18.12.1975
Efri deild: 38. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1448 í B-deild Alþingistíðinda. (1136)
89. mál, vörugjald
Frsm. 1. minni hl. (Ragnar Arnalds) :
Herra forseti. Á s. l. vetri hafði hv. frsm. 1. meiri hl. þessa máls framsögu fyrir öðru máli hér á Alþ., — ég segi 1. meiri hl. vegna þess að 2. meiri hl. hefur nú þegar kvatt sér hljóðs, hv. þm. Jón G. Sólnes, en að þessu sinni, þ. e. a. s. á s. l. vetri, voru til umr. ráðstafanir í efnahagsmálum. Þá komst hv. þm. svo að orði að hann ætlaði að vonast til þess að hann þyrfti ekki öðru sinni að mæla fyrir svo erfiðu máli. Ég er hræddur um að sú stund sé nú hins vegar upp runnin.
Það frv., sem hér er til umr., er til okkar komið í framhaldi af setningu brbl. um tollvörugjald, en nú hefur sú breyt. verið gerð á frv. að því er ætlað að standa áfram, en áður var ráð fyrir því gert að það félli niður um þessi áramót. Þegar þetta gjald var á lagt hafði ríkisstj. nokkrum mánuðum áður gefið verkalýðshreyfingunni í landinu fyrirheit um að skattaálögur yrðu lækkaðar um 2000 millj. kr. og komin fram lagabreyting í því skyni. En svo gerðist það sem sagt með setningu þessara brbl. að vinstri höndin tók aftur það sem hægri höndin var nýbúin af gefa.
Eins og ég tók fram áðan var það fyrirheit gefið við setningu þessara brbl. að þau yrðu aðeins til bráðabirgða í þess orðs fyllstu merkingu og giltu aðeins til áramóta. En það hefur farið eins í þessu máli og svo mörgum öðrum sem hæstv. ríkisstj. hefur lagt fram á Alþ. að fyrri fyrirheit og fyrri yfirlýsingar hafa verið að engu gerðar og nú liggur frv. fyrir í þeim búningi að 10% gjald verði á lagt fram til 1. ágúst á næsta ári og síðan lækki gjaldið í 6%. Jafnhliða því að ríkisstj. tekur þannig ákvörðun um að á næsta ári verði lagðar á þjóðina álögur sem nema 2200 millj. kr. með þessu gjaldi — álögur sem ekki var áður ráð fyrir gert, þá hefur ríkisstj. staðið hér fyrir hverju málinu af öðru sem felur í sér stórfellda skattahækkun, þ. á m. má nefna hækkun söluskatts um 2 stig sem mun gera um 2500 millj. á ársgrundvelli og auk þess 1% brúttóskatt sem mun tákna 1200 millj. kr. nýjar álögur á almenning. Samanlagt verður því hér um að ræða álögur sem nema 5500–6000 millj. kr. á einu ári.
Eins og flestum mun kunnugt eru samningar allra helstu verkalýðsfélaga í landinu lausir um næstu áramót og verkalýðshreyfingin gerir miklar kröfur um kjarabætur vegna þeirrar stórfelldu kjaraskerðingar sem átt hefur sér stað nú á seinustu mánuðum. Í þessu sambandi hefur verkalýðshreyfingin lagt fram sundurliðaða till. þar sem gerð er grein fyrir því hvernig unnt sé að hennar dómi að draga verulega úr verðbólgu jafnhliða því sem gerðar séu ráðstafanir til að bæta kjör launamanna, bæta þá skerðingu sem átt hefur sér stað. Í þeim punktum, sem stjórn Alþýðusambandsins hefur nú nýlega lagt fyrir ríkisstj., er einmitt lögð á það áhersla að nýjar skattaálögur séu ekki lagðar á þjóðina, þ. á m. falli niður tollvörugjald nú um áramótin, söluskattur sé ekki hækkaður, heldur sé reynt að stuðla að því að verðlag lækki, en að svo miklu leyti sem ríkisstj. telji óhjákvæmilegt að afla ríkissjóði nýrra tekna verði þeirra aflað með breyt. á tekjuskatti félaga með endurskoðun fyrningarákvæða og öðrum þeim breyt. á tekjuskattslögum sem gætu leitt til þess að þær tugþúsundir millj. kr., sem nú renna hjá garði með öllu óskattlagðar, séu skattlagðar eins og réttlátt er.
