19.12.1975
Neðri deild: 39. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1489 í B-deild Alþingistíðinda. (1174)

123. mál, verkefni sveitarfélaga

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns gera aths. við hvernig að þessum málum er staðið eins og raunar fleirum sem hafa komið á borð þm. allra síðustu dagana áður en þingið á að fara í jólafrí.

Það hefur legið ljóst fyrir alveg síðan þing kom saman í okt. í haust að ætlun ríkisstj. var að flytja frv. eins og þetta, m. ö. o. að taka til endurskoðunar verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og flytja sérstakt frv. eða sérstök frv. um aukna þátttöku sveitarfélaga bæði í ýmsum fjárfestingarframkvæmdum og eins í ákveðinni þjónustu. Þetta lá fyrir af hálfu hæstv. ríkisstj. þegar í okt. s. l. að mundi gert verða. Hins vegar hefur svo liðið október, nóvember og hálfur desember að ekkert hefur sést frá hæstv. ríkisstj. um það, hvernig hún hygðist standa að þessu. Það var ekki fyrr en nú fyrir nokkrum dögum að þm. gafst kostur á að kynna sér till. hæstv. ríkisstj. Og ég verð að segja eins og mér finnst að varla er í þessu frv. hægt að komast af með öllu skemmri grg. eða aths. en með því fylgja, því að þar má segja að sé varla sagt aukatekið orð um hverju sé ætlað að breyta með þessu frv. í þeim fjölmörgu lagabálkum sem það varðar.

Ég hlustaði áðan á einn stjórnarþm., hv. þm. Steingrím Hermannsson, lesa mikinn reiðilestur yfir hæstv. ráðh. og hæstv. ríkisstj. þar sem hv. þm. Steingrímur Hermannsson átaldi ríkisstj. og ráðh. mjög harðlega fyrir hvernig hún hefði staðið að þessum málum. Ég held að ég muni það rétt, að hann hafi lokið þeim parti ræðu sinnar með því að segja: „Ég er búinn að fá meira en nóg.“

Séu hv. stjórnarþm. búnir að fá meira en nóg, hvað skyldi þá vera um okkur stjórnarandstæðinga sem höfum ekki einu sinni haft aðstöðu til að fylgjast með því, hvað hæstv. ríkisstj. er að gera, fyrr en á síðustu dögum, jafnvel síðustu klukkustundum þinghaldsins fyrir jól. Að vísu var þetta ekki nægileg ástæða fyrir hv. þm. Steingrím Hermannsson til þess að greiða atkvæði gegn því frv. sem hér er til umr., en ég hygg þó að vilji hans hafi sá verið, þó að hann hafi ekki látið til leiðast að greiða atkv. gegn frv. af hlýðni við sina yfirboðara í hæstv. ríkisstj. En það er atriði út af fyrir sig.

Það er rétt, sem hér hefur fram komið að það ber nauðsyn til þess, sem ég hygg að allir þingflokkar styðji, að gerðar verði breytingar á verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Enda er það í senn vilji ríkisstj. og vilji Sambands ísl. sveitarfélaga og sveitarfélaganna sjálfra. Hins vegar er það einkenni þessa frv. að það er rokið til í þetta mikilvæga verkefni á síðustu stundu að lítt athuguðu máli og raunar tjaldað þar til einnar nætur.

Sú er hin fyrsta ástæða fyrir því, að ég mun greiða atkv. gegn þessu frv., að hér er ekki um að ræða varanlega endurskoðun á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, heldur fyrst og fremst verið að tjalda til einnar nætur og búast má við því, eins og raunar hefur fram komið hjá hæstv. ráðh , að málið allt verði tekið til endurskoðunar síðar í sambandi við frekari athugun þess, þannig að það, sem verið er að gera nú, mun ekki eiga langa framtíð fyrir sér að öllum líkindum.

Ég er sannfærður um að það er rétt, að það hafa ýmsar breytingar verið gerðar til bóta á upphaflegum hugmyndum hæstv. ríkisstj. um breytingu á þessari verkaskiptingu sem hún mun hafa komið fram með og okkur stjórnarandstæðingum eru lítt kunnar. Engu að síður er það svo, þó að sum atriði í þessu frv. séu e. t. v. þess virði að það væri hægt að skoða þau sérstaklega betur, að það eru ákveðin atriði í þessu frv. sem gera það að verkum að ég mun ekki geta greitt atkv. með því og mun því greiða atkv. á móti því. Þar er bæði um smærri og stærri atriði að ræða.

