17.12.1974
Efri deild: 25. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 996 í B-deild Alþingistíðinda. (841)

112. mál, opinberar fjársafnanir

Flm. (Helgi F. Seljan):

Herra forseti. Þetta frv. til l. um opinberar fjársafnanir er endurflutt frá síðasta þingi og ég get leyft mér að vísa að nokkru til þeirrar framsögu sem ég flutti þá um þetta mál.

Ástæður þess að ég flyt lagafrv. þetta eru nú að mestu leyti persónulegar, að því leyti til að sjálfur hef ég í mínu heimahéraði staðið fyrir söfnunum af ýmsu tagi fyrir ýmsa aðila. Ég hef oft staðið uppi með tugþúsundir í höndum og væri þetta í dag, þá jafnvel hundruð þúsunda. Ég hef gert skil á þessu sjálfur, ég held nokkurn veginn samviskusamlega, en eftirlit með þessu hefur nær ekkert verið og það hefur vægast sagt verið heldur óviðkunnanlegt að gera skil eftir þessar safnanir. Ég mundi t.d. ekki nú í dag taka að mér söfnun sem þessa án þess að bæði skilagrein og eftirlit væri fullkomlega tryggt. Í öðru lagi hef ég eins og aðrir þjóðfélagsþegnar lagt fram fjármuni til ýmiss konar safnana af þessu tagi og staðreyndin verið sú, að oftast nær hef ég vitað lítið um niðurstöður. Þetta hlýtur að vera hvimleitt fyrir báða aðila, bæði gefendur og þá sem að söfnun standa.

Ég vil taka skýrt fram að varðandi þessar safnanir yfirleitt er ég þeim frekar hliðhollur. Ég met ýmislegt sjálfboðaliðastarf sem að baki þessum söfnunum stendur oftast nær, og ég tek það einnig fram að þessar safnanir ná nær alltaf til einhverra góðra málefna. Ég álít aðeins að hér vanti lagaákvæði sem séu báðum aðilum jafnnauðsynleg og kannske ekki síst þeim sem að söfnuninni standa. Frv. er nefnilega ekki sett til höfuðs söfnunum á heilbrigðum og eðlilegum grundvelli. Frekar mætti segja að það væri undirstrikun á réttmæti og tilvist þeirra, jafnhliða því sem þessar safnanir hefðu sitt eðlilega aðhald.

Ég vil sem sagt fá hér í okkar löggjöf svipuð ákvæði og eru viða í lögum erlendis. Ágætur lögfræðingur hér í borg, Arnmundur Backmann, hefur kynnt sér rækilega lög þetta varðandi, og það frv., sem hér er flutt, er að miklu leyti samið af honum og sniðið eftir dönskum lögum, og það er víst ekkert einsdæmi um lög hér á landi. Mér er tjáð að reynsla af þessari lagasetningu á Norðurlöndum sé mjög góð. Safnendur séu ánægðir. Þeir telji sinn hlut betur tryggðan með þessum hætti. Þeir telji að óréttmæt gagnrýni, sem þeir verða oft fyrir, sé með þessu kveðin niður og þeir standi betur að málinu og uppréttari eftir en áður.

Það verða ýmsar spurningar uppi um aðferðir og takmarkanir varðandi þessar fjársafnanir. Á því hygg ég sé engan algildan mælikvarða hægt að finna. Þetta frv. er fremur hugsað sem rammi, og frá minni hálfu er velkomið að hv. þn. færi á annan og betri veg það sem mönnum sýnist að betur mætti fara, og án efa er þar um einhver tiltekin atriði að ræða sem svo er ástatt um.

Ég skal rétt fara yfir greinar frv.

1. gr. skýrir sig sjálf, þar sem fjársöfnun er heimiluð, en jafnframt er tekið fram að minnst 3 menn beri ábyrgð á söfnuninni hverju sinni, og hlýtur það að teljast sjálfsagt.

Í 2. gr. eru skýr ákvæði um það, að þessi lög taki ekki til safnana innan ákveðinna félaga eða samtaka. Við vitum að í félögum og samtökum yfirleitt, ef safnanir eru hafðar innan þeirra, þá hefur hver félagsmaður eða á að hafa greiðan aðgang að öllum upplýsingum um söfnunina. Það er t.d. sjálfsagt að hver félagsskapur hafi fullt frelsi til safnana innan sinna vébanda meðan ekki er farið þar út fyrir.

Í 3. gr. er kveðið á um tilkynningarskyldu aðila til lögreglustjóra, en þar sem hann er ekki til staðar til viðkomandi yfirvalds á staðnum, og síðan er sagt hvernig þessi tilkynning á að vera úr garði gerð. Hún skuli bera það með sér hver standi fyrir fjársöfnuninni, hvenær fjársöfnun skuli fara fram, hvar og hvernig og síðast en ekki síst í hvaða tilgangi fjársöfnunin fari fram.

Í 4. gr. er sagt að opinber fjársöfnun á götum eða í húsum sé háð leyfi dómsmrn. Það verður að teljast sjálfsagt. Og fjársöfnun með keðjubréfum er óheimil skv. þessu lagafrv. — Það mætti reyndar taka til athugunar hvort þessi blessuð keðjubréf ættu ekki að vera algjörlega bönnuð. Þetta er heldur óhugnanleg plága, og ég hugsa að það mundi gleðja margra hjörtu ef þau væru bönnuð að fullu og öllu, því að þau hafa gengið út fyrir öll eðlileg takmörk og að því er ég best veit hafa þau gengið jafnvel út yfir það að vera hótanir um líkamsmeiðingar eða líflát. En vitanlega eru þau komin erlendis frá, samkvæmt einhverri bandarískri fyrirmynd eflaust.

