18.12.1974
Efri deild: 29. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1112 í B-deild Alþingistíðinda. (966)
36. mál, virkjun Bessastaðaár í Fljótsdal
Fram. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Að vísu var spurningunni beint til hæstv. iðnrh. og hann svarar eflaust, en ég get þó ekki orða bundist. Mér þótti æðilangsótt hjá hv. ræðumanni að blanda þeim ágæta manni Einari Val inn í Bessastaðaárvirkjun. Hann virðist þekkja vel alla málavexti og hlýtur að gera sér grein fyrir því að Einar Valur starfaði hjá Heilbrigðiseftirliti ríkisins, en það er Náttúruverndarráð, sem fjallar um Bessastaðaárvirkjun, og greinin, sem hv. þm. vísar í, fjallar um Náttúruverndarráð. Mér er ekki kunnugt um að Náttúruverndarráð hugsi til þess að ráða Einar Val nú þegar hann virðist vera atvinnulaus. Ég veit að Náttúruverndarráð hefur aðgang að miklum fjölda ágætra vísindamanna í lífeðlisfræði, en þarf ekki mengunarverkfræðing eða umhverfisverkfræðing eða þess háttar sem Einar Valur er sérfræðingur í. En ég ætla ekki að blanda mér í það mál.
Hins vegar vil ég segja það, að ég átti ánægjulegan fund með þessum unga manni fyrir nokkrum kvöldum, þar sem var saman kominn góður fjöldi viðskiptanema, sem reyndu að fá það upplýst hvar mengunarhættan af málmblendiverksmiðjunni væri. Hún er nú reyndar ekki á dagskrá — og þó. Svarið virtist helst vera það hjá þessum unga manni, að hann þekkti nú atvinnurekendur þeir opnuðu og hleyptu reyknum út á nóttunni! Þetta þóttu að vísu dálítið furðulegar staðhæfingar.
Ég sagði áðan, að ég legði áherslu á fyrir mitt leyti að í þessa virkjun yrði farið með varúð, og ég geri það m.a. með tilliti til náttúruverndarsjónarmiða. Þetta mál hefur verið rætt hjá Náttúruverndarráði, var rætt á samstarfsfundi Náttúruverndarráðs og Orkustofnunar, sem haldinn var 4. des. s.l., og er hér allítarleg fundargerð þar sem ljóst er að Náttúruverndarráð hyggst skoða þetta mál mjög vandlega, enda held ég satt að segja, að formanni Náttúruverndarráðs, Eysteini Jónssyni, sem þekkir þetta svæði líklega betur en hv. ræðumaður, sé mjög vel treystandi til að gæta þess að þarna verði farið að hinum ítrustu kröfum um náttúruvernd. En engu að síður legg ég áherslu á þetta með tilliti til þess að þessu er ekki lokið. Mér sýnist, að þetta sé í ágætum höndum, og treysti því að farið verði eftir þeim ákvæðum sem nú eru þegar komin í frv.
Ég vil aðeins í sambandi við rennslismælingar upplýsa, að rætt er um meðalrennsli og fram kemur að vatnasvið árinnar er um 127 ferkm. Meðalrennsli mældist 4.1 rúmmetri á sek. Fjallað er nokkuð um möguleika til þess að fá viðunandi vatnsmiðlun, og með leyfi forseta vil ég lesa úr grg. til iðnn. Alþ. Þar segir:
„Rennslismælingar í Bessastaðaá hafa aðeins staðið í tæp 8 ár samtals. Með samanburði við veðurathuganir og rennslismælingar í öðrum ám í grenndinni verður unnt að áætla með sæmilegri nákvæmni rennsli Bessastaðaár þau ár sem mælingar á ánni ná ekki yfir. Verður þannig hægt að reikna hve mikið aðrennsli hefur orðið til Bessastaðaárvirkjunar í öll þau ár sem veðurathuganir ná yfir. Þessar rannsóknir eru þegar hafnar. Þá stendur og yfir kortagerð af svæðinu á vegum Orkustofnunar. Eftir niðurstöðum framangreindra rannsókna á væntanlegum kortum verður reynt að taka endanlega ákvörðun um stærð virkjunarinnar og stærð þeirra aðrennslissvæða sem vatni verður veitt af til virkjunarinnar.“
Að efni til er fjallað nokkru meira um þetta og þar kemur fram, svo að ég lesi nú ekki þessa nokkuð löngu grg., að þarna er mjög þurrviðrasamt, eins og hv. þm. einnig benti á, og fellur meginhluti úrkomunnar sem snjór. Hins vegar kemur hér fram að unnt muni vera að byggja þarna miðlun sem miðlað getur þessu vorrennsli yfir þurrkatímann. Þetta er sem sagt dregið fram í þessum grg. og raunar einnig í grg. með frv. með tilliti til þess að þarna er um ýmsa óvissa þætti að ræða.
Í 1. gr. frv. er fram tekið að ríkisstj. er heimilt að fela Rafmagnsveitum ríkisins o.s.frv. Þetta er ekki fastákveðið. En það var einnig með tillíti til þessa ákvæðis að ég fyrir mitt leyti lagði áðan — og vil endurtaka það — áherslu á að ekki verði rokið í framkvæmdir af hræðslu við orkuskortinn, þó að hann sé slæmur, heldur verði veittur nægilegur tími til að ljúka bæði slíkum nauðsynlegum undirbúningsrannsóknum sem og öllum nauðsynlegum athugunum á náttúruverndarákvæðum.