18.12.1975
Neðri deild: 35. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1390 í B-deild Alþingistíðinda. (1068)
89. mál, vörugjald
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen) :
Hæstv. forseti. Það eru örfá orð út af þeim ræðum sem hér hafa verið haldnar.
Því var haldið fram að þær brtt., sem nú liggja fyrir varðandi frv. um vörugjald, séu komnar fram það seint að ekki væri af eðlilegum ástæðum hægt að ræða málin og ekki hefði verið gerð grein fyrir þeim ástæðum sem eru forsendur fyrir flutningi þessara brtt. Ég vék að því í fjárlagaræðu minni í haust að við afgreiðslu fjárl. yrði að líta á atriði sem þá voru ekki kunn og yrðu þess vegna að bíða þar til séð væri um hvað væri að ræða. Ég vék að því þá, að það væri útlit fyrir að afkoma ríkissjóðs yrði lakari en þá sýndist vera, og ég vék að því, að það væru stærðir varðandi sjávarútveginn sem ekki væru þá þegar kunnar, en allt yrði þetta að skoða og þessi mál yrðu að fá afgreiðslu við 3. umr. og afgreiðslu fjárlaga.
Það liggur í augum uppi, þegar ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar að þá er erfitt að meta stöðuna. Ég tel mig hafa gert í fjárlagaræðu minni fullkomlega grein fyrir því, að það væru vandamál eftir sem við væri að glíma og yrði að skoða við lokaafgreiðslu fjárlaga. Afgreiðsla þessara mála hlaut auðvitað að byggjast á því m. a., hvernig þjóðhagsspár yrðu þegar komið væri fram í desember. Og þá hlaut að verða m. a. tekiðtillit til þess hvernig tekjuáætlun fjárlaga breyttist og hvort þá væru þjóðhagsforsendur svo hreyttar að endurskoðuð tekjuáætlun nægði til þess að leysa þann vanda sem fyrirsjáanlegur var. Því miður reynist ekki svo, og þess vegna er flutt sú brtt. við vörugjaldið sem hér er til umr. Ég held einmitt, þvert á móti því sem hv. 3. landsk. þm. sagði, að vegna þess að menn gerðu sér grein fyrir því í upphafi að það væri fyrir hendi vandi og á hann var bent, þá sé nú komið og gerð grein fyrir því að það hefur ekki tekist að leysa það mál, en verður að sjálfsögðu með einhverjum hætti að gera.
Hækkun vörugjaldsins mun væntanlega auka tekjur ríkissjóðs á næsta ári sem nemur 2 milljörðum og 200 millj. kr. En eins og ég gat um í ræðu minni í upphafi þessarar umr., er gert ráð fyrir því þar á móti að auka niðurgreiðslur miðað við fjárlagafrv. þannig að verðlagsáhrifin af því, sem hér er lagt til að gera, haldist óbreytt. Það er gert ráð fyrir því, að framfærsluvísitalan lækki jafnmikið við auknar niðurgreiðslur og hún hækkar vegna þess að vörugjaldið verður framlengt. Ég vil geta þessa hér vegna þess sem var haldið fram hér áðan í ræðum þm. og enn fremur benda á það að í verðlaginu eru áhrifin enn óhagstæðari, því að annars vegar er um að ræða minnkun sem nemur stærri upphæð en kemur þar á móti.
Ég skal ekki hafa þessi orð mín fleiri. Ég vildi aðeins láta þetta koma hér fram við lok þessarar umræðu.