19.12.1975
Efri deild: 42. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1512 í B-deild Alþingistíðinda. (1207)

102. mál, lántaka vegna opinberra framkvæmda 1976

Frsm. meiri hl. (Jón G. Sólnes) :

Herra forseti. Þetta mál hefur hlotið meðferð í fjh.- og viðskn. og hefur verið athugað af n. Meiri hl. n. leggur til, að frv. verði samþ., en minni hl. skilar séráliti.

Hér er um að ræða veigamikið mál sem fjallar um mjög háar fyrirhugaðar lántökur ríkissjóðs. Ekki er ástæða á þessu stigi að fjölyrða um málið, því að fyrir utan það, að það hefur verið rætt nokkuð manna á meðal, þá fylgir nú í fyrsta skipti skýrsla um lánsfjáráætlun 1976, mjög greinargóð, sem í eru margar og mikilsverðar upplýsingar um það, til hvers fjármagnið skuli fara og hvernig þess skuli aflað.

Þegar þessi mál eru rædd kemst maður þó ekki hjá því að staldra dálítið við þá staðreynd, þegar litið er á heildarskuldir þjóðarinnar í erlendum gjaldeyri, hversu áberandi það er hvað þátttaka einstaklingsframtaksins — á ég þar jafnt við einstaklinga, fyrirtæki, félög og félagasamtök — er lítil, ótrúlega lítil í þeirri starfsemi að flytja erlent fjármagn til landsins og vera aðili að því. Sú þróun hefur viðgengist í þessu þjóðfélagi og farið vaxandi að öll fyrirgreiðsla í sambandi við erlendan lánamarkað fer fram fyrir milligöngu hins opinbera. Alls staðar annars staðar á vestlægum löndum eru notaðir til hins ítrasta möguleikarnir sem einstaklingarnir, jafnt fyrirtæki og félagasamtök, hafa til að njóta lánstrausts á erlendum markaði og þannig flytja heim til síns lands það fjármagn sem þeir geta útvegað til uppbyggingar atvinnurekstrar og til hráefniskaupa og annarra þeirra hluta sem atvinnuvegirnir þurfa á hverjum tíma.

Af þessu skipulagi, sem við íslendingar búum við og höfum búið við um langt árabil, þessa opinberu forsjón í lánamálum eða samskiptum þjóðarinnar um erlent fjármagn, hefur skapast það ástand að hið opinbera, þjóðfélagið, hefur orðið, þar með talinn ríkissjóður, að binda sér miklu meiri bagga en þurft hefði ef meira frjálsræði hefði ríkt í þessum málum. Afleiðingin af þessari tilhögun hefur orðið sú, að ríkissjóður og opinberar stofnanir hafa í æ ríkari mæli með hverju árinu sem líður orðið að taka á sig stórfelldar greiðslur á slíkum erlendum fjárskuldbindingum, — greiðslur sem ekki er hægt að inna af hendi öðruvísi en að innheimta skatta í þjóðfélaginu.

Hér held ég að sé ástæða til að stinga við fótum og taka til rækilegrar athugunar hvort ekki væri ástæða til að breyta nokkru til hér um, að við færum að semja okkur að siðum annarra vestrænna þjóða sem gefa þegnunum, fyrirtækjunum og félagasamsteypum tækifæri til þess sjálfum að reyna til hins ítrasta að skapa sér lánstraust og nýta krafta sina til þess á eðlilegan hátt, án þátttöku og án ábyrgðar opinberra aðila, að útvega sér það fjármagn sem til þarf, að ekki sé gleymt þeirri staðreynd, að eins og nú er háttað skattheimtu hins opinbera, þá má með nokkrum sanni segja að stór hluti af hverri krónu, sem fer manna á milli, hvort það er í veltu eða öðrum fjármagnsgreinum, fer beint sem tekjur í ríkissjóð, þannig að aðeins ef maður vildi með sanngirni líta á þessa hlið málsins, þá er með því skipulagi, sem við nú höfum á þessum málum og höfum haft um langa hríð, verið að sniðganga stórkostlega tekjumöguleika fyrir ríkissjóð. Með því kerfi, sem við búum við, er verið að skapa þjóðfélaginu stórkostlegar greiðslubyrðar sem geta ekki komið niður öðru vísi en með aukinni skattabyrði almennings. Á þetta veigamikla atriði þótti mér eðlilegt að nota tækifærið við umr. um þetta mál að benda, um leið og ég vænti þess að af hlutaðeigandi stjórnvöldum verði tekið rækilega til athugunar að endurskoða þetta kerfi allt frá grunni áður en í meira óefni fer í efnahagsmálum þjóðarinnar.