17.12.1974
Neðri deild: 23. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1005 í B-deild Alþingistíðinda. (855)
107. mál, íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins
Flm. (Ellert B. Schram):
Forseti. Á þskj. 126 hef ég leyft mér að flytja lítið frv. til l. um breyt. á l. um íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins. Fyrir nokkrum árum var gerð sú breyting í þessum l. að húsnæði í eigu ríkisins, sem notað var sem prestssetur, skyldi selt þegar það var ekki notað lengur af þeim prestum, sem þá dvöldu í húsunum, og andvirði húseignanna látið ganga í ríkissjóð. Þessi breyting hefur valdið nokkrum vandkvæðum fyrir presta og söfnuði í þéttbýli, vegna þess að prestar, sem eru í prestaköllum hér í þéttbýlinu, hafa átt í erfiðleikum með að koma sér upp húsnæði í viðkomandi prestakalli.
Prestssetur, bæði í þéttbýli og dreifbýli, gegna fjölþættu hlutverki eins og alþjóð er kunnugt, bæði beint kirkjulegt starf og annað sem snertir félagsleg vandamál í viðkomandi prestakalli, og það er brýn nauðsyn að aðstoða söfnuði við að reisa annaðhvort heimili, húsnæði á vegum safnaðarins eða aðstoða presta við að byggja og búa í viðkomandi héraði eða viðkomandi prestakalli. Því er þetta frv. flutt til að veita þessa aðstoð. Hér er ekki beðið um neina fjárveitingu beinlínis úr ríkissjóði, heldur að l. sé breytt í það form að þegar viðkomandi fasteignir séu seldar, þá í stað þess að andvirðið gangi beint í ríkissjóð renni það í sérstakan sjóð sem síðan skal notaður til að veita þeim söfnuðum styrk er sjálfir vilja tryggja sóknarprestum sinum húsnæði, enda verði þá húsnæðið í eigu safnaðarins. Síðan er nánar kveðið á um, hvernig með vörslu og meðferð sjóðsins skuli fara.
Frv. er flutt að beiðni presta og safnaða hér í þéttbýlinu, ekki aðeins í Reykjavík, heldur í nágrenni Reykjavíkur. Það er í samræmi við ályktanir prestastefna, og eru eindregin tilmæli þessara aðila, að Alþ. sýni þessu máli skilning og veiti þessu máli lið.
Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og fjh.- og viðskn.