12.11.1974
Sameinað þing: 6. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (85)
Umræður utan dagskrár
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Út af því, sem hv. síðasti ræðumaður, 10. landsk. þm., Axel Jónsson, sagði um að hann fagnaði því að ég hefði þessa skoðun á málinu í dag og hefði þannig tekið sinnaskiptum, vil ég segja þessum hv. þm. það — og ég ætlast til þess að hann taki það til athugunar — ég vil biðja hann að benda mér á hvar hann getur fundið einhver þau ummæli, sem ég hafi viðhaft í þá átt að ég teldi að það þyrfti ekki að efla tekjustofna sveitarfélaga eða að ég hafi haft aðra skoðun á þessum málum í tíð fyrrv. ríkisstj. heldur en ég hef nú.
Þessi hv. þm. kom hér inn á fyrirspurn sem hann hafði beint til þess hæstv. félmrh. sem ekki var næst á undan hæstv. núv. ráðh., heldur þar næst á undan. Nú skal ég ekkert um það segja hverju þáv. félmrh. hefur svarað í þessum efnum, en það breytir engu um mitt álit. Ég var ekki og er ekki og ætla mér ekki að vera nauðbeygður til þess að hafa einhverja sömu skoðun og einhver tiltekinn flokksbróðir minn. Ég ætla að hafa mína skoðun, en því er þessi hv. þm. kannske óvanur, að eiga kost á að láta sína eigin skoðun ráða, þar ráða aðrir. En nóg um það.
Ég vil þakka hæstv. félmrh. fyrir þau svör sem hann gaf hér, þó að ég hins vegar harmi að það skuli ekki af hálfu hæstv. ríkisstj. hafa verið tekið til athugunar að leysa þessi vandkvæði sveitarsjóðanna á heildarplani. Og ég tek undir þau ummæli, sem hér voru viðhöfð af hv. þm. Helga F. Seljan, að hér er í reynd um herfilega mismunun að ræða, annars vegar milli borgarsjóðs Reykjavíkur og hins vegar milli hinna ýmsu smærri sveitarsjóða víðs vegar um landið. Það er engin smáupphæð, 600 millj. kr. fyrirgreiðsla í einu. Það hefði verið kvartað og kveinað, hefði verið farið fram á slíkt fyrir landsbyggðina í heild utan Reykjavíkursvæðisins. Þá hefði verið talið að hér væri um mikla summu að ræða. Og ég tel, að það geti vart líðist annað en félmrh., hæstv. bankamrh. eða allra helst ríkisstj. í heild taki þetta mál þannig upp að hún leysi það á því plani að öll sveitarfélög, sem eiga í greiðsluerfiðleikum álíka og Reykjavíkurborg, að þau njóti sams konar fyrirgreiðslu og borgin hefur fengið. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa sveitarstjórnarmanna og landsbyggðarmanna yfirleitt hringinn í kringum landið, það fer ekki hjá því. Og af því að ég sé að ríkisstj. hefur ekki hugsað sér að taka málið svona upp, þá vil ég eindregið skora á hæstv. félmrh. að hann beiti sér fyrir því innan ríkisstj., að þetta mál verði tekið upp á þennan hátt. Ég a.m.k. var að vona og hef raunar veika von um það enn, að þetta væri ekki sú hin mikla byggðastefna, sem núv. stjórnarflokkar ætluðu sér að taka upp, að þetta væri fyrsta dæmið um slíka byggðastefnu. Og ég ítreka áskorun mína til hæstv. félmrh. og ríkisstj. í heild að hún sjái til þess að ríkisbankarnir veiti öðrum sveitarfélögum víðs vegar í kringum landið sams konar fyrirgreiðslu og Reykjavikurborg hefur nú fengið.