17.12.1974
Efri deild: 25. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í B-deild Alþingistíðinda. (831)

15. mál, happdrættislán ríkissjóðs vegna Norðurvegar og Austurvegar

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Þess óska ég að ég muni aldrei eiga sökóttara við hæstv. samgrh. heldur en nú. Þó er það nú svo að hann sneri út úr fyrir mér, hafði rangt eftir mér, Ég sagði aldrei í minni ræðu að landsmenn ættu ekki erindi til Reykjavíkur og Akureyrar. Ég sagði að íbúar hinna dreifðu byggða ættu meira erindi hver við annan og til þjónustu í byggðarlagi sínu. Það væri meiri nauðsyn að komast þá leið yfirleitt en til Reykjavíkur. Annað minntist ég ekki á í þessu sambandi, en það er nú annað mál.

Úr því að ég er kominn hingað upp, þá hlýtur mér að leyfast að spyrja, hvort að dönsku sérfræðingarnir, — hæstv. samgrh. talaði um danska verkfræðinga — muni ekki vera þeir hinir sömu og fengnir voru til landsins 1967 og felldu dóm um hagkvæmni varanlegra vega víðs vegar um landið. Ef svo skyldi reynast, sem ég hef grun um, þá munu þetta vera sömu verkfræðingarnir eða öllu heldur hagfræðingarnir með vegaflutninga að sérgrein sem felldu þann úrskurð að ekki borgaði sig að byggja varanlega vegi á Austfjörðum vegna þess að þar yrði aldrei lifað menningarlífi — á dönsku „kulturliv“. Hagkvæmara væri miklu að þjappa saman byggðinni á Suðvesturlandi og byggja þar upp varanlega vegi, fyrst og fremst vegna þess að vegirnir eru styttri „og der kan man jo leve et kulturliv“. Ég hef grun um að þetta séu hinir sömu dönsku sérfræðingar sem reiknuðu út að það væri miklu ódýrara að byggja brú yfir Borgarfjörð langsum eða þversum upp í Borgarnes. Og að einu skulum við gá, að hinn varanlegi hringvegur, sem er um rætt í þessu frv., á ekki að liggja vestur Mýrar út á Snæfellsnes. Brúin kemur ekki til með að stytta veginn til Akureyrar ákaflega mikið. Ég er hræddur um að útreikningar dönsku sérfræðinganna byggist á einhverju öðru en íslenskum aðstæðum.