Skömmu áður en Alþingi kom saman að þessu sinni var frá því skýrt, að undirritaður hefði verið samningur milli Íslands og Bandaríkjanna um tilteknar breytingar að því er varðar Keflavíkurflugvöll og herstöðina þar. Um það hafa risið deilur, hvort bera hefði átt þennan samning undir Alþingi. Um það atriði ætla ég ekki að ræða að þessu sinni. Hitt hygg ég að naumast þurfi að verða deiluefni, að rétt sé og eðlilegt að slíkur samningur og sömuleiðis stefna hæstv. núv. ríkisstj. Í herstöðvarmálinu verði til umr. hér á Alþ. og það heldur fyrr en síðar. Með tilliti til þessa vil ég f.h. Alþb. beina þeim tilmælum til hæstv. utanrrh., að hann beiti sér fyrir því, að slíkar umr. um þessi mál fari fram hér á Alþ. svo fljótt sem við verður komið, t.d. í formi skýrslu, sem hann legði fyrir þingið um þessa samningagerð.

Samningur sá, sem hæstv. ríkisstj. gerði i haust við Bandaríkin, hefur ekki verið birtur, heldur hefur einungis verið skýrt frá helstu ákvæðum hans. Ég vil lýsa þeirri skoðun minni að ég tel eðlilegt og raunar sjálfsagt að slíkur samningur verði birtur opinberlega, m.a. til þess að eyða óþarfa tortryggni og getgátum um það, hvað í honum kunni að felast. Það er oft erfitt fyrir hv. alþm. að ræða málið án þess að hafa séð samninginn, án þess að vera fullkunnugt um öll efnisatriði hans. Vil ég einnig beina því til hæstv. utanrrh., hvort hann sé ekki fáanlegur til þess að gera ráðstafanir til að samningurinn verði birtur hið allra fyrsta.

Ég hef látið hæstv. ráðh. vita að ég mundi beina fyrirspurn af þessu tagi til hans nú og vænti þess því, að hann geti gefið ákveðin svör við þessum til mælum mínum.