18.12.1975
Neðri deild: 35. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1420 í B-deild Alþingistíðinda. (1081)

121. mál, almannatryggingar

Magnús T. Ólafsson:

Herra forseti. Á öndverðu hverju þingi leggur ríkisstj. fyrir Alþ. tvær meginstefnuyfirlýsingar. Önnur er hin almenna stefnuræða forsrh., hin er fjárlagaræða fjmrh. sem ætið er gengið út frá að sé flutt í nafni ríkisstj. og í fullu samráði við hlutaðeigandi ráðh. fjallað þar um einstaka málaflokka.

Í fjárlagaræðu hæstv. fjmrh. í haust fjallaði sérstakur kafli um almannatryggingar og hljóðar svo í höfuðatriðum, með leyfi hæstv. forseta:

„Almannatryggingar eru það svið ríkisfjármálanna sem hvað mest hefur þanist út á undanförnum árum og er því eðlilegt að komi sérstaklega til athugunar þegar efnahagsástand þjóðarinnar krefst sérstaks aðhalds í ríkisfjármálum. Er sett fram sem markið í fjárlagafrv. að lækka framlög til almannatrygginganna um 2000 millj. kr. Ýmsar aðgerðir koma til greina við að ná þessu markmiði, og bendir margt til að skipan þessa viðamikla útgjaldaflokks sé með þeim hætti að verulegum sparnaði megi ná án þess að skerða aðstöðu þeirra sem raunverulega þurfa á þjónustu almannatrygginga að halda. Má í því sambandi benda á að ýmsir aðilar þjóðfélagsins njóta nú framlaga frá tryggingunum enda þótt þörf þeirra fyrir fyrirgreiðslu af almannafé sé lítil.“

Loks segir hæstv. fjmrh. í lok þessa kafla í ræðu sinni:

„Ekki verður fjallað nánar um þessi mál hér, en nú er að því unnið að fullmóta tillögur í þessum efnum sem kynntar verða nefnd þingflokkanna áður en stjfrv. þar að lútandi verður lagt fram.“

Þetta sagði hæstv. fjmrh. í haust, og það getur enginn vafi leikið á því að jafnþýðingarmikil stefnuyfirlýsing í jafnmikilvægu máli og hér er um að ræða hlýtur að hafa verið samin og sett fram í fullu samráði við hæstv. trmrh.

Það frv., sem nú er verið að ræða, á þskj. 175, hlýtur að skoðast árangur af því starfi sem kynnt var í fjárlagaræðunni, að nú væri verið að fullmóta tillögur um sparnað í tryggingakerfinu. En það er fljótt frá að segja að í frv. á þskj. 175 er ekki fjallað um sparnað í hinu kostnaðarsama tryggingarkerfi. Þar er einvörðungu fjallað um það að leggja á ný gjöld á sjúklinga annars vegar og alla útsvarsgreiðendur í landinu hins vegar til þess að seðja fjárþörf tryggingakerfisins.

Í fjárlagaræðunni var talað um að lækka framlög til almannatrygginga um 2000 millj. kr. Má til sanns vegar færa að það sé nokkur lækkun á beinum framlögum úr ríkissjóði sem hér er verið að leggja til. En það er bara tilfærsla, það eru auknar byrðar á herðar viðskiptamanna sjúkratrygginganna og á herðar allra útsvarsgreiðenda í landinu. Það er dálaglegur sparnaður að tarna.

Og það var talað um, þegar fjárlög voru lögð fyrir Alþ., að ná verulegum sparnaði án þess að skerða aðstöðu þeirra sem raunverulega þurfa á þjónustu almannatrygginga að halda. Þetta fyrirheit er efnt þannig að þeir, sem þurfa að leita til sérfræðinga vegna meina sinna, þeir, sem þurfa á lyfjum að halda, eiga að greiða um 480 millj. í viðbót við þann kostnað sem fyrir var.

