12.11.1974
Sameinað þing: 6. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í B-deild Alþingistíðinda. (97)

297. mál, virkjun Bessastaðaár í Fljótsdal

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Fsp. er á þessa leið: „Hefur ríkisstj. tekið ákvörðun um að leggja fram á yfirstandandi þingi frv.till. um virkjun Bessastaðaár í Fljótsdal.“

Eins og hv. þm. er kunnugt var stjfrv. um virkjun Bessastaðaár útbýtt í gær og fsp. að því leyti svarað þar með.

Á aðalfundi Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi um miðjan sept. s.l. voru orkumálin á Austurlandi aðalumræðuefnið. Mér var boðið á þann fund og átti þar kost á að hlýða á umr. og taka þátt í þeim. Það er ekki ástæða til þess nú í svari víð þessari fsp. að ræða um orkumál Austurlands ítarlega, það verður gert við 1. umr. þess frv. sem ég gat um. En á þessum fundi, aðalfundi sambands sveitarfélaganna, var samþ. að skora á iðnrn. og Alþ. að sett verði lög um virkjun Bessastaðaár í Fljótsdal á komandi þingi. Þegar eftir þennan fund var að sjálfsögðu hafinn undirbúningur þessa máls og ber frv. vitni um niðurstöðu þess undirbúnings. Þetta frv. felur í sér heimild til að fela Rafmagnsveitum ríkisins að reisa og reka vatnsaflsstöð við Bessastaðaá með allt að 32 mw. afli.

Nú er það augljóst mál að að þessari virkjun eins og öðrum verður unnið með þeim hraða sem tök eru á. Ábyrgð er auðvitað enga hægt að taka á því hversu mörg ár slík virkjun tekur. Í fyrsta lagi þarf auðvitað að vinna að hönnun hennar og öðrum undirbúningi og er sjálfsagt að stefna að því að það geti orðið sem skjótast og helst ekki síðar en eftir 4 ár, eins og kemur fram í þessari ályktun sambands sveitarfélaganna að æskilegt er talið. Hins vegar er ekkert hægt að fullyrða eða ábyrgjast um það, en ég vil aðeins undirstrika að að sjálfsögðu verður öllum undirbúningi hraðað eins og kostur er.