17.12.1974
Neðri deild: 26. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1042 í B-deild Alþingistíðinda. (893)

36. mál, virkjun Bessastaðaár í Fljótsdal

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Áður en ég vík að efni frv. og nokkrum atriðum í sambandi við það þykir mér rétt að nefna tvö atriði úr ræðu hv. 3. þm. Reykv. Hann kom allvíða við og fór langt aftur í tímann. Hann minntist á ræðu sem ég hafði haldið 1. des. 1945, og er mér mikil sæmd í því að menn skuli muna eitthvað úr ræðum sem ég hélt fyrir 29 árum. Hv. þm. drap líka á sendiherraár mín í Danmörku. Ég ætla nú ekki að ræða þau, en aðeins það sem hann nefndi í því sambandi, að ég hefði lýst því yfir í sjónvarpsspjalli, sem við áttum ekki alls fyrir löngu, að ég teldi þá stefnu ranga sem þáv. ríkisstjórnarflokkar fylgdu um stofnun álversins.

Þetta er mikill misskilningur hjá hv. þm. Allir, sem á það hlustuðu, vita að ég sagði ekki orð í þá átt. Ég lýsti því yfir þar að ég teldi í sambandi við járnblendiverksmiðjuna rétt að íslendingar ættu þar meiri hl., og ég lýsti því yfir að ég líti svo á, að þegar íslendingar stofnuðu til stóriðju hér eftir í samvinnu við erlend fyrirtæki, þá fylgdi ég þeirri stefnu, að íslendingar ættu meiri hl. Ég hef hvorki í þeim orðum né öðrum sagt eitt orð um að ég hafi talið það rangt sem gert var þegar álverið var stofnað. Þegar ráðist var í það fyrirtæki var það í fyrsta sinn sem íslendingar lögðu út í stóriðju í samlögum við fjársterkan erlendan aðila. Þar var auðvitað um tvennt að velja: Annars vegar þá leið sem farin var, að hið útlenda fyrirtæki ætti verksmiðjuna og bæri alla áhættuna, íslendingar hefðu ekki áhættu og ekki fjárframlög að því er stofufé snertir. Hins vegar hefði mátt fara þá leið, að íslendingar ættu meiri hl. í verksmiðjunni, tækju þar með á sig áhættu af rekstrinum og legðu fram mikið fé. Ég get lýst því yfir hér alveg skýrt og skorinort, að ég tel að það hafi verið rétt valið af þáv. ríkisstj. og stjórnarflokkum að fara einmitt þá leiðina að taka ekki á sig áhættu og leggja ekki fram það mikið fé sem til þessa þurfti. Þó að sú stefna hafi verið höfð þá og ég telji að þá hafi verið rétt að farið, er ekki þar með sagt að sama fyrirkomulag eigi að hafa um aldur og ævi.

Annað atriði, sem ég vil drepa á, áður en ég vík að sjálfu frv., er ummæli hv. 3. þm. Reykv. um byggðalínuna. Þau voru á þá leið að ég hefði verið knúinn til að láta af andstöðu minni gegn byggðalínunni svokölluðu. Þetta er líka byggt á misskilningi. Ég hef aldrei verið andvígur háspennulínu norður í land, hvort sem hún væri lögð yfir Sprengisand, Bárðardal, Kjöl eða Holtavörðuheiði. Ég hef verið að því leyti á sömu skoðun og hv. þm., að að sjálfsögðu á að tengja saman raforkusvæðin, tengja saman landshlutana, hafa samtengingu allra kerfa. Það, sem skoðanamunur hefur staðið um milli okkar, er hins vegar um röðina. Ég hefði talið æskilegra að virkja sem mest vatnsföll og gufuhveri til raforkuframleiðslu víðs vegar um land, láta þessar virkjanir hafa forgang og hinar dýru tengilínur milli landshlutanna koma í næstu röð á eftir.

Þá komum við að því, að ég tel að réttara hefði verið á undanförnum árum að vinna þannig að málum varðandi orkumál Norðurlands að nú þegar væri hafin virkjun t.d. Dettifoss eða Skjálfandafljóts eða Jökulsár í Skagafirði eða Blöndu, svo að ég nefni fjóra glæsilega möguleika, þannig að annað hvort þegar eða alveg á næstunni gætu slíkar vatnsvirkjanir farið að framleiða raforku. Ef að þessu hefði verið unnið á þennan veg þyrfti ekki nú að verja einum milljarði kr. í norðurlínuna. Vitanlega hlýtur hún að koma fyrr eða síðar, en ég tel að hin röðun verkefnanna hefði verið þjóðinni hagkvæmari.

