17.12.1974
Neðri deild: 26. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1028 í B-deild Alþingistíðinda. (889)

36. mál, virkjun Bessastaðaár í Fljótsdal

Sverrir Hermannsson:

Virðulegi forseti. Ég sá ástæðu til þess hér áðan, þegar málið var tekið á dagskrá, að biðja um frestun vegna fjarveru hæstv. iðnrh., því að ég á erindi við hann sérstaklega vegna allsérkennilegrar ræðu sem hann flutti um þetta dagskrármál fyrr í kvöld.

Þegar ég í dag varð þess áskynja að á dagskrá hv. d. var virkjun Bessastaðaár, óskaði ég eftir því við hæstv. forseta að það mál yrði tekið út af dagskrá. Mér gekk ekkert til með þeirri ósk minni annað en það, að ég var þess mjög fýsandi að vera viðstaddur þegar umr. færi fram. Alls ekkert annað gekk mér til, og köpuryrði í þá átt, að ég vilji drepa þessu máli á dreif, eru algerlega út í hött. Ég hafði enga hugmynd um að mönnum væri svo brátt í brók með að koma þessu máli fram sem raun virðist bera vitni um. Það hafði aldrei verið um það getið, t.d. í þingflokki Sjálfstfl., að þetta væri eitt af þeim málum sem í miðjum jólaönnum þyrfti að koma fram, — aldrei verið orðað einu orði.

Ég hafði lögmæta afsökun fyrir því að vera ekki við hér á fundum í dag, það var hæstv. iðnrh. fullkunnugt um og ég skýrði það fyrir honum. Eftir sem áður lagði hann alla áherslu á að þetta mál yrði tekið hér fyrir og afgr. út úr d. Að því búnu gat ég þess við hæstv. forseta, að það yrði þá svo að vera, ég vildi ekki gera þetta að slíku ágreiningsmáli. Enda þótt ég hefði þetta í frammi varðandi málsmeðferðina er algerlega ástæðulaust að væna mig um að ég sé með þeim hætti að drepa þessu máli á dreif.

Hæstv. iðnrh. segir, að það muni hafa farið fram hjá mér samþykkt aðalfundar Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi. Það fór ekkert fram hjá mér. Og af því sagði hann: Þessi hv. þm. hirðir ekki um að mæta á fundum sem hann er boðaður á eða boðið til. — Ég veit nú ekkert hvaðan hæstv. iðnrh. koma upplýsingar um þau boð sem ég fæ. En Sverri Hermannssyni var ekki boðið á þennan fund, heldur var þm. Sjálfstfl. í Austurl. boðið á hann, og þm. Sjálfstfl. mætti með þeim hætti, að varamaður hans gerði það, en ekki af því að aðalmaðurinn væri að skrópa eða hirti ekki um að mæta, heldur af óviðráðanlegum ástæðum. Og það hefur verið talið, bæði þar og hér í þingi, að það væri fullmætt í forföllum, þegar varamaður tekur sætið, svo að ég vísa líka þessum köpuryrðum frá.

Nei, samþykktin fór ekkert fram hjá mér. En í samþykktinni segir, með leyfi hæstv. forseta: „Aðalfundur SSA 14. og 15. sept. 1974 skorar á iðnrn. og Alþ. að sett verði lög um virkjun Bessastaðaár í Fljótsdal á komandi þingi.“

Ég veit ekki til þess að það eigi að slíta þessu þingi nú fyrir jól og þessi samþykkt fór ekkert fram hjá mér. Það stendur ekkert í henni, að þetta mál skuli ná fram að ganga og það sé skorað á hið háa Alþ. að þetta mál nái fram að ganga fyrir jól. Nei, þessi samþykkt fór ekkert fram hjá mér. En það kannske fer að hvarfla að mér, að til þess að ég nái hlustum hæstv. iðnrh. þurfi ég kannske fyrst að snúa mér til Sambands sveitarstjórna í Austurlandskjördæmi og biðja þá fyrir málefni mín til þess að hann telji þau þess virði að sinna þeim sérstaklega.

