12.11.1974
Sameinað þing: 6. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í B-deild Alþingistíðinda. (80)

Umræður utan dagskrár

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. 3. þm. Reykn. fyrir að hafa vakið máls hér á Alþ. á þeirri meðferð, sem lok viðræðna íslendinga við Bandaríkin hafa fengið. Á s.l. ári var lögð á það rík áhersla af forustumönnum núv. stjórnarflokka, að niðurstöður þessara viðræðna skyldu ræddar á Alþ. þegar þær lægju fyrir. 12. nóv. 1973 sagði þáv. forsrh., Ólafur Jóhannesson, hér á Alþ., með leyfi hæstv. forseta:

„Það stendur nú einmitt þannig á, að á morgun eiga að hefjast viðræður um varnarsamninginn. Þegar niðurstöður liggja fyrir af þeim samningaviðræðum, þá verða þær niðurstöður, eins og hæstv. utanrrh. hefur marglýst yfir, lagðar fyrir Alþ. hvernig svo sem þær verða í raun og veru.“

12. nóv. fyrir um það bil ári gaf þáv. forsrh., Ólafur Jóhannesson, núv. hæstv. dómsmrh., Alþ. því skýrt og skorinort loforð um að niðurstöður viðræðnanna yrðu lagðar fyrir, hvernig svo sem þær verða í raun og veru, eins og hann orðaði það.

Í lýðræðis- og þingræðislandi er mikilvægt að menn standi við þau heit, sem þeir gefa löggjafarsamkomu þjóðarinnar. Og það er einna mikilvægast í svo vandmeðförnum málum eins og utanríkismálum smáþjóðar. Utanríkismál hafa skipt íslendingum í nokkra áratugi í andstæða hópa. Það er varasamt, að þær andstæður séu magnaðar með því að Alþ. sé ekki sýnd tilhlýðileg virðing og ekki staðið víð þau heit, sem því hafa verið gefin í meðferð málsins. Slíkt skapar ekki samstöðu um utanríkismál smáþjóðar. Slíkt er ekki til þess fallið að styrkja þingræði í landinu.

Mig langar þess vegna við þetta tækifæri að bera fram þá spurningu, hver hafi tekið þá ákvörðun, að ekki var staðið við það loforð sem Alþ. var gefið 12. nóv. 1973. Er það hæstv. núv. forsrh., sem vildi ekki standa við það loforð, sem fyrirrennari hans og samráðh. gaf Alþ.? Eða var sú ákvörðun tekin af stjórnarflokkunum í sameiningu að standa ekki við þetta loforð sem Alþ. var gefið? Það er mikilvægt fyrir Alþ. og þá einkum og sér í lagi þegar um utanríkismál íslendinga er að ræða, að það liggi skýrt fyrir, hvers vegna sú ákvörðun var tekin að standa ekki við þetta heit, hver það var sem tók þá ákvörðun.

Ég vil við þetta tækifæri óska þess, að annaðhvort hæstv. dómsmrh., sem forsrh. gaf þessa yfirlýsingu fyrir ári, eða — forsrh. er nú ekki viðstaddur — þá hæstv. félmrh. og form. þingflokks Sjálfstfl. upplýsi, hvort það var ákvörðun Sjálfstfl., að þetta mál var ekki lagt fyrir Alþ., eða hvort það er ákvörðun ríkisstj. í heild.