23.10.1975
Sameinað þing: 7. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í B-deild Alþingistíðinda. (126)
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana
Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti, góðir hlustendur. Forsrh. hefur í stefnu ræðu reifað stærstu viðfangsefni ríkisstj. á fyrsta starfsári. Fleira er titt. Í menntamrn. er t. d. margt sýslað. Á síðasta Alþ. voru sett lög um tónlistarfræðslu, um launasjóð rithöfunda, húsfriðunarsjóð, leiklistarskóla og hússtjórnarfræðslu. Frv. um bókasöfn, leiklistarstarfsemi, þjóðleikhús, breytingu á háskólalögunum og lögum um Lánasjóð ísl. námsmanna verða meðal þeirra sem fram koma á fyrra fallinn í vetur. Endurskoðun laga um iðnfræðslu, viðskiptamenntun, Myndlista- og handíðaskóla og fleiri þætti skólalöggjafarinnar er nú í gangi, og vinnuhópur innan rn. hefur fyrir nokkru hafið undirbúning að heildarendurskoðun framhaldsskólastigsins. Á grunnskólastiginu er stöðugt unnið að endurskoðun og endurnýjun námsefnis og sett hefur verið af stað námsskrárgerð iðnfræðslunnar. Jafnframt er unnið að samræmingu og þar með eflingu verkkennslu á ýmsum stöðum á landinu. Skipulagning sérkennslunnar er undirbúin, Höfðaskólinn hefur fengið nýtt húsnæði í Fossvogi, og hafist hefur verið handa um aðgerðir á þessu sviði utan Reykjavíkur. Tilfinnanlegur skortur er á sérhæfðu fólki, en það stendur til bóta því að allmargir kennarar eru í framhaldsnámi á þessu sviði. Þrátt fyrir aukið aðhald og beinan niðurskurð í fjárl. hefur í ár verið byrjað á nokkrum skólamannvirkjum og auðvitað haldið áfram byggingu annarra. En hér er of langt upp að telja, því að fjölmörg verkefni eru ætíð í vinnslu, sum seinunnin langtímaviðfangsefni. En mér ber að þakka umburðarlyndi og atbeina fjölda fólks, sem starfar að skólamálum, listum, íþróttamálum og skyldum verkefnum.
Menntamálin eru umfangsmikil og þykja enda rúmfrek í fjárl. í hagtölum ágústmánaðar segir þó að íslendingar verji til menntamála 4.30% af þjóðarframleiðsíu á sama tíma og norðmenn nota 5.90%. Þegar að þrengir er gjarnan horft eftir möguleikum til sparnaðar á stærstu fjárlagaliðunum. Á sumum sviðum þessa málaflokks er erfitt að spara án tjóns. Svo er t. d. um aðstoð vegna barna með sérþarfir og ýmsa þætti verkmenntunar sem þurfa örvunar. En menntmrn. mun á skipulegan hátt leita leiða til aðhalds og aukinnar hagkvæmni í menntakerfinu og væntir góðs samstarfs við alla þá sem þar eiga hlut að máli.
Hv. þm. Ragnar Arnalds reyndi áðan að nýta sér til framdráttar versnandi viðskiptakjör íslendinga og margháttaða aðsteðjandi erfiðleika. Það er í samræmi við skrif flokksblaðsins, sem í gær sagði frá mótmælum hagsmunahópa undir 15 stórfyrirsögnum! Já, skáldin klökkna af innvortis ánægju yfir öllum þessum hörmum sem er svo gott að yrkja um, sagði Tómas Guðmundsson fyrrum.
Hv. þm. minntist á Byggðasjóð. Framlag ríkissjóðs til Byggðasjóðs árin 1975 og 1976 munu nema rétt um tveim milljörðum samkv. stjórnarsáttmálanum og er þar mikil hækkun á ferðinni.
Hv. þm. fordæmdi gengislækkun þessarar stjórnar, en hafði sjálfur samþ. sams konar aðgerð skömmu áður. Hann fordæmdi og hækkun á opinberri þjónustu án þess að sýna minnsta lít á að benda á aðrar tekjur fyrir þjónustustofnanirnar.
Úrræði hv. þm. voru, að slepptum öllum umbúðum, breyting þeirra skattalaga, sem hann sjálfur hafði sett fyrir skemmstu. Fyrir það á svo að auka kaupmáttinn, styrkja atvinnureksturinn og halda uppi dampi í framkvæmdum og framlögum til félagsmála. Þetta er ekki traustvekjandi.
Hv. þm. Benedikt Gröndal sýndi að vísu meiri viðleitni til málefnalegs flutnings, en skýst þótt skýrir séu. Þm. var ekki fyrr búinn að hnykkja á nauðsyn greiðsluhallalauss ríkisbúskapar heldur en hann gat þess að flokkur hans hefði að sjálfsögðu verið andvígur 12% vörugjaldinu. Og rétt á eftir greindi hv. þm. svo frá ýmsum kostum slíkrar skattheimtu. Þetta er nú ekki heldur björgulegt!
Nei, sannleikurinn er sá, að málflutningur stjórnarandstæðinga í efnahagsmálum og alveg sérstaklega varðandi ríkisfjármálin einkennast af því að það er mælt með hverri útgjaldahækkun og gegn sérhverri hækkun gjalda og tekjuöflun fást þeir aldrei til að ræða í alvöru. Því miður eru hv. stjórnarandstæðingar ekki sérlega líklegir til afreka í baráttu við aðsteðjandi vanda í efnahagsmálum. Er illt til þess að vita, því að nú er vissulega full þörf samstöðu og og við skulum vona að „Eyjólfur hressist“.
