17.12.1974
Efri deild: 25. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 983 í B-deild Alþingistíðinda. (827)

15. mál, happdrættislán ríkissjóðs vegna Norðurvegar og Austurvegar

Ingi Tryggvason:

Herra forseti. Hér hefur allmikið verið talað um fjárútveganir til vegagerðar. Ég get tekið undir það, sem hér hefur verið sagt, að það væri æskilegt að fé til slíkra hluta fengist með sem bestum kjörum og þjóðin gæti á hverjum tíma lagt sem mest af mörkum til að vinna þau verk sem þarf að vinna. En það er svo með vegagerð að hún er svo brýnt mál að ég tel algjörlega útilokað og raunar ekki rétt að ein kynslóð greiði á fáum árum það sem þar þarf að framkvæma.

Ég get tekið undir það að erfitt er að gefa út víxla á framtíðina, en það er líka erfitt, ekki síst í vegagerð, að ætla mönnum að gera hvort tveggja í senn að aka á slæmum vegum með öllum þeim kostnaði, sem því fylgir og greiða á sama tíma ný stórvirki í vegalagningu. Ég held að sé um það bil 3 ár síðan vegamálastjóri skýrði frá því í útvarpi að það hefði verið reiknaður út mismunur á því að aka bíl á malbikuðum vegi og á malarvegi og komið hefði í ljós að kostnaðar munur þá væri um 3 kr. á hvern ekinn km. Ég get ekki sagt með neinni vissu hversu þetta væri miklu meira nú í dag, en það má þrefalda þá upphæð að ég hygg eða jafnvel meira. Sparnaðurinn kom fram í minni bensíneyðslu, minna viðhaldi, minna sliti o.s.frv.

En ef það væri rétt, að sá, sem æki bílnum sínum á malbikuðum vegi, fengi hvern ekinn km. 6–10 kr. ódýrari en hinn sem þarf að hossast á ósléttum malarvegum eða aka meira eða minna að vetri í snjó, þá getum við vel gert okkur í hugarlund hversu mikilvægt það er að fá vegina upp úr snjónum og fá þá sem sléttasta. Ég ætla ekki að reikna þetta dæmi. Það er auðreiknað. Fæstir aka bíl sínum öllu minna en 10 000 km. á ári, sem nota bil að einhverju ráði. Þó að krónurnar væru bara 6 á km., þá munaði 60 000 kr. á ári á bíleiganda hvort hann ekur um almennilegan veg, sem er tiltölulega greiðfær allan ársins hring og sæmilega sléttur, eða hann þarf að nota malarveg sem er ósléttur og erfiður yfirferðar langtímum saman vegna snjóa. Ég tel að með þeim sparnaði, sem fæst með aukinni vegagerð og bættri vegagerð sérstaklega, eigi raunverulega að greiða þá víxla sem við tökum í dag og það sé réttlæting þess að það sé tekið fé, þó að dýrt sé, til vegagerðar í dag, að þeir, sem njóta veganna geti fremur en þeir sem nú aka á meira og minna lélegum vegum, greitt kostnaðinn við þá.