18.12.1975
Neðri deild: 35. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1388 í B-deild Alþingistíðinda. (1065)

89. mál, vörugjald

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég tel óþarft að flytja langt mál um það frv. eða réttara sagt þá brtt. frá hæstv. ráðh. sem hér liggur fyrir, þar sem því máli hafa verið gerð góð skil af þeim hv. þm. sem hafa talað á undan mér. Ég vildi þó með örfáum orðum koma inn á eitt ákveðið og tiltekið atriði í þessu máli sem raunar hefur verið komið að af þeim sem hér hafa talað á undan mér, en ég tel engu að síður ástæðu til þess að vekja meiri athygli á.

Sú mun hafa verið reynslan, eins og fram hefur komið, af innheimtu vörugjaldsins á því ári sem nú er að líða, að hér er ekki aðeins um að ræða þann kostnaðarauka til neytenda sem beinlínis stafar af vörugjaldinu sjálfu, heldur bætist ofan á vörugjaldið í fyrsta lagi heildsölu- og smásöluálagning og í öðru lagi söluskattur til ríkissjóðs, þannig að ég hygg mig fara nokkuð nærri um þegar ég segi, að í staðinn fyrir það að vörugjaldið orsaki 12% hækkun miðað við þann gjaldstofn sem vörugjaldið er tekið af, þá nemi sú hækkun, þegar öll kurl eru komin til grafar, milli 21 og 22% fyrir hinn almenna neytanda. M. ö. o.: tilkoma vörugjaldsins hefur ekki aðeins skapað ríkissjóði tekjur í fyrsta áfanga, þ. e. a. s. með innheimtu vörugjaldsins sjálfs, heldur hefur vörugjaldið einnig skapað ríkissjóði tekjur í þriðja áfanga, þ. e. a. s. með söluskattsálagningu á vörugjaldið, auk þess skapað þriðja aðila, sem er gjörsamlega óviðkomandi þessu máli, þ. e. a. s. heildsölum og smásölum mjög umtalsverðan tekjuauka á kostnað neytenda. Það segir sig auðvitað sjálft, að það er harla óeðlilegt ef ríkissjóður á í fjárþröng, að þá sé sú fjárþröng leyst þannig að gersamlega óviðkomandi aðilar, í þessu tilviki heildsalar og smásalar, hafi beinan fjárhagslegan hagnað af þeirri lausn sem við er höfð.

Ef við lítum á það mál sem hér fyrir liggur, þá er því spáð að framlenging vörugjaldsins muni afla ríkissjóði tekna að upphæð 2.2 milljarðar kr. Ég hygg mig skilja það rétt að inni í þessari tölu séu ekki áætlaðar viðbótartekjur ríkissjóðs af álagningu söluskatts á vörugjaldið. Verði ekki athugasemdum hreyft við því, þá tel ég að það sé rétt frá skýrt. Þá eru ekki heldur inni í þessari tölu væntanlegar tekjur heildsala og smásala af framlengingu þessa gjalds, þ. e. a. s. ofan á þetta vörugjald bætist fyrst til aðila viðskiptalífsins, heildsala og smásala, 25–30% álagning sem nema mun í auknum útgjöldum fyrir neytendur og í auknum tekjum af þessu dæmi fyrir gersamlega óviðkomandi aðila, þ. e. a. s. heildsala og smásala, um það bil 600 millj. kr. á næsta ári. Auk þess mun ríkissjóður svo væntanlega leggja sín 20 söluskattsstig þarna ofan á sem skapar ríkissjóði viðbótartekjur sem nema 500–600 millj. kr. Það er fært fram sem hálfgerð afsökun fyrir þessari brtt.hæstv. ráðh.að það eigi að koma talsvert til móts við hagsmuni íslenskra neytenda með því að hætta við að lækka niðurgreiðslur eða réttara sagt að minnka lækkun niðurgreiðslna um 700 millj. kr. En ég vil aðeins benda hv. þm. á að það, sem hæstv. ríkisstj. hyggst hér vera að gera neytendum til góða fær hún frá þeim aftur til baka vegna þess að á síðasta stigi tekur hún af neytendum aftur. Með því að leggja 20% söluskatt ofan á hið sérstaka vörugjald tekur hún frá neytendum aftur milli 500 og 600 millj. kr., þ. e. a. s. því sem næst sömu upphæð og hún heldur fram að hún ætli sér að spara neytendum með því að minnka ekki niðurgreiðslur um 700 millj. kr.

Mér er fyllilega ljóst að sú er skoðun hv. stjórnarsinna að þessi aðgerð sé nauðsynleg til þess að tryggja ríkissjóði þær tekjur sem hann þarf á að halda. Við stjórnarandstæðingar erum ekki sammála þeirri niðurstöðu, en þetta virðist engu að síður vera niðurstaða hv. stjórnarþingmanna. En ég vil leggja áherslu á það, að ég hef hvorki heyrt hæstv. fjmrh. né nokkurn stjórnarþingmann færa að því rök, að jafnhliða þessari aðgerð sé nauðsynlegt að tryggja versluninni í landinu sérstakar auknar tekjur um um það bil 600 millj. kr. á næsta ári á kostnað neytenda. Hvorki hæstv. fjmrh. né nokkur af stjórnarsinnum hefur haft slíkar röksemdir uppi um það, að jafnhliða því að þetta sérstaka gjald verði framlengt á neytendum, þá verði kaupmönnum og heildsölum heimilað að sækja sér sérstaklega 600 millj. kr. viðbótartekjur í vasa neytenda og skáka þar í skjóli framlengingar þessa gjalds.

Ég held að það verði ekki hjá því komist að hv. stjórnarþingmenn taki afstöðu til þessa máls eins út af fyrir sig, hvort það sé réttlætanlegt í þrengingum ríkissjóðs og þrengingum þjóðarinnar að nýr tekjustofn, ný tekjuöflunarleið til ríkissjóðs á næsta ári hafi í sér fólgna möguleika fyrir heildsala og smásala í landinu til þess að auka eigin tekjur um 600 millj. kr. Ég held að hv. stjórnarþingmenn verði að fá að taka afstöðu í því máli einu út af fyrir sig. Þess vegna hef ég leyft mér ásamt hv. þm. Lúðvík Jósepssyni að flytja skriflega brtt. við frv. það sem hér er til umræðu, frv. til l. um sérstakt tímabundið vörugjald. Brtt. er við 4. gr. frv. og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Aftan við 1. mgr. 4. gr. komi ný mgr. er hljóði svo:

Einnig er óheimilt að leggja heildsölu- og smásöluálagningu á hið sérstaka vörugjald.“

M. ö. o.: ég vil að hv. stjórnarþingmenn geti ekki skorast undan því að taka sérstaka afstöðu til þess, hvort þeir vilji að þessi sérstaka tekjuöflunarleið til þess að leysa tekjuvanda ríkissjóðs á árinu 1976 eigi jafnframt að gefa milliliðum í landinu, heildsölum og smásölum, sérstakt tækifæri til þess að leggja á neytendur í landinu skatt að upphæð 600 millj. kr.

Ég geri mér það ljóst, að hér þarf afbrigða við að þessa skriflegu till. megi taka fyrir, en ég mælist til þess við hæstv. forseta að hann leiti þeirra.