Í 5. gr. er tekið fram að því fé, sem safnast kann, skuli komið fyrir í banka- eða gíróreikningi sem stofnaður er af þessu sérstaka tilefni og óheimilt sé að nota féð í öðrum tilgangi en upphaflega var ætlað nema með leyfi dómsmrn. Það er vissulega svo, að það er engin ástæða til að vera að blanda fjárreiðum félags eða samtaka — eigin fjárreiðum þeirra við tiltekna söfnun. Á þessu er viss hætta, og mér er ekki grunlaust um að einhvern tíma hafi þetta gerst. Besta tryggingin gegn því er að sú upphæð, sem safnast í þessum sérstaka tilgangi, sé lögð inn á sérstakan banka- eða gíróreikning, og ég sé enga erfiðleika á því fyrirkomulagi.

6. gr. um reikningshaldið, sem sé endurskoðað af löggiltum endurskoðanda eða þeim er dómsmrn. kann að útnefna til slíks, það mun kannske þykja nokkuð strangt, en er engu að síður að mínu viti sjálfsagt, og einnig í 7. gr., sem er um það að reikningseftirlitið skuli birt áður en 6 mánuðir eru liðnir frá því að fjársöfnun lýkur, a.m.k. einu sinni í dagblaði, vikublaði eða á annan hátt. Ef fjársöfnunin er innan við 100 þús. kr. nægir að tilkynna opinberlega að reikningsyfirlit sé til sýnis á nánar tilteknum stað. Viðkomandi lögreglustjóra skal sent reikningsyfirlit söfnunarinnar ásamt tilkynningu um hvar og hvenær birting skuli fara fram.

Þetta er ég viss um að mörgum þykir fullstrangt. En hér er oft um að ræða upphæðir sem skipta hundruðum þúsunda, jafnvel millj. kr. Ég tek dæmi af söfnun hér fyrir ekki alls löngu, fyrir nokkrum árum, ágætri söfnun eflaust, sem skilaði milljónum króna. Ég heyrði óneitanlega leiðinlegar tortryggnisraddir varðandi þessa söfnun, skilagrein á henni. Þær hafa áreiðanlega verið óverðskuldaðar. En þetta fyrirkomulag hefði sem sagt kveðið þær algerlega niður ef þannig hefði verið að farið. Það er sjálfsagt að um tvenns konar birtingarskyldu sé að ræða, annars vegar um hinar stærri upphæðir og hins vegar um hinar smærri, sem eru innan við 100 þús. kr.

Um undantekningar samkv. 8. gr. þarf varla mörg orð. Það er um söfnun á notuðum verðlitlum hlutum, sem lögin taka ekki til, og fjársafnanir á vegum dagblaðs í opinberu góðgerðarskyni, enda kemur það auðvitað fram í samræmi við anda laganna að dagblaðið birtir þá skrá yfir framlag allra gefenda og viðkomandi dagblað birtir viðurkenningu þeirra einnig er veita fénu viðtöku að söfnun lokinni. Þessar undantekningar held ég að séu sjálfsagðar og í þriðja lagi fjársafnanir við guðsþjónustur eða samkomur sem haldnar eru á vegum trúarfélaga Þar held ég okkur sé nauðsynlegt að mega treysta drottins þjónum einnig fyrir veraldlegum fjármunum eins og þeir eiga að sjá okkur fyrir hinum andlegu fjársjóðum.

Í 9. gr. eru nánari reglur og 10. gr. um að brot gegn lögum þessum varðar sektum nema þyngri refsing liggi við að öðrum lögum.

Ég tel frekari skýringar á frv. þessu óþarfar. En hitt ætti að vera öllum fullljóst af orðum mínum, að ástæðurnar eru þær helstar að fá hér einhverja löggjöf sem líkasta því, sem gildir í okkar nágrannalöndum og tryggja að þessar fjársafnanir lúti heilbrigðu og eðlilegu eftirliti, en séu jafnframt lögverndaðar. — Ég sagði áðan að það mætti eflaust breyta þessu frv. lagfæra og auka við hin ýmsu ákvæði þess.

Ég skal að lokum taka það skýrt fram, að þó að ég persónulega sé ekki hrifinn af öllum þeim söfnunum, sem yfir fólkið dynja, og ég áliti að samfélagið, ríkisvaldið, eigi sem best að tryggja það að þessar safnanir séu óþarfar, einkanlega þær sem eru bestar og hafa göfugastan tilgang, þá er það svo að fólki finnst oft að þessi aðferð sé sjálfsögð, sé fljótvirkasta leiðin til að ná einhverju ákveðnu settu markmiði, og þá er rétt að tryggja jafnframt eins og best verður á kosið örugga framkvæmd þeirra safnana og örugg skil á því sem safnast.

Ég tel að þessi löggjöf muni verða almennt séð, gegn því sem ég hef nú heyrt mótbárur við, jákvæð fyrir slíka starfsemi. Það er flutt í þá veru. Ég hygg að mörgum safnendum muni reynast þessi lög góð stoð siðar meir ef þetta frv. nær fram að ganga.

Ég vil svo, herra forseti, leyfa mér að óska þess að að lokinni þessari umr, verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.