Ég vil í þessu sambandi minna á að það var eins og það hefði farið fram hjá hæstv. iðnrh. að þingflokkur hans kostaði til þess fé í fyrravetur, sem voru laun til sérfræðinga, að undirbúa þáltill. um að lokið yrði rannsókn á fyrsta áfanga Austurlandsvirkjunar, Fljótsdalsvirkjun. Þetta virðist hafa farið fram hjá hæstv. iðnrh., því að í allri þessari málafylgju í sambandi við Bessastaðaárvirkjun, löngu m ræðum, hefur hann alveg komist hjá því að geta þess einu orði að þessi málatilbúnaður hafi verið viðhafður og af hans flokksmanni og af eina þm. flokksins í kjördæminu. Ég verð að segja að það er undarlegur eftirrekstur þetta og í meiri máta. Það hafa engin þau rök komið fram, sem með neinum hætti sannfæra mig um nauðsyn þess að þetta gangi fram nú. Þvert á móti hefur fjöldi raka komið fram, sem sýnir okkur fram á að málið er á mjög miklu frumstigi, undirbúningsfrumstigi, rannsóknarstigi. Það eina, sem mér virtist hjá hæstv. ráðh. að hann byggði á, var að þegar væri búíð að samþykkja slíka heimild, þá mundi verða unnið miklu kappsamlegar að framgangi málsins. Hvernig unnið verður að framgangi málsins undir þessum kringumstæðum á hæstv. ráðh. við sjálfan sig. Hann getur alveg stjórnað því. Hann hefur fengið mjög góðar undirtektir við þetta mál hér á hinu háa Alþ. Því hefur verið fagnað og þá alveg sérstaklega ef þetta má verða til þess að bæta úr hinum sára orkuskorti, sem ríkir á Austurlandi.

Ég hafði sérstakar ástæður til þess að vilja ná vopnum mínum í þessu máli, vegna þess að ég hef haft og hef leyfi þingflokks hæstv. iðnrh. til þess að flytja þáltill. mjög í sama anda og ég gerði í fyrra, það, sem hefur tafið þann málatilbúnað, er að ég var að reyna að vinna málinu fylgi. Og það geri ég með því að tala við aðra þm. og það mundi t.d. kannske líka henta, að þingflokksformaður Sjálfstfl., hæstv. iðnrh., ræddi þá við þingflokksmenn sína, ef honum liggur mjög á hjarta um að ná einstökum málum fram, eins og t.d. virðist í þessu tilfelli. En það hefur aldrei verið gert. Þess hefur aldrei verið getið einu orði að þessu máli bráðlægi á, eins og nú virðist komið fram. En ég hef hinkrað við með flutning þessarar þáltill., vegna þess að ég hafði farið á fjörur við hv. þm. Austf., Tómas Árnason, um það að við flyttum þessa till. saman. Hann hefur að sínu leyti verið að rannsaka um ýmsa þætti málsins, sem ekki er óeðlilegt, enda ástæðulaust að fara neitt rasandi að þessu máli. Vænti ég þó að við getum orðið fljótlega sammála um flutning till. í þessa átt, sem ég nú hef greint, eða með þá einhverjum smávægilegum breytingum, t.d. eins og þeirri breytingu að leggja til í leiðinni, að Landsvirkjun t.d. yrði falið að semja lagafrv. um Austurlandsvirkjun.

Þetta vildi ég aðallega sagt hafa. Ég endurtek það, að ég fagna framkomu þessa frv. Ef ég fyndi hin minnstu rök fyrir því að það þyrfti að knýja það fram hér á annamestu dögum þingsins, þá skyldi ég undireins fallast á það. En þau hafa ekki verið færð fram. Þvert á móti er eðlilegasta leiðin sú, að beðið verði með afgreiðslu þessa máls, þangað til fjölmörg óljós atriði í þessu sambandi hafa komið skýrar fram. Ég játa, að þetta er að vísu aðeins heimild fyrir hæstv. ríkisstj. og þess vegna að því leyti ekkert hundrað í hættunni þótt að lögum yrði. En ég á samt von á því að mjög margar verðmætar upplýsingar komi fram sem fullkomin ástæða er til þess að ræða hér á hinu háa Alþ., sem tæplega mundi verða gert ef þetta mál yrði afgreitt áður en þær liggja fyrir. Og það er fjarri því að sé verið að drepa málinu á dreif eða setja fótinn fyrir framgang þess þó að uppi séu höfð varnaðarorð í sambandi við þessi áform sem hér eru. Og m.a. hef ég nú löngun til þess að leggja til að breytt yrði heiti þessa frv., það yrði frv. til l. um fyrsta áfanga Fljótsdalsvirkjunar, vegna þess að uppistöðulónið verður alls ekki í Bessastaðaá, heldur í vötnum uppi á heiði, Hólmavatni, sem er áformað inntakslón fyrir sjálfa Austurlandsvirkjunina. Bessastaðaá er skráþurr löngum og löngum, og þeir, sem til þekkja og gerst þekkja þar eystra, segja að hún kunni að vera ágæt til virkjunar, nema sá galli sé á að mánuðum saman kunni svo að hátta til að ekki renni í henni dropi. Og það er ekkert undarlegt við það, þótt fyrirsvarsmenn í félagsmálum austfirðinga hafi uppi varnaðarorð vegna þeirrar sáru reynslu sem þeir þegar hafa af þessum ókjörum, t.d. Grímsá og nú síðast með Lagarfljótið.