Hér hefur það greinilega gerst að ríkisstj. hefur gjörsamlega gefist upp við það verkefni sem hún kvaðst takast :á hendur í fjárlagaræðunni. Ég vil ekki leiða neinum getum að því hverjar orsakir liggja til þess. En það er enginn vafi að þörfin er mikil á að kanna hvar hægt er að koma við hagræðingu og betri nýtingu fjármagns og vinnuafls til þess að spara í tryggingakerfinu. Það hefur áður verið rakið í þessum umr. hversu gífurleg útþensla hefur orðið, sérstaklega á kostnaði sjúkratrygginganna, og ég ætla ekki að endurtaka það sem þá var sagt. Ég vil aðeins benda á það, að frá árinu 1972 til áætlunar ársins 1976 er kostnaðaraukningin hjá sjúkratryggingum 402%. Hér er um rúmlega fjórföldun að ræða á þessu fimm ára bili. Á sama tíma er kostnaðaraukningin hjá lífeyristryggingum ekki nema 243%. Það hlýtur að eiga sér einhverjar skýringar hvers vegna svona gífurlegur munur verður á kostnaðarþróuninni á þessum tveim sviðum, og það er tvímælalaust brýnt verkefni að kanna hvernig hægt er að hemja þessa kostnaðarútþenslu áður en hún verður gjörsamlega óviðráðanleg.

Það var tæpt á því í fjárlagaræðunni í haust að ríkisstj. ætlaði að fást við þetta verkefni. Það sýnir sig í frv. á þskj. 175 að þetta verkefni hefur farið þannig úr hendi að á því hafa engin tök náðst. Nú eru enn gefin fyrirheit í grg. þessa frv. um að hér verði betur gert og betur að verki staðið fyrir þinghald 1976. Ég leyfi mér að vona að efndirnar á því fyrirheiti verði betri en þær sem orðið hafa á fyrirheitinu úr fjárlagaræðunni. En hvernig þar fór vekur satt að segja slæmar grunsemdir um að hér þurfi að viðhafa önnur vinnubrögð en hingað til hefur verið beitt við þetta verkefni.

Varðandi sjálf ákvæði frv. á þskj. 175 vil ég segja það, að ekki er í sjálfu sér óeðlilegt að viðskiptavinir sjúkratrygginga þurfi að greiða lágmarksgjöld fyrir veitta þjónustu. Það er ekki nýtilkomið. En hér er um að ræða verulegar hækkanir, tvöföldun eða jafnvel meira á þessum gjöldum, og það verður að segjast að slík hækkun kemur á slæmum tíma. En meginefni frv. er að fela sveitarfélögunum að innheimta til tryggingakerfisins ríflega milljarð kr. með sérstakri álagningu á útsvarsstofninn. Þarna er í raun og veru verið að hækka útsvarið í 12%, því að ekki hefur neitt komið fram sem til þess bendi að ætlunin sé að taka fyrir heimildina til að hækka útsvör um 1/10 hjá þeim sveitarfélögum sem um það sækja. Þessi hækkun kemur á brúttótekjur og er því afar tilfinnanleg, sérstaklega fyrir þá sem lágar tekjur hafa, og kemur nú einnig á bótaþega og lífeyrisþega með því breytta fyrirkomulagi sem upp var tekið á síðasta ári og mun, eins og ég sagði í dag við umr. um annað mál, að líkindum breiðast út til allra sveitarfélaga, sem sé að tekin sé upp útsvarsinnheimta af tekjum bóta- og lífeyrisþega hversu svo sem fer um endanlega greiðslu þeirrar álagningar. Þessi hækkun á álögum á útsvarsstofninn til þessara sérstöku þarfa ríkisins er gerð algjörlega án samráðs við sveitarstjórnirnar í landinu, og það er komið í ljós að hún er gerð í fullri óþökk þeirra sveitarstjórna sem látið hafa til sín heyra um málið.

Ég tel ljóst af því, sem ég hef hér rakið að þetta mál er borið fram í flaustri þegar ríkisstj. og hæstv. trmrh. hafa gjörsamlega misst tökin á því verkefni sem Alþ. var tjáð að þessir aðilar hefðu tekið sér fyrir hendur að ráða fram úr til bráðabirgða a. m. k. Þarna er valin leið sem kemur nokkurn veginn eins illa við þá sem álögurnar eru lagðar á, og verið getur og að miklu leyti kemur harðast niður á þeim sem síst skyldi. Því munum við Samtakaþm. greiða atkv. gegn þessu frv.