17.12.1974
Sameinað þing: 25. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 935 í B-deild Alþingistíðinda. (780)
97. mál, alþjóðastofnun fjarskipta um gervihnetti (INTELSAT)
Utanrrh. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Ég ætla að leyfa mér að mæla hér með örfáum orðum fyrir till. þeirri sem forseti lýsti að nú væri tekin á dagskrá, en hún er svona:
„Alþingi ályktar að heimila ríkisstj. að fullgilda fyrir Íslands hönd samninginn um alþjóðastofnun fjarskipta um gervihnetti, sem undirritaður var fyrir Íslands hönd í Washington hinn 14. febrúar 1972.“
Till. fylgja svo hljóðandi aths. frá rn.:
„Á sviði alþjóðasímafjarskipta hófst haustið 1964 hin lögformlega samvinna um gervihnattasímleiðir yfir víðáttur úthafa og meginland. Áður hafði um nokkurra ára skeið verið unnið að frumdrögum og samningaumleitunum, er leiddu til bráðabirgðasamkomulags milli 19 ríkja og símastjórna þeirra, sem að þessu stóðu í upphafi.
Varð þetta vísir að stofnun, sem síðar hlaut nafnið INTELSAT.
Síðar hefur aðilum að INTELSAT fjölgað mjög verulega og þátttakendur eru nú nær 94. Vegna góðra vaxtaskilyrða hefur einnig risið víðáttumikið gervihnattakerfi.
Samkv. bráðabirgðasamkomulaginu var stofnun INTELSAT gerð á þeirri forsendu að reynslan skæri úr um það, hvort þetta samkomulag skyldi lögfest eða hvort mynda skyldi alþjóðastofnun með öllu, er því tilheyrir, svo sem aðalfundum og starfsliði á sviði viðskipta og tækni.
Framtíðarskipulag INTELSAT hefur nú endanlega verið ákveðið 20. ágúst 1971 með sáttmála í tveimur meginþáttum.
Hið nýja samkomulag byggir þannig á ríkisstjórnasáttmála svo og viðaukasáttmála á milli símstjórna ríkjanna.
Samkomulag þetta var undirritað fyrir Íslands hönd í Washington,“ eins og áður segir, „14. febr. 1972 með fyrirvara um staðfestingu.
Samkv. framangreindum sáttmálum verður INTELSAT alþjóðastofnun sem persóna að lögum eins og nánar er tilgreint í IV. gr.
Allsherjarþing, þar sem í eiga sæti öll þátttökuríki, fer með æðsta vald innan þessarar INTELSAT-stofnunar og tekur afstöðu til allra meginmála og hefur endanlegt ákvörðunarvald.
Framkvæmdastjórn INTELSAT myndar hins vegar takmarkaður fjöldi undirritunaraðila, valdir með hliðsjón af afnotum INTELSAT-kerfisins.
Norðurlöndin geta í sameiningu átt aðild að framkvæmdastjórn INTELSAT og þá tilnefnt einn sameiginlegan fulltrúa, eins og verið hefur samkv. bráðabirgðasamkomulaginu. Er talið mjög mikilvægt að geta á þann hátt beitt norrænum áhrifum í stjórninni.
Fyrir Ísland er ómetanlegt að fá tækifæri til þess að gerast meðlimur í framangreindri stofnun og vera jafnframt í mjög nánu samstarfi við Norðurlöndin á þessu sviði.
Þátttaka Íslands í umræddu gervihnattakerfi gerir okkur nú kleift að taka í notkun gervihnattasambönd strax og slíkt reynist fjárhagslega hagkvæmt.
Þátttaka okkar er fjárhagslega viðráðanleg og áhættulaus. Stofnfé, lagt fram sem okkar eignarhlutur, nemur um 120 þús. bandarískum dölum og er arðsemi þess áætluð 10–14% á ári. Má gera ráð fyrir, að þær tekjur muni nema hærri fjárhæð en að jafnaði þurfi að verja til rekstrar og frekari fjárfestingar.
Að lokum skal á það bent, að ekkert einstakt ríki getur fengið meira atkvæðamagn en 40% af heildaratkvæðamagni. Þá er einnig komið í veg fyrir áhrifavald stærstu hluthafanna á þann hátt, að allir stjórnarmeðlimir, að undanskildum þremur, geta tekið endanlegar ákvarðanir og þarf minnst 4 meðlimi til samþykktar slíkum ákvörðunum.
Þegar á allt er litið er augljóst, að við höfum mikið hagræði af þátttöku í INTELSAT-stofnuninni, enda þótt við höfum ekki reist okkar eigin hugsanlegu jarðstöð.
Þessu til viðbótar, herra forseti, vil ég greina frá því, að mér barst bréf frá póst- og símamálastjóra, svo hljóðandi:
„Með skírskotun til viðræðna við yður, hæstv. utanrrh., nú nýlega varðandi væntanlegar umr. á Alþ. í sambandi við INTELSAT-samninginn vil ég upplýsa eftirfarandi:
Ísland hefur mjög nána samvinnu við Norðurlöndin um hugsanleg viðskipti um gervihnetti og þá sérstaklega um INTELSAT-gervihnattakerfið. Enn fremur liggja nú fyrir álitsgerðir um, að hagkvæmasta leiðin til fjölgunar símrása frá Íslandi er um INTELSAT-kerfið og auk þess gefur þetta möguleika á því að fá sjónvarpsefni þessa leið til landsins. Af þessum ástæðum er mjög áríðandi, að Ísland gerist fullgildur aðill að nefndu gervihnattakerfi.“
Herra forseti. Ég legg til, að þessu máli verði að lokinni þessari umr. vísað til síðari umr., en ég verð að biðja um forsetaúrskurð um það, til hvaða n. þetta mál á að fara. Ég hafði reiknað með því að þetta mál færi til utanrmn., en vegna þess að það hefur nokkur fjárútlát í för með sér að fullgilda samninginn má vera að það þurfi að fara til fjvn. Ég geri ekki till. um þn., legg það í vald forseta.