17.12.1974
Neðri deild: 26. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1021 í B-deild Alþingistíðinda. (882)
84. mál, útvarpslög
Lúðvík Jósepsson:
Herra forseti. Í tilefni af því, sem hér hefur verið sagt um vinnubrögð hér á Alþ. og umr. um þetta mál, vil ég taka undir það, að ég er á sömu skoðun og kom fram hjá hv. 5. þm. Vestf. Ég tel í rauninni ekki sæmilegt að standa þannig að umr. um þetta mál, sem vitað er að eru miklar deilur um hér á Alþ., að umr. um það fari hér fram á þeim tíma, sem allmargir þdm. geta hreinlega ekki verið viðstaddir eða tekið þátt í þeim umr. Það er ekki frambærilegt.
Ég vil einnig vekja athygli á því, að það eru aðeins eftir fáir starfsdagar af þinginu fram að jólaleyfi, og eftir því sem mér hefur verið gerð grein fyrir um allmörg og viðamikil mál að ræða, sem ríkisstj. leggur áherslu á að nái fram að ganga fyrir jólaleyfi. Ég get ekki séð að það sé nokkur möguleiki á því að koma þeim málum öllum fram ef á að eyða hér fullum tíma í umr. um þetta mál. Ég verð því að segja, að ég vil eindregið óska eftir að þessum fundi, af því að það er rétt komið að kvöldmatartíma, verði nú frestað og málið verði þá tekið til athugunar af hæstv. ríkisstj., hvort hún leggur áherslu á að þetta mál verði tekið til umr, hér og afgreiðslu á þeim stutta starfstíma fram að jólaleyfi. Geri hún það, þá auðvitað er augljóst mál að önnur mál, sem ætlað er að koma fram, lenda í hættu. Það er þá engin leið að koma öllum þessum málum fram, það er alveg augljóst. Þó að hæstv. menntmrh. leggi á það allmikla áherslu að koma þessu máli fram og fá möguleika á því að skipt verði um útvarpsráð, þá get ég ekki skilið að það skipti öllu máli hvort þessi skipti á útvarpsráði fara fram núna rétt fyrir jólin eða hvort þau skipti eiga sér stað eftir einn mánuð, í janúarlok. Það getur ekki staðið svo glöggt varðandi þetta. Ég býst við að aðalatriðið frá hans hálfu sé að koma fram þeirri skipulagsbreytingu, sem hér er verið að leggja til um kosningu útvarpsráðs, en svo tæpt held ég að það geti varla staðið, að það sé einhver hætta, sem stafi af því útvarpsráði, sem nú er, svo mikil, að það sé ekki hægt að þola þetta útvarpsráð í einn mánuð, líklega til að stjórna þeirri dagskrá sem búið er að taka ákvarðanir um.
Ég legg því eindregið til, herra forseti, að þessum fundi verði frestað, umr. verði ekki haldið áfram um þetta mál og það verði athugað nánar hvort rétt þyki, miðað við allar aðstæður, að eyða takmörkuðum tíma þingsins nú í umr. um þetta mál og tefja á þann hátt afgreiðslu annarra mála, sem er þó nokkurn veginn augljóst að þarf að afgreiða fyrir jól.