Þegar stjórnarskiptin urðu nú í sumar var talið sjálfsagt og skylt að kanna hvort möguleiki væri á að fá á Norðurlandi nú alveg á næstunni, t.d. innan tveggja ára, orkuframleiðslu þar nyrðra. Ef slíkt væri mögulegt, að sjá Norðurlandi fyrir nægilegri raforku úr heimahéruðum jafnsnemma og norðurlinan yrði tilbúin, sem gert er ráð fyrir haustið 1976, þá held ég að flestir menn hefðu orðið sammála um að sú leiðin væri æskilegri, bæði fyrir Norðurland og fyrir þjóðfélagið í heild, að hraða virkjunum heima fyrir og framleiða rafmagn þar.

Þannig standa nú þessi mál. en ekki á þann veg sem hv. þm. vill gefa í skyn, að ég hafi verið andstæðingur hinnar svokölluðu byggðalinu. Málin liggja einfaldlega þannig fyrir, að ég taldi hitt æskilegra. Hins vegar kom það í ljós við könnun á þessu máli, að engir slíkir möguleikar voru á Norðurlandi, sem hægt væri örugglega að treysta og byggja á, að kæmu að gagni á næstu tveimur árum, því miður, segi ég. Því miður hefur undirbúningi verið þannig bagað undanfarin ár um þessi mál, að þetta var ekki mögulegt. Þegar þetta lá fyrir var ekki um annað að ræða en ákveða strax að ráðast í norðurlínuna, og það verður að sjálfsögðu gert.

Það er rétt, að þessar upplýsingar liggi fyrir, því að ummæli hv. þm. voru vissulega á misskilningi byggð.

En frv., sem hér liggur fyrir, er um virkjun Bessastaðaár í Fljótsdal. Ég vil þá víkja fyrst að því, sem ég raunar gerði allitarlega við 1. umr. þessa frv., 21. nóv., að þessi virkjun, sem kennd er við Bessastaðaá í Fljótsdal, byggist fyrst og fremst á því að þar er mjög mikil fallhæð, 500–600 m., og í öðru lagi að þar eru ákaflega góðir miðlunarmöguleikar. Þar uppi á hálendinu eru stöðuvötn sem hægt er að nota að áliti kunnugustu manna til miðlunar þannig að tryggt sé hæfilegt rennsli allt árið. Þessi virkjun byggist ekki fyrst og fremst á vatnsrennslinu í sjálfri Bessastaðaá, eins og jafnan er tekið fram í öllum skýrslum og rannsóknum um þetta mál frá byrjun. Það eru því engar upplýsingar eða nýjar fréttir þó að frá því sé skýrt hér, að í apríl- og maímánuðum eða á vordögum sé mikið vatnsmagn í þessum ám eins og flestum ám á Íslandi í vorleysingum. Það eru heldur engar fréttir, að verulegan hluta ársins að öðru leyti er miklu minna rennsli og fyrir kemur að rennslið verður sáralítið. Má vel vera, að það hverfi með öllu á stundum. Þetta er ekki aðalatriði málsins, vegna þess að þessar hugleiðingar um virkjun eru byggðar á fallhæðinni og miklum möguleikum á uppístöðulónum á hálendinu og miðlun. En það er einmitt skorturinn á miðlun sem gert hefur það að verkum að Grímsárvirkjun hefur svo oft bilað og brugðist þegar mest hefur þurft á að halda, af þeirri einföldu ástæðu að þar vantar miðlun.

Varðandi Bessastaðaárvirkjun ætla ég að undirbúningi sé svo langt á veg komið, að oft og tíðum hafi frv. um heimild til virkjunar verið lögð fyrir Alþ. þar sem undirbúningi var skemmra á veg komið. Þegar ég lagði frv. fram komst ég m.a. svo að orði, með leyfi hæstv. forseta, að rannsóknir bendi til að þessi virkjun sé fjárhagslega hagkvæm. Hins vegar þurfi ítarlegri vatnsmælingar og athuganir á vatnsrennsli áður en endanleg ákvörðunartaka ætti sér stað. Þess vegna gerir frv. ekki ráð fyrir því, að með því sé endanlega ákveðið að ráðast í þessa virkjun, heldur heimilt. — Síðan er bætt við: Hins vegar eru yfirgnæfandi líkur til þess að úr þessu mannvirki geti orðið. Þær athuganir, sem þegar hafa farið fram, veita sterkar líkur til þess. — Hér var því aðeins hafður þessi fyrirvari um frekari vatnsrennslismælingar til öryggis.

