17.12.1974
Efri deild: 25. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 993 í B-deild Alþingistíðinda. (835)

15. mál, happdrættislán ríkissjóðs vegna Norðurvegar og Austurvegar

Jón G. Sólnes:

Herra forseti. Ég skal ekki verða til þess að lengja verulega umr. um þetta frv. sem nú þegar eru orðnar alllangar. En út af þeim ummælum, sem hafa verið viðhöfð við þessa umr., kemst ég ekki hjá að segja nokkur orð.

Ég vil þá fyrst leyfa mér að benda á þá staðreynd — ég held að það sé rétt að menn geri sér ljóst að það verður ekki fram hjá þeirri staðreynd gengið — að skv. orðanna hljóðan í þessu frv. og ef það á undir nokkrum kringumstæðum að ná marki sinn eða tilgangi sem happdrættislán, þá gerist það ekki nema lánið standi tiltölulega langan tíma. Frv. gerir ráð fyrir 10 árum, og við höfum reynsluna af því að þar sem slík heimildarákvæði hafa verið fyrir hendi hafa þau verið notuð til hins ítrasta, svo að dæmið blasir alveg við. Þetta lán, ef þetta frv. verður að lögum, verður með það fyrir augum tekið að ekkert af því verður endurgreitt fyrr en eftir 10 ár. Sú staðreynd blasir því við að við erum að taka lán af gjörsamlega óþekktri stærð þegar það verður endurgreitt. Og ég verð að segja að mér finnst það lýsa vægast sagt lítilli ábyrgðartilfinningu þegar er farið að hreyfa því af hv. þm. þessarar d. að hér geti jafnvel verið um ódýrt lán að ræða, sem sé verið að taka undir þessum kringumstæðum.

Ég hjó eftir því hjá hv. 5. þm. Austf., þegar hann var að hugleiða — sem ég hygg að sé rétt hjá honum — að stuðla eigi að sem mestum sparnaði í þjóðfélaginu, að hann virtist komast að þeirri niðurstöðu að verðtryggð skuldabréf stuðli að auknum sparnaði í þjóðfélaginu. Þá er mér spurn: Í hverju liggur sá sparnaður? Erum við

þá komnir út á þann hála ís að slá því föstu að verðbólga sé sparnaður? Af því leiðir, ef við erum komnir að þeirri niðurstöðu, að sem mest verðbólga skapar sem mestan sparnað. Það hlýtur að vera eðlileg afleiðing af þeirri hugsun ef eitthvað vit er í. Annars held ég að því meira sem rætt hefur verið um þetta frv. og einmitt fjármögnunarleið, því sannfærðari verð ég um að við erum hér á rangri leið. Ég vil benda á, hef gert það áður og ítreka enn að þessi fjáröflunarleið, þessi fjármögnunarleið þekkist hvergi annars staðar í frjálsu vestrænu þjóðfélagi. Hún er ekki til. Ég vil biðja hv. stuðningsmenn þessa frv. og þá, sem standa að því, að benda mér á ef ég fer með rangt mál.

Ég er alinn upp við þá lífsskoðun og er mótaður af því að traustur gjaldmiðill sé ein styrkasta stoð fyrir sjálfstæði hverrar þjóðar. En með þeirri fjármálastefnu, sem hefur verið fylgt undanfarin ár í okkar þjóðfélagi, hefur markvisst verið unnið að því að grafa undan gjaldmiðli þjóðarinnar, og við þekkjum best af eigin reynd hvaða augum er lítið á þann gjaldmiðil sem við höfum leyfi til að fara með út úr landinu, ef við sýnum hann einhvers staðar á erlendum peningavettvangi. Það er vægt að orði komist að segja að ef maður kemur í einhverja fjármagnsstofnun og býður þennan gjaldmiðil okkar til sölu, þá er litið á okkur kurteisilegum meðaumkunaraugum. Þetta er sú virðing sem blasir við okkur þegar við erum komnir út fyrir landssteinana að því er snertir það fé sem við höfum á milli handanna. Ef það á svo að vera stefnumarkandi einmitt nú þegar ný ríkisstj., sem telur sig þurfa margt að bæta í þjóðfélaginu, er nýsest að völdum, ef það á að vera stefnumarkandi í hennar fjármálapólitík að gangast fyrir meiri og vaxandi skuldbindingum sem eru vísitölutryggðar skuldbindingar eða verðtryggðar, eins og allir heimta nú og krefjast, þá ber ég mikinn kviðboga fyrir því hvernig fer um fjármál okkar í framtíðinni.

Ég get gefið þá yfirlýsingu, að þegar ég var í þeirri kosningabaráttu sem ég háði fyrir síðustu þingkosningar, þá lét ég skýrt og skorinort í ljós, hvar sem ég talaði, að ég mundi vilja berjast fyrir því að það væri staðinn vörður um þá stefnu að efla og treysta gjaldmiðil þjóðarinnar. Ég mun reyna að vera trúr þeirri lífsskoðun minni, vegna þess að ég held að með því sýni ég-líka mesta festu og tryggð við grundvallarskoðanir þess stjórnmálaflokks sem ég hef fylgt og hef verið kosinn til að vera fulltrúi fyrir á hinu háa Alþingi.