Ég vil geta þess að bóndi austur í Fljótsdal, sem hefur vatnsvirkjun hjá sér, vatnsaflsstöð, hefur upplýst mig um það að síðustu 3 ár hafi verið þau ár sem langsamlega mest vatnsmagn hafi verið þar um slóðir, langmest úrkoma. Og ég vil nú spyrja: Eru þetta þau ár sem mælt hefur verið í Bessastaðaá?

Enn fremur er meira en lítill galli á gjöf Njarðar í þessu tilfelli, meðalrennsli þessarar ár er 4.1 kúbikmetri, en þess er getið að hún geti farið upp í 50 kúbikmetra á sekúndu. Hvað þýðir þetta, ef hún rennur lengi svo? Þá þýðir það að hún getur spýtt fram öllu vatnsmagni sínu á tveimur mánuðum. Nú er þessu þann veg háttað í apríl–maí að þar er bullandi vatn, en eins og ég segi, löngum og löngum og helftina af árinu ekki deigur dropi. En á þessu á að ráða bót með uppistöðulónum. Samt álíta menn að þau verði að vera það viðamikil og stór, að það væri kannske heppilegra að leggja strax undir í þau uppistöðulón sem verða að vera fyrir fyrsta áfanga Fljótsdalsvirkjunar.

Nei, það er fjarri því þótt menn vilji ræða þetta efnislega og láta uppi þær upplýsingar sem þeir hafa í höndum, að það megi flokka það undir að verið sé að setja fótinn fyrir málið eða drepa því á dreif. Það er fjarri lagi.

Ég hef áður bent á að það er ekki til þess að auka manni trú á málinu, það sem segir í grg. með frv. Til þess að efla manni trú á því að hér sé um góðan kost að ræða er farið nokkrum orðum um það, að þessi framkvæmd kunni að verða til þess — ekki að setja fótinn fyrir stórvirkjun á Austurlandi, heldur til þess að efla undirbúning hennar. En það er nú hálfgerður holhljómur í þeim röksemdum, að ekki sé meira sagt. Það er álit þeirra sem til þekkja, að það verði alls ekkert gagn að þessu upp á stærri virkjanir, ef eigi að leiða vatnið niður fjallshlíð í pípu. Eina raunverulega gagnið sé það, ef verður farið í jarðgöng og jarðlögin rannsökuð í leiðinni. En hér er slegið úr og í með það, engin ákvörðun í því efni. Síðan segir hér, með leyfi virðulegs forseta, það er verið að ræða um miðlunarlón Bessastaðaárvirkjunar í Hólmavatni, að það sé „hið sama og gert hefur verið ráð fyrir að verði inntakslón Austurlandsvirkjunar. Önnur mannvirki Bessastaðaárvirkjunar munu ekki nýtast beint, þar eð varla mun borga sig að gera jarðgöng eða pípur þannig úr garði að nýtist báðum virkjununum.“ Ég veit ekki hvaða sérfræðingur semur þetta, sem lætur sér til hugar koma að það kunni kannske að vera þénun fyrir stórvirkjunina að leiða vatnið í pípum utan úr fjallshlíðinni. Nei, það þykir ekki taka því að hafa pípur svo viðamiklar að það geti nýst stórvirkjuninni. „Hins vegar fengist, ef sú leið yrði valin, með jarðgöngum Bessastaðaárvirkjunar haldgóð könnun á jarðlögum á svæðinu.“ Þetta er meginatriðið. „Í þriðja lagi má benda á að við gerð Austurlandsvirkjunar verði þörf mikillar raforku fyrir vélar og tæki sem best fengist frá nálægri vatnsaflsvirkjun.“

Það er einmitt það. Það eru sem sé orðin rök fyrir þessu, að það vanti þarna orku til þess að beygja hina virkjunina. Er það þá ráðið í framtíðinni að byggja litla virkjun til að knýja vélar og tæki og gefa ljós áður en farið er í stærri virkjunina? Hvernig stóð á því að menn uppgötvuðu þetta ekki við Búrfell t.d., að koma sér upp smástöð fyrst til þess að hafa nú góða aðstöðu með þá stóru seinna?