Ég vil út af ummælum hv. 2. þm. Austf., Lúðvíks Jósepssonar, um leið og ég þakka honum góðar undirtektir og stuðning við málið, taka fram að undireins og sérfræðingar telja að staðfest hafi verið að vatnsrennsli sé nægilegt, fyrir liggur að þrír mæla með virkjuninni á þeim grundvelli eða að þeim athugunum gerðum, þá verður að sjálfsögðu þegar í stað ákveðið að ráðast í þessa virkjun og hraða öllum undirbúningi svo sem föng eru á.

Varðandi þetta mál að öðru leyti vil ég endurtaka það sem ég sagði fyrr í dag í umr., að málið er flutt hér á þingi og það er óskað eftir því að afgreiðslu þess sé hraðað eftir eindregnum og samhljóða óskum fulltrúa sveitarfélaga á Austurlandi. Þegar þetta mál var til umr. og aðalumræðuefni á ársþingi sambands austfirskra sveitarfélaga um miðjan sept. varð niðurstaðan sú, að samþ. var einróma áskorun til iðnrh. um að flytja nú á þessu þingi frv. í þessa átt.

Ég tel ekki að það sé réttmæt ásökun, sem hér hefur komið fram, að þessu máli sé verið að hraða með óeðlilegum hætti. Frv. var lagt fram um eða rétt upp úr miðjum nóv. 1. umr. var 21. nóv. Þann dag var því vísað til iðnn. Iðnn. hafði 31/2 viku til könnunar á málinu. Hún skilaði álíti 16. des. Ég veit að iðnn. vann vel að málinu, ræddi málið ítarlega, hv. frsm. n. gerði grein fyrir því fyrr í dag, og aflaði munnlegra og skriflegra grg. og upplýsinga um málið. Ég tel því ekki réttmætt að segja að það sé óeðlilegur hraði á þessu máli eða óeðlilegur eftirrekstur.

Ég skal að lokum koma að einu atriði. Ég þykist vita með vissu að það, sem veldur aths. hv. 3. þm. Austf., er ótti hans eða kvíði út af því að virkjun Bessastaðaár kunni að seinka stórvirkjun í Fljótsdal sem honum er mikið áhugamál, svo sem hv. þm. hefur sýnt, m.a. með flutningi þáltill. sinnar á s.l. þingi. Ég reyndi, þegar ég lagði frv. fyrir, að gera nokkra grein fyrir því og vitnaði í sérfræðinga til stuðnings því máli, að þessi fyrirhugaða virkjun Bessastaðaár mundi ekki verða til þess að seinka hinu stóra máli. Ég vitna þar m.a. í Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens, sem látið hefur í ljós álitsgerð um málið, þar sem segir að líta megi á þessa Bessastaðaárvirkjun sem fyrsta áfanga svonefndrar Fljótsdalsvirkjunar, sem er virkjun á sama falli með vatni úr Jökulsá í Fljótsdal. Síðar segir í þessari sömu álitsgerð, að virkjun Bessastaðaár mundi verða til þess að kostnaður við stórvirkjunina lækki um 700–800 millj. kr. vegna mannvirkja sem nýtast báðum virkjununum. Og jarðfræðingurinn Haukur Tómasson, sem einnig hefur rannsakað þetta mál, komst m.a. svo að orði í útvarpinu: „Ég vil leggja áherslu á það að virkjun Bessastaðaár getur flýtt mjög fyrir gerð stórvirkjunar þarna.“ Ég vil, um leið og ég vitna í þessi ummæli, endurtaka það sem ég hef fyrr sagt, að ég tel einmitt að þessi virkjun geti orðið til þess að hraða undirbúningi að stórvirkjun í Fljótsdal, greiða fyrir því að rannsóknum og undirbúningi hinna stóru virkjunarmöguleika þar verði hraðað sem mest má verða. Ég vil nota þetta tækifæri til að fullvissa hv. 3. þm. Austf. um að það er fullur áhugi á því að hraða öllum þeim rannsóknum, sem ég veit að hann ber mjög fyrir brjósti, og að samþykkt þessa frv. verði á engan hátt til þess að draga úr þeim.