17.12.1974
Neðri deild: 23. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í B-deild Alþingistíðinda. (846)

111. mál, Hitaveita Suðurnesja

Frsm. (Magnús Kjartansson):

Hæstv. forseti. Iðnn. hefur fjallað um þetta mál á einum fundi. Fyrir þeim fundi lá bréf frá samstarfsnefnd sveitarfélaganna á Suðurnesjum, sem ég vil lesa, með leyfi hæstv. forseta. Það er svo hljóðandi:

„Að undanförnu hefur framkvæmdanefnd vegna Hitaveitu Suðurnesja, sem var kosin af samstarfsnefnd sveitarfélaganna á Suðurnesjum, unnið að því í samvinnu við iðnrh., fjmrh. og starfsmenn þeirra að semja frv. það til l. um Hitaveitu Suðurnesja, sem nú liggur fyrir hv. Alþ. Var það í framhaldi af undirbúningsviðræðum, sem átt höfðu sér stað í tíð fyrri ríkisstj., en hlé hafði orðið á þeim vegna stjórnarskiptanna. Á meðan á samningu frv. stóð gafst samstarfsnefndinni jafnan kostur á að fylgjast með framvindu mála og koma sjónarmiðum sinum á framfæri við framkvæmdanefndina. Enn fremur hefur efni frv. verið kynnt fyrir öllum sveitarstjórnunum á Suðurnesjum. Þar sem það er einlæg ósk suðurnesjamanna að framkvæmdir við hitaveituna geti hafist sem allra fyrst, skorar samstarfsnefndin hér með á iðnn. og alþm. alla að veita frv. brautargengi án tafa, svo að það geti orðið að lögum áður en til jólaleyfis alþm. kemur.

Virðingarfyllst.

Í samstarfsnefnd sveitarfélaganna á Suðurnesjum:

Eiríkur Alexandersson, bæjarstjóri, Grindavík.

Jóhann Einvarðsson, bæjarstjóri, Keflavík.

Alfreð G. Alfreðsson, sveitarstjóri, Sandgerði.

Haraldur Gíslason, sveitarstjóri, Gerðahreppi. Guðmundur Hauksson. sveitarstjóri, Vogum.

Jósef Borgarsson, oddviti, Höfnum.

Albert K. Sanders, sveitarstjóri, Njarðvík.“

Við í iðnn. komum okkur saman um það einróma að fallast á þessi tilmæli allra sveitarfélaga á Suðurnesjum. Að vísu er það dálitið óvenjulegur háttur að afgreiða mál án þess að n. geti lagt í sjálfstæða vinnu í sambandi við það og ég tel að slíkt þurfi að vera undantekning í okkar störfum á þingi. En þetta mál er þannig vaxið að um það hefur verið fjallað bæði af fyrrv. ríkisstj. og þeirri núv., og ég hygg að allir þingflokkar hafi góða vitneskju um það, þannig að ég geri ekki ráð fyrir að það hefði komið til neinna breytinga af hálfu n. þótt hún hefði haft ráðrúm til þess að fjalla lengur um málið.

Ég skil ákaflega vel að suðurnesjamenn vilja að Alþ. standi þannig að þessu máli að hægt sé að ráðast í fjáröflun og aðrar nauðsynlegar framkvæmdir sem allra fyrst, og við í iðnn. vorum sammála um að vilja stuðla að því að okkar leyti. — Ég held, að þetta séu nú meginatriðin í afstöðu n. í heild.

Ég vil svo einnig víkja að brtt. sem ég flyt á þskj. 157. Hún er flutt af mér, ekki till. n. Ég vil taka það skýrt fram, þótt ég geri hvort tveggja í sömu ræðunni, að mæla fyrir n. í heild og þessari till.

Ég vék að því í sambandi við 1. umr. málsins, að ég hefði talið það mjög eðlileg vinnubrögð að afgreiða samtímis þetta mál og frv. til l. um breyt. á orkul., sem fjallar um háhitasvæði, vegna þess að eignarréttarvandamál kemur þarna upp og skiptir ákaflega miklu máli hvernig það verður leyst. Það var um það talað í n. að við afgreiddum þetta mál um háhitasvæði að loknu jólaleyfi, og ég vona að okkur takist að ná samstöðu um það mál, því að ég held að þar sé um meginatriði að ræða sem þurfi að fá skorið úr hér á Alþ. En ég hef lagt það til í sambandi við þetta frv. um Hitaveitu Suðurnesja, án þess að ég ætlist til þess að það valdi nokkrum deilum eða töf, að 14. gr. frv. breytist dálitið, verði svo hljóðandi:

„Ríkið á allan rétt til umráða og hagnýtingar jarðhita í Svartsengi við Grindavík og uppleystra efna og gastegunda sem háhitavatni og gufu fylgja. Ráðh. getur heimilað Hitaveitu Suðurnesja að taka eignarnámi lönd, mannvirki og önnur réttindi sem nauðsynleg eru til framkvæmdanna samkv. l. þessum. Um framkvæmd eignarnámsins fer eftir l. nr. 11 frá 1973:“

Þarna er sem sé skilið á milli orkunnar, sem um er að ræða á þessu háhitasvæði, og annars eignarréttar, sem fer að sjálfsögðu eftir almennum lögum, en lagt til að ríkið lýsi yfir því að orkan sé eign almennings, almannaeign í landinu. Ég hygg að ef þessi brtt. yrði samþykkt, þá mundi ganga betur að útkljá þá samninga sem nú standa yfir milli iðnrn. og eigenda þessa svæðis. Ég óttast dálítið að það kunni að hljótast töf af því að eigendur svæðisins gera sér allháar hugmyndir um greiðslu fyrir orkuna. Ef Alþ. sker úr um þetta mál geri ég ráð fyrir að þessir samningar mundu nást með auðveldari hætti en ella mundi og það geti hreinlega flýtt fyrir framkvæmd málsins.

Ég legg sem sagt fram þessa till., en ég vil leggja áherslu á bað, bæði af minni hálfu og af hálfu n. í heild, að við óskum eftir því að bæði Nd. og Alþ. allt stuðli að því að frv. verði að lögum fyrir jólaleyfi.