Það er holhljómur í þessu. Rafmagn liggur um þetta svæði, rafmagn að vísu af skornum skammti nú, en hefði verið hægt vissulega að stórauka orkuna með öðrum ráðum en virkjun Hólmavatnsins eða þess sem nefnt er Bessastaðaá. Það var komið lengra á sínum tíma rannsóknum á Fossá í Berufirði og eins Geithellnaá. Þeir telja núna, sérfræðingar, að megi jafnvel fá upp í 60 mw. úr Fossánni.

Það er auðvitað mikilsvert þegar aðalfundir sveitarfélaga gera sínar samþykktir. En það er fjarri því að þeir hafi neina heimild til þess að kveða upp lög. Auðvitað viljum við taka fullt tillit til þeirra.

Nei, ég rifja þetta upp líka vegna þess að þegar borin var fram till. í fyrra um að lokið yrði rannsókn á fyrsta áfanga Austurlandsvirkjunar, Fljótdalsvirkjun, og stjórn sveitarstjórnasambands á Austfjörðum send þessi þáltill. til umsagnar, þá var svarið fljótt að koma til baka. Það tók ekki nema örfáa daga fyrir stjórn Sambandsins að gera ályktun og samþykkt. Svarið hljóðaði upp á áskorun til Alþ. og ríkisstj. um að hraða sem mest mætti verða lagningu línu norður að Kröflu, þannig að aðstaða sveitarstjórnasambandsins eða a.m.k. stjórnar þess hefur verið algerlega neikvæð til þess meira að segja að rannsaka þá möguleika sem kunna að vera fyrir hendi varðandi stórvirkjun á Austurl. Því fremur er ástæða til þess nú að taka það mál föstum tökum sem mér er kunnugt um að erlendir menn, stóriðjumenn, hafa mjög beint augum sínum að þessum möguleikum, svisslendingar norðmenn og bandaríkjamenn. Og mér er kunnugt um að svisslendingar munu hafa boðið sérstaka aðstoð til þess að ljúka rannsóknum á þessu sviði. Um þetta vildi ég fá nánari upplýsingar.

Mér býður einnig í grun að þeim hafi verið tekið þann veginn, svisslendingum, að þeir hafi farið bónleiðir mjög til búðar, og þá vil ég fá að vita hvers vegna það var gert, af hvaða ástæðum. Talið er af sérfróðum mönnum, og ég hef allt mitt vit í þessum efnum úr sérfróðum mönnum, að þarna séu langmestu og stærstu og glæsilegustu möguleikar í Evrópu á stórvirkjun, í Fljótsdal, Austurlandsvirkjun. Fyrir því er það og eingöngu þess vegna sem knúið er á um að hraðað verði rannsóknum á hagkvæmninni. Mér er það ekki nóg þótt farið sé orðum um það að vitanlega verði stuðlað að stórvirkjun á þessu svæði. Allt annað hefur maður fyrir augum í framkvæmdinni. Allt annað hafa hinar dreifðu byggðir fyrir augum í framkvæmdinni en það, að það muni verða sett í fyrirrúm að virkja stórt á Austurlandi, því að reynslan hefur orðið allt önnur. Stórvirkjanir eru hér á Suðurlandi og hin næsta stórvirkjun er Hrauneyjafoss. Þegar menn spyrja: Hvers vegna er nú ekki reynt að huga að byggðastefnunni og dreifa þessu meira? þá er svarið: Af því að undirbúningurinn undir þessa virkjun er langlengst á veg kominn. — Og hvers vegna er hann það? Vegna þess að allmörg síðustu ár hafa ráðið forustunni í þessum málum menn, sem hafa ekki fylgt byggðastefnu í þessum efnum, hvorki varðandi stórvirkjanirnar né stóriðjuna. Það sækir allt hér á Suðvesturlandið. Og það er meira að segja svo komið að norðlendingar eiga nú að kaupa sína raforku frá Suðurlandi, frá Sigöldu og Hrauneyjafossi. Það er hryggileg staðreynd þegar það er haft í huga, að e.t.v. er sá landshluti þrátt fyrir stórvirkjunarmöguleika verst í sveit settur varðandi stóriðju vegna hafíshættu. Þess vegna skyldi maður nú halda, að menn mundu beita sér að því að þeir fengju a.m.k. að virkja og kaupa neysluorkuna af sjálfum sér, en ekki frá Þjórsá. Og ég þykist sjá, ef sama stefnan verður uppi, hvað næsta skref verður. Það verður auðvitað stíflun Þjórsárvera, þeim verður auðvitað sökkt, og svo þegar enn verður spurt: Hvers vegna ættum við ekki að huga að byggðastefnunni, sem fer vel í skálaræðum? þá verður svarið: Af því að þar er komið langlengst rannsóknunum. — Þess vegna er það, að mann grunar, þegar maður berst um á hæl og hnakka að koma fram með till. um að rannsóknir séu hafnar á öðrum möguleikum, — þess vegna hlýtur að vakna sá grunur að hér sé af ráðnum hug verið að drepa málunum á dreif. Og það var þess vegna, vegna þess ljóta gruns, að ég hef ekki með öllu verið ánægður með málafylgjuna varðandi till. um virkjun Hólmavatns.

