17.12.1974
Efri deild: 24. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 960 í B-deild Alþingistíðinda. (808)

15. mál, happdrættislán ríkissjóðs vegna Norðurvegar og Austurvegar

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég vil í byrjun þakka hv. þm. Inga Tryggvasyni fyrir ómakið sem hann tók af mér með ræðu sinni. Hann sagði hér mjög margt af því sem ég vildi sagt hafa. Ég hef ákveðið að gera það sem hann tæpti á, en kvaðst ekki hafa komið í verk enn. Ég hef ákveðið að flytja brtt. við þetta frv. á þá lund að 2 000 millj. sem mun koma í hlut allra landsmanna að borga, líka íbúa Þingeyjarsýslna og Norður-Múlasýslu, þessum 2 þús. millj. verði varið jafnt, að vegarkaflinn milli Akureyrar og Egilsstaða verði ekki skilinn út undan, heldur tekinn með. Og ég fæ ekki séð hví vestfirðingar, sem einnig munu borga sinn hluta af þessu láni, eiga ekki að verða aðnjótandi ávaxtanna af þeim peningum.

Það er athyglisvert í frv., hvernig hugsað er um vegi, hvernig hugsað er um hlutverk vega í beinum tengslum fyrst og fremst við Reykjavík og síðan eitthvert ákveðið endamark úti á landi. Hér er gerð grein fyrir veginum frá Reykjavík til Akureyrar beinlínis á þann hátt að hann eigi að þjóna því fólki fyrst og fremst sem fer frá Reykjavík eftir þessum vegi, hversu langt í burtu sem endamarkið er, þá náttúrlega mest þeim, sem ætla alla leið til Reykjavíkur og til baka. Á bak við samningu þessa frv. liggur hugsunin um þörfina á því að komast frá Reykjavík til ákveðins staðar eða frá ákveðnum stað úti á landi til Reykjavíkur.

Sannleikurinn er sá, að fyrir byggðirnar úti á landi hefur vegasambandið á milli þéttbýliskjarna, þjónustukjarna í hverju héraði, og hinna dreifðu byggða þar umhverfis miklu meiri þýðingu heldur en sambandið við Reykjavík. Og ef við ætlum að byggja upp fjórðungana, auka sjálfstæði þeirra og sjálfsbjörgunarmöguleika, þá verðum við að miða vegagerðina við það að hún þjóni fyrst og fremst þörfinni innanhéraðs. Það er enginn vandi að komast frá Akureyri til Reykjavíkur á miklu auðveldari hátt og ódýrari hátt en þann að aka eftir fyrirhuguðum vegi. Það verður enn um sinn miklu fljótlegra og auðveldara að fljúga þetta fyrir þá sem eiga erindi til Reykjavíkur fyrir þá farþega. Aftur á móti er þörfin fyrir góða vegi innanhéraða í Norðurl. e. mjög brýn. Undir þess háttar vegasambandi er lífsafkoma fólksins komin.

Síðan vil ég víkja að sambandinu milli Norðausturlands og Austurlands, sem hv. þm. Ingi Tryggvason minntist á áðan og gerði skemmtilega og góða grein fyrir.

Sannleikurinn er sá, að austfirðingar og norðlendingar hafa verið hvorir öðrum mikil stoð, ekki bara í viðskiptum, heldur einnig félagslega og atvinnulega mjög lengi, og fyrir blómgun byggðar á Austurlandi og Norðurlandi er meiri þörf á góðu vegasambandi á milli Austfjarða og þéttbýliskjarnanna á Norðurlandi heldur en á milli — við skulum segja byggðanna austan Vaðlaheiðar og Reykjavíkur.

Ég mun sem sagt bera fram brtt., að ég vona í samstarfi við aðra þm. Norðurl. e., einhver þeirra sem vildi má gjarnan verða 1. flm. að þeirri till. Ég mun vinna að gerð brtt. í góðu samstarfi við þá og reyna að fylgja henni fram.