18.12.1975
Neðri deild: 35. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1391 í B-deild Alþingistíðinda. (1071)

102. mál, lántaka vegna opinberra framkvæmda 1976

Frsm. meiri hl. (Tómas Árnason):

Virðulegi forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um heimild til erlendrar lántöku vegna opinberra framkvæmda á árinu 1976. Nefndin klofnaði í málinu. Meiri hl. n., þm. stjórnarflokkanna, skilar sérstöku áliti og minni hl. mun skila sameiginlega sérstöku áliti.

Meiri hl. er sammála um að mæla með frv. með þeirri breytingu sem kemur fram á þskj. 201, brtt. við 1. gr. frv. um að í stað „3580 millj. kr.“ komi: 4610 millj. kr.

Hæstv. ríkisstj. hefur látið dreifa hér á Alþ. skýrslu ríkisstj. um lánsfjáráætlun 1976 og mun hæstv. fjmrh. gera nánari grein fyrir henni við 3. umr. fjárlaga, væntanlega á morgun. Í þessari skýrslu kemur fram skýring á því, hvað þetta frv. raunverulega fjallar um, og vil ég leyfa mér að lesa upp úr skýrslunni á bls. 9, svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta — það er einnig á bls. 14 í skýrslunni, þar kemur fram tafla um þessar tötur, sem frv. fjallar um, og fjárhæðir — í skýrslunni segir svo:

„Á 5. töflu þessa kafla kemur fram hvernig ætlunin er að afla fjár til þeirra framkvæmda og annarra þarfa sem fram koma á 1. töflu, eða samtals allt að 9770 millj. kr. Samkvæmt því er ráðgert að afla innanlands samtals 2920 millj. kr., þar af 1520 millj. kr. í formi endurgreiðslu af endurlánuðu spariskírteinafé og 1400 millj. kr. með útgáfu verðbréfa. Heimild til verðbréfaútgáfu byggist annars vegar á tölulið XXXV. Í 6. gr. fjárlagafrv. fyrir árið 1976 og raunar á lögum nr. 36 frá 1975, um happdrættislán ríkissjóðs fyrir hönd Vegasjóðs, eftir því hvernig fjáröfluninni yrði skipt. Erlend fjáröflun er áætluð samtals 6850 millj. kr. Erlend lántaka vegna landshafnar í Þorlákshöfn, 225 millj. kr., byggist á 3. gr. l. nr. 91 1973 og lántaka vegna eiginfjárframlaga ríkisins til járnblendiverksmiðju á Grundartanga, 975 millj. kr., á l. nr. 10 frá 1975. Vörukaupalán, samtals 2030 millj. kr., byggjast í fyrsta lagi á brbl. vegna flugvélakaupa Landhelgisgæslu, en við frv. til staðfestingar á þeim lögum þarf að bæta 150 millj. kr. lánsheimild“ — þannig að lánsheimildin verður þá alls í þessu skyni 600 millj. kr. „Í öðru lagi byggjast vörukaupalán vegna Kröfluvirkjunar, 1084 millj. kr., að hluta á l. nr. 21 frá 1974, þ. e. 440 millj. kr. sem ónotaðar eru af þeirri lagaheimild, en leita þarf sérstakrar lagaheimildar til þess sem eftir er, 644 millj. kr., svo og til annarra vörukaupalána, þ. e. vegna almennra framkvæmda RARIK 132 millj. kr., til línulagnar frá Kröflu til Akureyrar 84 millj. kr. og til Orkustofnunar vegna aðveitukerfa við Kröflu 130 millj. kr., eða samtals 990 millj. kr. Loks þarf að leita lagaheimildar til annarrar erlendrar lántöku að fjárhæð 3620 millj. kr.“

Það kemur fram í nál. meiri hl. fjh.- og viðskn. á þskj. 201 að þetta lánsfé er fyrst og fremst ætlað til raforkuframkvæmda, þ. á. m. að hluta til Kröfluvirkjunar og byggðalínu norður yfir Holtavörðuheiði. Síðar verður svo endanlega ákveðið hvernig erlenda lánsféð skiptist milli einstakra framkvæmda.