Stóriðjan næsta, sem er í boði, er svona kortérsróður á árabát frá Reykjaneskjördæmi, í sunnanverðu Vesturlandskjördæmi, heitir það. Einhvers staðar hef ég séð það. (Gripið fram í: Kortérsróður?) Kortérsróður á bát. Er lengur verið að róa yfir Hvalfjörðinn? Látum það vera. Það er kannske hálftímaróður fyrir þá, sem kunna áralagið.

Nei, í þessu máli er auðvitað margt að athuga, og það hefur komið fram í þeim bréfum sem n. hafa borist, að fjölmörg mjög mikilvæg atriði eru alveg ókönnuð. Um þau, úr því sem komið er, óska ég að verði fjallað hér á hinu háa Alþ.

Það kom fram hjá hv. frsm., hv. 1. þm. Sunnl., að þetta mál væri alls ekki á framkvæmdastigi, fjarri því. En hæstv. iðnrh. getur ráðið því og ég hvet hann mjög til þess að baldið verði fast fram sem horfir um allar rannsóknir. Allar ræður manna hér og allar undirtektir hafa verið með þeim hætti að til þess hlýtur hann óhjákvæmilega að hafa fullt umboð, svo að hann þarf þess vegna ekki að fá neina afgreiðslu á þessu máli til þess að unnið verði öllum árum að því áfram að rannsaka þetta mál og flytja okkur síðan upplýsingar um það, sem ég tel að við eigum hér á hinu háa Alþ. að fá tækifæri til að fjalla um.

Ég sé svo ekki að sinni ástæðu til að hafa þessi orð fleiri. Ég aðeins legg áherslu á það í þessu sambandi, að þeir, sem af einlægni vilja vinna að jafnvægi í byggð landsins og halda fram byggðastefnu, hljóta mjög að skoða hug sinn um afstöðu til mála eins og hinnar nýju ráðgerðu stóriðju, nema einhverjar þær yfirlýsingar verði gefnar, sem þeir geti treyst, um að horfið verði að því ráði að fleiri njóti ávaxta af slíkum stórfyrirtækjum eins og stórvirkjanirnar sérstaklega eru, sem ég legg alla áherslu á. Það er alveg óhjákvæmilegt. Enda þótt fyrir liggi nauðsynin, hin þjóðhagslega nauðsyn á því að selja orku okkar til stóriðju, eins og varðandi þetta fyrirtæki, þá er alveg óhjákvæmilegt að þeir, sem vilja af einlægni fylgja fram þannig að gagni megi koma byggðastefnu í landinu, hljóta að fara að hugsa til þess að selja atkv. sitt dýru verði til fylgis við jafnnauðsynlegt mál eins og mér sýnist þó að hitt málið sé.

Okkur nægja ekki orð, heldur athafnir í því sambandi, að unnið verði að lausn hins mikla vandamáls sem byggðamálin eru. Það hafa að vísu stór skref verið stigin í þeim málum, t.d. með Byggðasjóði og eflingu hans. En betur má ef duga skal. Reynslan sýnir okkur miðsækni þessara stórfyrirtækja og fjármunamyndunina að sjálfsögðu um leið á sömu slóðum. Það er auðvitað bara til málamynda að skáka henni niður í Hvalfirði og segja svo að hér sé verið að huga að byggðastefnu. Það er fjarri öllu lagi að hafa þau rök uppi.

Þess vegna er það, að þegar við verðum tilbúnir til þess að leggja fram till. um rannsóknir á Austurlandsvirkjun, þá vænti ég þess fastlega að henni verði vel tekið og fái skjóta afgreiðslu, svo að hægt verði að kanna hið allra fyrsta hvort það er rétt, sem sérfræðingar halda fram, að þarna séu einir glæsilegustu möguleikar til stórvirkjunar sem fyrirfinnast, jafnvel í allri Evrópu.