Sú stefna, sem ríkisstj. hefur hins vegar valið, er þveröfug stefna, stefna stóraukinna skattaálaga. Það er því ljóst að ríkisstj. er að hafna till. verkalýðshreyfingarinnar hverri af annarri nú einmitt þessa dagana áður en þær hafa verið teknar til umr. svo að heitið geti í þeim samningaviðræðum sem nú eru að hefjast. Mér virðist því ljóst að þessi afstaða ríkisstj. sé mjög til þess fallin að torvelda þær samningaviðræður sem nú fara í hönd. Menn kunna að segja sem svo að yfir því sé kvartað að verið sé að skera niður útgjöld ríkisins og á sama tíma geti menn því ekki staðið að því að koma í veg fyrir að tekjur ríkisins séu auknar. Því er til að svara að ég hef þegar bent á einn stóran tekjulið sem ríkisvaldinu er í sjálfsvald sett að nota, en það vill ekki nota, þar sem er tekjuskattur félaga, vanræktur tekjuliður.
Í öðru lagi verður að sjálfsögðu að líta á efnahagsstefnu ríkisstj. í heild sinni. Efnahagsstefna ríkisstj. hefur einkennst af því tvennu, annars vegar að skera niður útgjöld opinberra aðila, skera niður og að draga úr launum launþega, minnka kaupmátt þeirra, og hvort tveggja þetta veldur að sjálfsögðu mjög minnkandi veltu í þjóðfélaginu. En á sama tíma er ríkisstj. ófáanleg til að gera neinar ráðstafanir til að draga úr óhóflegum innflutningi og stuðla að aukinni innlendri eftirspurn. Sannleikurinn er auðvitað sá að ef öðruvísi væri á málum haldið væri miklu meiri velta í þessu þjóðfélagi og þar af leiðandi miklu meiri tekjur ríkissjóðs því að mikill meiri hl. tekna ríkissjóðs er fenginn með veltusköttum, einkum söluskatti. Ég tel þess vegna að röksemdir af því tagi að menn stilli upp annars vegar þessum venjulegu tekjumöguleikum ríkissjóðs, þ. e. a. s. nýjum sköttum, og hins vegar þörfinni á niðurskurði til þess að endar nái saman, að með því að líta þannig á dæmið líti menn á það of draumsýnum augum, það verði að líta á það í heild sinni. Staðreyndin er sem sagt einfaldlega sú að efnahagsstefna ríkisstj., sú stefna hennar að stuðla að þeirri stórfelldu kjaraskerðingu sem átt hefur sér stað, hefur að sjálfsögðu valdið þeim stórkostlegu vandamálum hvað snertir tekjuöflun ríkissjóðs sem menn nú standa frammi fyrir. Ef öðruvísi hefði verið á málum haldið hefði veltan í þjóðfélaginu verið talsvert miklu meiri og þar af leiðandi tekjur ríkisins meiri og ekki hefði verið þörf á þessum nýju stórfelldu skattaálögum sem ríkisstj. er nú að leita liðsinnis Alþ. til að koma fram.
Með það í huga, sem ég hef nú þegar sagt, að verið er að stórauka skattaálögur á almenning og um leið að skvetta kaldri gusu framan í verkalýðssamtökin í landinu, hafna stefnu verkalýðshreyfingarinnar, sem hún hefur óskað eftir að væri tekin til alvarlegrar umr., og þannig torveldaðar þær samningaviðræður sem nú eru að fara í hönd, — með þetta allt í huga legg ég eindregið til að Alþ. felli það frv. sem hér er til umr.