17.12.1974
Efri deild: 25. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (824)

111. mál, Hitaveita Suðurnesja

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Það gleður mig að þetta frv. hefur svo greiðan gang gegnum þingið. Sannarlega er það rétt, eins og komið hefur fram, að þetta er mikið hagsmunamál byggðarlaganna á Suðurnesjum en til gamans vil ég vekja athygli á því að þetta er mjög gamalt mál. Hitinn á Reykjanesinu hefur verið augljós um aldaraðir, og það eru margir áratugir síðan farið var að hreyfa því á Suðurnesjum að fá hitaveitu frá Reykjanesi. En það, sem stóð jafnan í veginum fyrir því að úr framkvæmdum yrði, var að það var sama hvaða verkfræðifyrirtæki reiknaði út kostnaðinn og afraksturinn, það kom alltaf illa út. Líklega eru það fyrst og fremst olíuhækkun Araba sem gerir að verkum að þetta er nú orðið mjög arðvænlegt fyrirtæki. Hér er verið að gera í raun og veru nýja tilraun með millihitun, að hita upp heil byggðarlög með jarðhita og jarðgufu, sem upphaflega er sölt, og er í sjálfu sér mjög fróðlegt að fylgjast með hvernig það gengur, en allar tilraunir virðast benda til að þótt þetta kunni að vera nokkur kostnaðarauki sé það algerlega örugg aðferð.

Ég tek undir það sem aðrir hafa sagt hér. Ég vona að þetta mál fái greiðan gang í gegnum okkar d. einnig. Ég sakna þess svo sannarlega að byggðarlögin skuli ekki sjálf eiga þessa hitaveitu, eins og flestar aðrar hitaveitur í landinu eru í eigu byggðarlaganna sem nota þær. En þrátt fyrir það verður þó meiri hl. í eigu byggðarlaganna og það tel ég mikils virði.