18.12.1974
Neðri deild: 27. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1057 í B-deild Alþingistíðinda. (926)
84. mál, útvarpslög
Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):
Ef hv. þm. óskar að gera hlé á ræðu sinni getur hann haldið þeirri ræðu áfram síðar. Verður það ekki reiknað sem önnur ræða þó að hann taki til máls síðar á fundinum. Aðrir, sem á mælendaskrá eru, gætu þá flutt sínar ræður núna. Sams konar óskir hafa ekki borist frá öðrum.