18.12.1975
Neðri deild: 35. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1391 í B-deild Alþingistíðinda. (1070)
89. mál, vörugjald
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :
Herra forseti. Ég tel óeðlilegt og algerlega óvenjulegt að Alþ. fari að taka ákvarðanir um einstök álagningarákvæði eins og hér er um að ræða. Það á að vera í höndum réttra verðlagsyfirvalda. Þó að ég fallist ekki á þessa till., þá útilokar það engan veginn að þetta mál verði tekið til skoðunar hjá verðlagsnefnd. Ég segi nei.