Ég vil t. d. benda á að frv. gerir ekki ráð fyrir því að sveitarfélögunum sé séð fyrir tekjum sérstaklega til þess að reka fræðsluskrifstofur, og sá vandi sveitarfélaganna er ekki leystur í þessu frv. Það mun vera um það bil eitt ár síðan ég lagði fram hér á hinu háa Alþ. fsp. til hæstv. menntmrh. um einmitt þetta atriði. Þar spurði ég ráðh. hvort eitthvað það væri í bígerð af hálfu hæstv. ríkisstj. sem gerði sveitarfélögunum kleift að ráðast í þann umfangsmikla rekstur fræðsluskrifstofa sem þeim er lagður á herðar í grunnskólalögum. Ég flutti þessa fsp. til hæstv. ráðh. vegna þess að ég vissi að sveitarfélögin töldu sig ekki geta staðið undir þessum rekstri nema kæmi til sérstök greiðasemi frá ríkisstj. Hæstv. ráðh. svaraði mér þá, fyrir einu ári, að þetta mál væri til mjög gaumgæfilegrar athugunar í menntmrn., bæði gaumgæfilegrar athugunar og velviljaðrar, og þess væri að vænta að úrslit í málinu væru skammt undan og málið yrði leyst á þann veg sem sveitarfélögin gætu mætavel við unað. Nú hefur liðið eitt ár síðan og hefur ekki bólað á þessari lausn enn og bólar ekki á henni í þessu frv. til 1. sem hér er flutt, að því er ég best fæ séð. Þetta er eitt atriði, e. t. v. ekki ýkjastórvægilegt, en þó talsvert, sem gerir það að verkum að ég get ekki greitt þessu frv. atkv.

Annað atriði, mun stórvægilegra þó, sem ég er andvígur, kemur fram í IV. kafla, 5. gr. frv., þ. e. a. s. um dvalarheimili aldraðra. Þar er gert ráð fyrir að niður falli 1. málsgr. í 7. gr. l. um dvalarheimili aldraðra. Þessi mgr., sem á að falla niður, hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Nú byggir sveitarfélag dvalarheimili eða hefur rekstur þess samkv. lögum þessum, og skal þá ríkissjóður greiða 1/3 hluta kostnaðar við bygginguna og kaup nauðsynlegra tækja og búnaðar.,“

Samkv. frv. því, sem hér er flutt, er sem sagt gert ráð fyrir því að þessi mgr. falli niður, skylda ríkissjóðs til þess að greiða 1/3 hluta kostnaðar við byggingu og kaup nauðsynlegra tækja og búnaðar í dvalarheimili aldraðra. Nú held ég að það fari ekki á milli mála fyrir neinn þann, sem eitthvað hefur reynt að kynna sér ástand í dvalarheimilismálum aldraðra víðs vegar um land, að þar er gríðarmikið verk óunnið. Og reynslan hefur kennt okkur það, að sveitarfélögin hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til þess að standa undir þeim kostnaði sem af því hlýtur að leiða að byggja dvalarheimili. Ég ber talsverðan ugg í brjósti um það, ef þetta ákvæði verður fellt niður úr lögum umn dvalarheimili aldraðra, að þá verði ekki aðeins um það að ræða að mjög dragi úr framkvæmdum á þessum sviðum, heldur jafnvel að algjör stöðnun taki við.

Það er kunnara en frá þurfi að segja að það kostar töluvert fé að búa öldruðu fólki ýmist heimilisaðstoð eða dvalarheimili sem það þarf að geta notið eins og yngri borgarar geta gert í sambandi við dagvistunarheimili barna. Þetta mál verður ekki leyst af sveitarfélögunum einum. Við höfum reynslu fyrir því að það verður ekki gert. Ef ríkissjóður ætlar að skjóta sér undan að taka réttmætan þátt í þessu veigamikla máli, — máli sem vissulega kostar töluvert mikið fjármagn, — þá óttast ég það, eins og ég sagði áðan, að í staðinn fyrir það, að nú virðist hilla undir töluverðar framkvæmdir hjá sveitarfélögunum einmitt á þessu sviði, þá taki þar algjör stöðnun við. Þetta tei ég vera einn megingalla þess frv. sem hér er til umr., og er hann þess valdandi ásamt öðru að ég mun greiða atkv. gegn því.