Í frv. til l. um heimild til erlendrar lántöku vegna opinberra framkvæmda á árinu 1976, sem liggur fyrir þinginu, er gert ráð fyrir að lagaheimildir skorti fyrir 3580 millj. kr. lántöku og er þá byggt á tölum fjárlagafrv. Samkvæmt framangreindu þarf sú fjárhæð að vera 4610 millj. kr. eða hækka um 1030 millj. og er það í samræmi við þá brtt. sem meiri hl. fjh.- og viðskn. flytur við frv.

Það er ástæða til þess í sambandi við þetta mál að minnast í örstuttu máli á erlendar skuldir, þ. e. a. s. skuldir íslendinga við aðrar þjóðir, og vil ég um það segja þetta:

Erlendar langtímaskuldir námu samtals 41 milljarði 442 millj. kr. í árslok 1974 og greiðslubyrði í prósentum af útflutningi nam 11.2%. Það gæti verið ástæða til þess að bera þennan skuldaþunga saman við þjóðarauðinn og það er stundum gert. Þjóðarauðurinn er talinn hafa verið í árslok 1974 466. milljarðar 417 millj. kr. og skiptist þannig: Í atvinnuvegum 152 milljarðar 962 millj. kr., í byggingum og mannvirkjum hins opinbera 147 milljarðar 719 millj. kr. svo og einkafjármunir samtals 166 milljarðar 34 millj. — Erlendar skuldir námu því 8.9% af þjóðarauðnum í árslok 1974. Frá árinu 1969 nema erlendar skuldir í árslok hvers árs eftirfarandi prósentum af þjóðarauði: Árið 1969 9.2%, árið 7970 7.4%, árið 1971 8.1%, árið 1972 7.7%, árið 1973 7.1%, árið 1974 8.9%. — Að líkindum verður þessi prósentutala fyrir árið 1975 10.5%. En áætlun um þjóðarauðinn í árslok 1975 á verðlagi þessa árs nemur 728 milljörðum kr.

Sé hins vegar athuguð greiðslubyrði í prósentum af útflutningstekjum þjóðarinnar sömu ár, verður niðurstaðan þessi: Árið 1969 16.7%, árið 1970 11.2%, árið 1971 10.0%, árið 1972 11.4%, árið 1973 9.7% og árið 1974 11.2%. Hugmyndir um árið 1975 sveiflast einhvers staðar á milli 14.5% og 14.8%, þó sennilega nær 14.5%.

Gróf áætlun hagfræðideildar Seðlabankans um langtímaskuldir í árslok 1975 gerir ráð fyrir 68.9 milljörðum kr.

Það er eðlilegt að menn velti fyrir sér hvernig horfir um söfnun erlendra langtímaskulda og hversu þung greiðslubyrði miðað við útflutningstekjur er líkleg á næstu árum. Seðlabankinn hefur gert tilraun til að spá um þetta næstu árin, og lítur sú spá þannig út: Árið 1975 14.5% — eins og ég gat um áður, árið 1976 17.3%, árið 1977 18.5%, árið 1978 19.6% og árið 1979 20.1%. Samkvæmt þessari spá verða því íslendingar að verja 1 krónu af hverjum 5 af útflutningstekjum sínum árið 1979 til greiðslu afborgana og vaxta af erlendum langtímalánum, eins og hér hefur raunar komið fram í umræðum áður. Að sjálfsögðu er erfitt að gera slíka spá mörg ár fram í tímann vegna þess að hún byggist á mörgum óvissum þáttum, enginn veit t. d. um verðlag íslenskra útflutningsvara árin 1977–1979, þar er um ágiskanir að ræða. Og það er einnig erfitt að spá um magn og gæði íslenskra útflutningsvara langt fram í tímann. Eigi að síður sýna þessar hugleiðingar Seðlabankans í fyrsta lagi að greiðslubyrði erlendra skulda á næsta ári, miðað við útflutningstekjur, er svipuð og hún var árið 1969, en fer svo greinilega vaxandi. Það er því ástæða til þess fyrir íslendinga að kanna með öllum tiltækum ráðum hvernig unnt sé að nota innlent fjármagn í vaxandi mæli til uppbyggingar í landinu. Þarf auðvitað í því sambandi að efla innlendan sparnað og er það nátengt baráttunni við verðbólguna.

