19.12.1975
Neðri deild: 39. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1494 í B-deild Alþingistíðinda. (1177)

123. mál, verkefni sveitarfélaga

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Ég skal ekki eyða mörgum orðum um þetta mál hér við þessa umr., enda liðið nokkuð á nótt, en ég þarf að koma hér að nokkrum leiðréttingum vegna ummæla sem fallið hafa í umræðunum.

Hv. þm. Svava Jakobsdóttir komst að orði eitthvað á þá leið, að með þessu frv. og í málflutningi um það væri látið að því liggja að gengið sé til móts við óskir Sambands ísl. sveitarfélaga, eins og ég held að þm. hafi orðað þetta. Í þessum orðum þm. felst að hér sé, að manni skilst, jafnvel flutt frv. sem sé í hreinni andstöðu við óskir Sambands ísl. sveitarfélaga. Þetta mál, hreinni verkaskipting milli ríkis og sveitarfélaga og yfirfærsla á verkefnum frá ríki til sveitarfélaga, hefur verið áhugamál Sambands ísl. sveitarfélaga um árabil. Allt frá árinu 1969 hafa verið haldnir árlegir fundir um þetta mál, og á árinu 1974 voru dregnar saman till. sambandsins í Handbók sveitarstjórna nr. 12.

Ég skal drepa á þau atriði sem hv. þm. Svava Jakobsdóttir gerði einkum að umræðuefni, þ. e. a. s. almenningsbókasöfn, dagvistunarheimili og elliheimili. Ég skal drepa á það sem í þessari handbók stendur. Með því held ég að sannist að ekki sé um að ræða í þessu frv. handahófskennt verkefnaval, eins og þm. komst að orði. Um almenningsbókasöfnin segir þetta, með leyfi hæstv. forseta:

„Lagt er til að bygging og rekstur bókasafna og bókhlaða verði algerlega í höndum sveitarfélaganna og landshlutasamtaka sveitarfélaga, þ. e. að komið verði upp stórum héraðs- eða landshlutabókasöfnum sem síðan hefðu útibú við skólabókasöfn og samvinnu við lestrarfélög.“

Þetta segir í þessari handbók. Ég held að það megi segja um vöxt hinna einstöku bókasafna úti um land, hvort heldur eru héraðsbókasöfnin eða bókasöfn einstakra sveitarfélaga, að þau hafa vaxið þrátt fyrir afskipti ríkisins af þeim málum, en ekki vegna þeirra. Framlög ríkisins til almenningsbókasafna hafa verið hreint smáræði miðað við það sem sveitarfélögin hafa lagt af mörkum, og ég sé ekki nokkra ástæðu til að ætla að það verði um afturför að ræða í þessum efnum þótt þetta verkefni fari alfarið yfir til sveitarfélaganna.

Um dagvistunarstofnanirnar er nokkur kafli í þessari skýrslu Sambands ísl. sveitarfélaga. Þar er fyrst rætt nokkuð um lög sem sett voru 1973. Ég vek athygli á því, að í VI. kafla frv. er væntanlega um prentvillu að ræða, þar sem vísað er til l. nr. 29/1963, það hlýtur að eiga að vera 1973. Þar segir svo um þetta verkefni, með leyfi hæstv. forseta:

„Hér er um að ræða mjög staðbundna starfsemi sem er dæmigert verkefni sveitarfélaga. Væri því eðlilegt að sveitarfélögin ein eða í samvinnu við áhugamannafélög í sveitarfélaginu hafi þessa starfsemi með höndum.“

Það segir hér svo áfram: „Telja verður að tilgangurinn með setningu l. nr. 29/1973, um hlutdeild ríkisins í byggingu og rekstri dagvistunarstofnana. hafi verið sá að örva sveitarfélög og aðra aðila til að auka starfsemi sína á þessu sviði og að styðja þau fjárhagslega þar eð þeir væru ekki taldir hafa fjárhagslegt bolmagn til þess. Samband ísl. sveitarfélaga lítur hins vegar svo á, að eðlilegra hefði verið að búa svo að tekjustofnum sveitarfélaganna að þau gætu leyst þetta verkefni ein án fjárstuðnings ríkisvaldsins.“

Þetta hefur verið og er stefna sú sem mörkuð hefur verið af sveitarstjórnum í landinu.