Rúmt ár er nú liðið frá stjórnarskiptum. Ríkisstj. tók við góðu búi að því leyti að landsmenn höfðu eignast afkastamikil atvinnutæki og allir höfðu nóg að gera. Hins vegar höfðu viðskiptakjör þjóðarinnar versnað stórkostlega á síðustu missirum fráfarandi stjórnar, og þjóðhátíðarárið skilaði hallarekstri hjá ríkissjóði og ríkisstofnunum og mörgum sveitarfélögum. Gjaldeyrisstaðan hafði versnað um 15 milljarða á árinu og engin batamerki voru sjáanleg í utanríkisversluninni. Verðbólguvöxturinn sló þá öll met. Þannig var staðan um og upp úr stjórnarskiptunum, þegar leið að árslokum 1974.
Ríkisstj. hefur unnið að landhelgismálinu í samræmi við ákvæði stjórnarsáttmálans. Jafnframt hefur meginverkefnið verið efnahagsvandinn, eins og fram hefur komið í máli þeirra ráðh. sem talað hafa á undan mér. Og ég hef þegar drepið á örfáa þætti menntamála. Hér er þó vissulega á fleira að líta ef myndin á ekki að skekkjast. Á þessu ári hefur verið unnið markvisst að merkum og víða stórum framkvæmdum á sviði atvinnumála, orkumála og margvíslegrar þjónustu. Nýbyggingum og endurbótum á vinnslustöðvum landbúnaðar og sjávarútvegs er haldið áfram víðs vegar um land og þáttur iðnaðar í þjóðarbúskapnum fer vaxandi. Orkumálin hafa notið forgangs, eins og kunnugt er, vegna gjaldeyrissparandi áhrifa nýrra vatnsog varmaorkuveitna. Hefur reynst unnt að halda þar uppi framkvæmdum eins og mannafli hefur hrokkið til.
Íbúðabyggingar hafa þrátt fyrir allt verið miklar á árinu. Landhelgisgæslan hefur fengið nýtt skip, og unnið hefur verið að skólabyggingum, vegagerð, heilbrigðismannvirkjum og öðrum bráðnauðsynlegum opinberum framkvæmdum, eftir því sem laust vinnuafl hefur hrokkið til og að sumra dómi vel það, því að auðvitað eru það framleiðslustörfin og þar með sjálf verðmætaöflunin sem alltaf verður að koma í fremstu röð, hafa forgang.
Nauðsynlegt er að hafa þetta í huga jafnframt öðru þegar meta skal stöðuna eins og hún er nú og svo störf ríkisstj. Og þegar erfiðleikar steðja að, þá má ekki missa sjónar á björtu hliðunum, vinningunum, því að á slíkum tímum snýst taflið kannske einmitt um það að halda þeim. Á því sviði eigum við að verja afkomu einstaklings og samfélags, framhald þeirrar umbótastarfsemi, sem fram hefur farið í þessu landi í heila öld og efnahagslegt sjálfstæði. Þetta á okkur að vera kleift þrátt fyrir allt, því að um margt eru Íslendingar vel í stakk búnir til þess að bjarga sér. En það tekst ekki nema þjóðin í senn beiti harðfylgi við alla aðdrætti í þjóðarbúið og gæti hófs um meðferð aflafjárins.
Umfram þessi töluðu orð ætla ég ekki að ræða um sparnað og aðhald í íslensku verðbólguþjóðfélagi, enda kvað það ekki vera smekklegt að nefna snöru í hengds manns húsi.
Ég vil þó að lokum, góðir hlustendur, bera fram örfá aðvörunarorð. Stórfelldur hallarekstur ríkissjóðs, 30–40 milljarða viðskiptahalli á tveimur árum, samróma spár vísindamanna um hrun þorskstofnsins með sömu sókn og nú eru sem aðvörunarmerki á erfiðri leið. Harðar kröfur velflestra hagsmunahópa um stórbætt kjör þeim til handa breyta þessum aðvörunarmerkjum í uggvænleg tákn um aðsteðjandi hættu.
Efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar er einn af hyrningarsteinum stjórnarfarslegs sjálfstæðis. „Ef fjörið glatast við Festarklett er fjötranna skammt að bíða.“
Og hér er að fleiru að hyggja. Íslendingar setja sér lög samkvæmt stjórnarskrá sinni, með þingbundnum hætti, breyta þeim og setja ný þegar löglega kjörnu Alþingi býður svo við að horfa. Til Alþingis er kosið á fjögurra ára fresti og veltur á ýmsu um valdahlutföllin þar. Framkvæmdavaldið er og skipað samkv. stjórnarskrá. Ég sé ástæðu til þess að rifja þetta upp hér og nú — og vísa þá jafnframt til þúsund ára gamallar umsagnar:
„Svo líst mér sem málum vorum sé komið í ónýtt efni ef vér eigi skulum hafa ein lög allir. En ef sundurskipt er lögunum, þá mun sundurskipt friðinum og mun eigi mega við það búa.“
Herra forseti, góðir hlustendur. Enn eiga íslendingar leikinn. Enn höfum við haft nóg að starfa og raunar staðið í stórræðum við aðdrætti og uppbyggingu í okkar stóra og góða landi á meðan margar nálægar þjóðir hafa strítt við bölvald allrar alþýðu, atvinnuleysið. Við skulum leggja metnað okkar í það að halda þessu forskoti. — Góða nótt.