Varðandi innlenda fjármagnið álít ég að sé afar þýðingarmikið að beina því í vaxandi mæli að því að byggja upp atvinnulífið í landinu í þeim tilgangi að skapa meiri framleiðslu og þar af leiðandi meiri gjaldeyristekjur til þess að standa undir mikilli skuldabyrði. Það þarf að halda áfram hinni geysimiklu uppbyggingu við sjávarsíðuna í sambandi við vinnslustöðvar sjávarútvegsins til þess að gera verðmætari vörur úr sjávaraflanum. Það þarf að halda áfram hinni miklu uppbyggingu á vinnslustöðvum landbúnaðarins til þess að vinna verðmætari vöru úr framleiðsluvörum bændanna. Það þarf að miða að því að byggja sem mest af okkar fiskiskipaflota innanlands, í innlendum skipasmíðastöðvum, og síðast en ekki síst þarf í vaxandi mæli að beina meira fjármagni en gert hefur verið á undanförnum árum að því að byggja upp almennan iðnað í landinu.

Það er í sjálfu sér ekkert við það að athuga að taka erlend lán ef þess er gætt að fjármagnið gangi til uppbyggingar í atvinnulífinu sem skilar arði og annaðhvort sparar erlendan gjaldeyri eða eykur gjaldeyristekjurnar meira en sem svarar greiðslubyrði lánsins. Gangi hins vegar erlendar lántökur til eyðslu og aukinnar einkaneyslu í þjóðfélaginu sem ekki skilar gjaldeyri eða er gjaldeyrissparandi, þá er hætta á ferðum. En það er einmitt það sem gerst hefur á undanförnum árum. Íslendingar hafa tekið eyðslulán erlendis og eytt og ég vil segja sólundað fjármunum umfram það sem efni stóðu til. Slíkt ráðdeildarleysi verður að stöðva, annars fer illa og íslendingar stofna efnalegu sjálfstæðu sínu í voða. Það er t. d. svo komið nú að gjaldeyrisforði þjóðarinnar byggist eingöngu á lánsfé. Samkvæmt upplýsingum Þjóðhagsstofnunar liggur fyrir að viðskiptajöfnuður var óhagstæður um 13.5 milljarða kr. 1974 og 20.2 milljarða 1975, að því er ætlað er, og þó munu sennilega koma enn hærri tölur frá Hagstofunni sem ég sá bregða fyrir rétt áðan. Því er spáð að viðskiptajöfnuður verði óhagstæður um 15.5 milljarða kr. á árinu 1976, jafnvel þó að gætt verði þeirrar aðhaldsstefnu sem ríkisstj. hefur markað í fjárhags- og yfirleitt efnahagsmálum.

Þessi þróun mála hvorki má né getur haldið áfram lengi, hér þarf að spyrna við fótum. Af þessum ástæðum hefur ríkisstj, markað aðhaldsstefnuna í fjármálum og viðskiptamálum. Það hafa verið settar nýjar reglur um veitingu leyfa til að taka lán erlendis til lengri tíma en eins árs. Reglurnar fjalla m. a. um eftirlit með erlendum lántökum, um reglur varðandi kaup á fiskiskipum og öðrum skipum, um kaup á flugvélum og ýmiss konar vélum til skipaviðgerða og opinberra framkvæmda. Þá hefur ríkisstj. einbeitt sér að því að afgreiða greiðsluhallalaus fjárlög og gera sérstaka lánsfjáráætlun sem fylgir afgreiðslu fjárlaga. Allar eru þessar ráðstafanir til þess gerðar að gæta þess að erlendum lántökum verði stillt í hóf og reynt að tryggja að slík lán gangi til arðbærra framkvæmda.

Virðulegi forseti. Án þess að ég ætli á neinn hátt að efna til almennra umræðna um þessi mál, til þess er enginn tími við þessar aðstæður hér á Alþ. nú, vildi ég þó geta nokkurra þeirra atriða sem varða erlendar lántökur og einnig koma með nokkrum orðum, eins og ég hef raunar gert,inn á þá nauðsyn að það þarf að minni hyggju að beina meira af innlendu fjármagni inn á þær brautir að byggja upp atvinnulíf í landinu, sem getur skapað gjaldeyri, og enn fremur atvinnulíf, sem sparar gjaldeyri. Það er sú stefna sem verður að leggja áherslu á á næstu árum.