Um elliheimilin er að vísu ekki farið mjög mörgum orðum í þessari skýrslu, en á einum stað í till. segir að sveitarfélögin annist félagslega þjónustu, þar með talið framfærslumál, byggingu og rekstur dagvistunarstofnana, byggingu og rekstur leikvalla, heimilishjálp og málefni aldraðra, þar með talin bygging og rekstur dvalarheimila, svo og húsnæðismál o. s. frv. Með þessu held ég að ég hafi hrakið það, að hér sé verið að hreyfa máli sem sé í andstöðu við Samband ísl. sveitarfélaga, og þar með, að hér sé um handahófskennt verkefnaval að ræða.

Um þetta mætti fara mörgum fleiri orðum, en ég skal ekki eyða miklum tíma í það. Ég get þó ekki látið hjá líða að benda á að afskipti ríkis af dagvistunarmálunum hafa síður en svo orðið til þess að flýta fyrir framkvæmdum á því sviði. Ég fullyrði að þessi afskipti ríkisvaldsins eru til óþurftar. Ég viðurkenni hins vegar að það er eðlilegt að viss leiðsögn komi frá ríkisvaldinu um þessi efni, en ég viðurkenni ekki að ríkisvaldið þurfi þar að segja sveitarfélögunum fyrir verkum í einu og öllu.

Ég get bent á það sem dæmi, að ef Reykjavikurborg færi eftir þeim normum sem rn. hefur sett, þá þyrfti að fækka á núverandi dagvistunarstofnunum borgarinnar um 100 börn. Talið er að hvert pláss fyrir barn á dagvistunarstofnunum kosti um eina millj. kr. Þetta þýðir m. ö. o., að ef Reykjavíkurborg ætlar að standa í stað, þá kostar það 100 millj. kr. Ég gæti nefnt ýmis dæmi um það hvernig þessi mál hafa snúist í höndum sveitarstjórna sem hafa ætlað sér að leysa þessi mál með snöggu átalki og með ódýrum hætti, en hafa verið stöðvuð í því vegna afskipta ríkisvaldsins.

Það hafa, held ég, allir stjórnmálaflokkar lýst yfir fylgi við það að verkaskipting milli ríkis og sveitarfélaga verði gerð skýrari og fleiri verkefni yfirfærð til sveitarfélaganna. Mér kemur þess vegna á óvart sú andstaða sem þetta frv. fær hjá hv. stjórnarandstæðingum. Hér er vissulega ekki um neina varanlega úrbót að ræða, það skal fúslega viðurkennt, og skrefið er ekki ýkjastórt. En skref er það samt, og ég er sannfærður um að það er heppilegra að yfirfæra þessi verkefni smátt og smátt, fremur en að stiga allt of stórt skref í einu.

Það sýnir sig í umr. um þessi mál, að það er nokkur ágreiningur meðal sveitarstjórnarmanna þótt þeir hafi í meginatriðum áður lýst fylgi sínu við það að einmitt þessi verkefni verði yfirfærð. Það er nefnilega svo, að menn fara þá að líta í eigin barm: hvernig kemur þetta við mitt sveitarfélag? — og þegar þeir sjá það að fyrsta árið eða fyrstu tvö árin hittir þetta e. t. v. viðkomandi sveitarfélag illa, þá ætlast þessir ágætu menn til að stefnan í þessum málum verði mörkuð með tilliti til þeirra. Slíkt er að sjálfsögðu ekki hægt.

Ég vil aðeins segja vegna þess, sem fram kom hjá hv. þm. Sighvati Björgvinssyni um fræðsluskrifstofurnar, að menn verða að gera sér grein fyrir því að þær eru ekki með í þessu frv., vegna þess að hér er verið að yfirfæra til sveitarfélaganna verkefni sem hafa verið fram til þessa hjá ríkinu. Rekstur fræðsluskrifstofanna er hins vegar nýtt verkefni, og samkv. grunnskólalögunum var ætlunin að fræðsluskrifstofurnar yrðu reknar af landshlutasamtökum sveitarfélaga. Þegar grunnskólalögin voru sett, þá held ég að menn hafi gengið út frá því sem gefnu að landshlutasamtökin yrðu lögfest Svo varð ekki, og ég held að megi fullyrða að það sé enginn áhugi á því hér á hv. Alþ. að lögfesta þau. Ég held að megi líka fullyrða að sá áhugi sem sveitarstjórnarmenn höfðu á því fyrir 1–2 árum, er ekki lengur fyrir hendi. Þetta veldur því, að ég er því andvígur að fræðsluskrifstofurnar verði reknar af landshlutasamtökunum, vegna þess að þau eru ekkert annað en áhugamannasamtök, og fer illa á því að löggjafarvaldið sé að fela slíkum samtökum verkefni sem þetta. Þetta verður þess vegna að leysa sérstaklega og með öðrum hætti en í þessu frv.

Það þýðir sjálfsagt ekkert að deila við þá menn sem halda því fram að elliheimilisbyggingarnar verði ekki leystar af sveitarfélögunum einum. Ég skal ekki ræða það, en ég tel að með þessum orðum sé lýst vantrausti á sveitarfélögin til að leysa þetta verkefni, og það er algerlega órökstutt.

Aðeins svo nokkur orð um það sem kom fram frá hv. þm. Karvel Pálmasyni. Hann sagðist hafa heyrt að stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga hefði ekki fjallað um þetta frv. í því formi sem það nú er. Það er rétt að stjórn sambandsins hefur ekki fjallað um frv. í þessu formi. En ég bendi hins vegar á það, að síðan rætt var við stjórn sambandsins hefur frv. breyst þannig að felld hafa verið út þau atriði sem mestum ágreiningi ollu, þannig Að það er engin ástæða til þess að ætla að sambandsstjórnin sé málinu sérstaklega andvíg.

Varðandi ójöfnuðinn sem leiddur væri yfir sveitarfélögin ef þetta frv. yrði samþ., þá skildi ég ekki almennilega hv. þm. En mér skildist á honum að þau sveitarfélög. sem ekki hafa t. d„ svo að ég taki dæmi, hafið byggingu elliheimila, muni tapa — ég held að ég hafi skilið hann rétt — þau koma þá ekki til með að njóta framlaga frá ríkinu. Mér sýnist þetta vera algerlega röng ályktun, vegna þess að við það að þetta verkefni er ekki lengur í höndum ríkisins fá öll sveitarfélög í landinu. hvort sem þau hafa byrjað á þessu verkefni eða ekki, aukinn tekjustofn í gegnum Jöfnunarsjóðinn, þannig að ég get ekki séð annað en þetta sé röng ályktun hjá hv. þm. ef ég hef skilið hann rétt.

Ég vil svo aðeins nefna hér örfá atriði sem sett eru fram í handbók Sambands ísl. sveitarfélaga sem tillögur sambandsins og ég held að renni stoðum undir það að þetta frv. er algerlega í samræmi við það sem sveitarfélögin hafa óskað eftir:

Það er í fyrsta lagi að verkaskiptingin milli ríkisins, sveitarfélaganna og samtaka þeirra verði tekin til heildarendurskoðunar og gerð einfaldari og gleggri en nú er. — Þetta er fyrsta skrefið. Því hefur verið lýst yfir að samstarfsnefnd verði skipuð um þessi mál eftir óskum sveitarfélaganna nú fyrir áramót.

Sameiginlegum verkefnum ríkisins og sveitarfélaganna verði fækkað. — Þetta er tilraun í þá átt.

Einstök verkefni framkvæmdavaldsins verði falin þeim aðila sem eðlilegast er að hafi þau með höndum, þannig að saman fari hjá sama aðila frumkvæði að framkvæmd, umsjón framkvæmdar og sá sami aðili standi að öllu leyti undir kostnaði við framkvæmdina.

Og loks nefni ég svo að sveitarfélögin annist staðbundin verkefni sem fyrst og fremst snerta íbúa sveitarfélagsins og daglegt líf þeirra meira og minna.

Ég skal svo ekki hafa þessi orð mín fleiri, en ég hlýt að lýsa vonbrigðum mínum yfir því að hv. stjórnarandstæðingar skuli ætla sér að greiða atkv. gegn þessu frv. Ég verð fyrir vonbrigðum, vegna þess að þessir hv. þm. hafa annars sýnt málefnum sveitarfélaganna sérstakan skilning á undangengnum dögum.